Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Page 35
Þann 17. nóvember síðastliðinn efndi stjórn IÞÍ
til fulltrúafundar og er það annað áriö í röð sem
slíkur fundur er haldinn. Markmiðið er að efla
innra starf félagsins og móta stefnu þess og
áherslur í ýmsum málum. Ennfremur er fulltrúa-
fundurinn mikilvægur vettvangur til að miðla
upplýsingum um starf stjórnar, nefnda og hópa
innan félagsins. Á fundinn mættu auk stjórnar-
meölima fulltrúar frá flestum nefndum.
Jréttir af félagsstarfi
Fulltrúarnir sögðu frá því helsta sem hefur
verið á döfinni og lýstu þeim verkefnum
sem liggja fyrir í nánustu framtíð. Það er
ljóst að félagsstarfið er í fullum blóma og metn-
aður einkennir þá vinnu sem nefndirnar inna af
hendi. Það kom einnig fram að umfang verk-
efnanna hefur aukist í takt við tímann og má
þar meðal annars nefna kjarabaráttu, símennt-
unarmál, blaðaútgáfu og þverfaglegt samstarf.
Stjórn félagsins greindi frá helstu þáttum í
starfsáætlun sinni þetta árið og velt var upp
hugmyndum um forgangsröðun verkefna. Af
brýnum málum ber hæst siðareglur, kynningar-
og húsnæðismál svo eitthvað sé nefnt. Upplýst
var að á síðasta félagsfundi var stofnaður form-
legur starfshópur um almannatengsl og mark-
aðssetningu iðjuþjálfunar og mun hópurinn
hittast nú í lok nóvember. Kynntar voru þær
vangaveltur sem uppi hafa verið varðandi fyrir-
komulag aðalfundar, væntanleg formanns-
skipti og rekstur félagsins og aðstöðu.
í lok fundarins spunnust góðar og gagnlegar
umræður. Þátttakendur voru sammála um gildi
þess að halda fulltrúafund sem þennan og jafn-
vel þyrfti að hafa hann tvisvar á ári. Stjórnin
hefur úr nægu að moða eftir fundinn og nú er
bara að bretta ermarnar enn hærra upp.
ÞL