Iðjuþjálfinn - 01.06.2000, Page 6
Svipmynd
af formanni IÞI
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir var á
síðasta ári kjörin formaöur löjuþjálfa-
félags íslands. Hún lauk prófi í iðju-
þjálfun frá Kaupmannahöfn 1988.
Ritnefnd þótti viö hæfi aö bregöa upp
svipmynd af nýjum formanni.
Kristín tók við formannsstarfinu af Hope
Knútsson en hún hafði gegnt for-
mennsku allt frá stofnun IÞÍ árið 1976.
Kristín hefur ekki áður setið í nefndum félags-
ins, en ákvað að slá til eftir að stjóm þess leit-
aði til hennar um að gefa kost á sér.
-Mér hafði sjálfri ekki komið til hugar að
bjóða mig fram, nema í einhverju spaugi fyrir
norðan. Okkur iðjuþjálfum hér á Norðurlandi
hefur oft þótt við vera fjarlæg félaginu. Við
höfum talað um að
taka að okkur ein-
hver nefndarstörf en
aldrei látið verða af
því. Það er ekkert
sem mælir gegn því
að einhverjar af
nefndum félagsins
eða fulltrúar þeirra
gætu verið fyrir
norðan. Þegar þess
var farið á leit við
mig að taka að mér
formannsembættið
tók ég mér dálítinn
tíma til umhugsunar.
Astæðan fyrir því að
ég sló til var sú að
mig langaði til þess.
Ég hafði ýmsar efa-
semdir og sá fullt af
hindrunum sem
mæltu á móti því að
ég tæki þetta að mér.
Mig langaði samt til
að leggja mitt af
mörkum og taka þátt
í að þróa félagið. Þar
að auki þótti mér spennandi að takast á við
það að vera hér fyrir norðan en aðrir í stjórn-
inni búa í Reykjavík. Tæknin hjálpar okkur,
við höldum símafimdi og nýtum tölvupóstinn
mikið. Ég held jafnvel að stjórnin myndi ekk-
ert hittast oftar þótt við værum allar á sama
stað. Það skelfdi mig dálítið að taka við af
Hope. Það er erfitt að fara í eitthvað sem annar
hefur borið á herðum sér frá upphafi og Hope
hefur skipað mikinn virðingarsess í hugum fé-
lagsmanna. Þar sem ég hafði ekki reynslu af
nefndarstarfi innan félagsins var margt sem ég
þurfti að kynna mér. í stjórninni eru ýmis
verkefni sem gaman er að takast á við t.d. það
að skýra betur störf þeirra sem vinna í nefnd-
um. Við þurfum að skilgreina hvað fulltrúar
nefnda gera, hvaða starfsemi er í gangi og
hvernig ber fólkið sig að. Ennfremur er það
brýnt verkefni að koma á fót fleiri stöðugild-
um fyrir iðjuþjálfa. Við verðum að koma sjón-
armiðum okkar á
framfæri og hafa
áhrif á þróun þjón-
ustu innan heilbrigð-
iskerfisins og víðar.
Mér finnst þetta allt
mjög spennandi. Það
er bæði mikil þróun í
faginu og síðan er fé-
lagið á tímamótum
þar sem við sjáum að
það mun stækka
verulega í nánustu
framtíð, segir Kristín.
Iðjuþjálfun
heillaði
Kristín er fædd 1962
á Akureyri þar sem
hún ólst upp í stórum
systkinahópi. Að
loknum grunnskóla
fór hún í Mennta-
skólann þar í bæ og
lauk stúdentsprófi frá
félagsfræðibraut.
Hún sat í hagsmuna-
ráði nemenda og
Kristín ásamt Sveini og Huidi við Hraunsvatn í Öxnadal.
6 IÐJUÞJÁLFINN 1/2000