Tölvumál - 01.01.2007, Page 4
Óformleg
Mikil þátttaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Af þeim 91 sem tóku þátt í könnuninni voru átta starfsmenn sveitarfélaga sem
höfðu 500 eða færri íbúa. 24 voru starfsmenn sveitarfélaga með íbúafjölda upp
á 500-5000 manns. 31 voru frá sveitarfélögum með 5-15 þúsund íbúa og 28
þátttakendur komu frá sveitarfélögum sem eru með fleiri en 15 þúsund íbúa.
Þessi könnun gefur í besta falli ákveðnar vísbendingar um skoðanir og viðhorf
starfsmanna sveitarfélaga en til þess að fá áreiðanlegri niðurstöður er rétt að
gera ítarlegri könnun. Sérstaklega þyrfti að skoða betur viðhorf starfsmanna
sveitarfélaga á landsbyggðinni til rafrænnar stjórnsýslu og vefmála.
Upplýsingamiðlun og virðisaukandi þjónusta er aðalmálið
Samkvæmt könnuninni telja flestir starfsmenn sveitarfélaga vefsetur nýtast til
að veita virðisaukandi þjónustu við íbúa og bæta upplýsingamiðlun til þeirra.
Um helmingur þeirra sem tóku þátt í könnuninni líta á vefsetur sem tæki til
þess að lækka kostnað við þjónustu eða efla lýðræði og auka beina þátttöku
íbúa í ákvörðunartöku.
Mikill kostnaður við rekstur vefsetra
Árlegur kostnaður við vefsetur sveitarfélaga virðist vera
töluverður. Einn af hverjum fimm svarendum telja kostnaðinn
vera á bilinu 0-1.000.0000 kr. Sama hlutfall svarenda segja hann
vera á bilinu ein til fimm milljónir króna á ári. 16% segja kostnaðinn meiri. 40
af hverjum tíu sem voru spurðir neituðu að svara því hver kostnaðurinn er
eða sögðust ekki vita hvað hann er hár. Það er ljóst að þessi kostnaðarliður í
bókhaldi sveitarfélaga og þá sérstaklega þeirra smærri hlýtur að vega þungt.
Það er því brýnt að fjárfestingin skili sér vel til baka. Þátttakendur í könnuninni
virðast flestir telja að rekstur vefsetra skili sér í betri upplýsingamiðlun og
betri þjónustu til íbúa.
á rafrænni stjórnsýslu og vefmálum sveitarfélaga:
Bætt aðgengi og upplýsingamiðlun forgangsmál á vefjum sveitarfélaga á árinu 2007
- fjárskortur, áhugaleysi íbúa og stjórnenda meðal helstu hindrana í þróun rafrænnar
stjórnsýslu og vefmála
Í nóvember og desember 2006 stóðu Skýrslutæknifélagið og Samband íslenskra sveitarfélaga
fyrir óformlegri netkönnun á meðal starfsmanna og stjórnenda sveitarfélaga á viðhorfum
þeirra til rafrænnar þjónustu og vefmála sveitarfélaga. Könnunin var send til 79 sveitarfélaga
um allt land og innihélt hún spurningar um vefmál sveitarfélaga og rafræna stjórnsýslu á
vegum þeirra.
Jón Heiðar Þorsteinsson
Landshluti Fjöldi þátttakenda
Norðurland 4
Austurland 23
Suðurland 20
Höfuðborgarsvæðið 30
Reykjanes 6
Vesturland 3
Vestfirðir 5
Tafla 1: Þátttakendur í könnuninni eftir landshlutum
Fjöldi íbúa í sveitarfélagi Fjöldi þátttakenda
0 – 500 8
500 – 5.000 24
5.001 – 15.000 31
Fleiri en 15.000 28
Tafla 2: Þátttakendur í könnuninni eftir fjölda íbúa sveitarfélags
Tafla 3. Starfsheiti þátttakenda í könnuninni
Vefstjóri 2%
Sveitastjórnarmaður 19%
Starfsmaður sveitarfélags 77%
Annað 2%
4 | T Ö LV U M Á L
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:304