Tölvumál - 01.01.2007, Side 7
T Ö LV U M Á L | 7
Markhópar okkar eru aðallega tveir, viðskiptavinir stofnunarinnar og
heilbrigðisstarfsfólk. Einnig er mikið um að opinberir starfsmenn sæki fróðleik
á vefinn. Ætla má að gestir heimsæki síðuna aðallega í tvennum tilgangi;
annars vegar til að leita sér upplýsinga og hins vegar til að leita eftir ákveðinni
þjónustu, nema hvort tveggja sé. Dæmi um það eru eyðublöðin sem
viðskiptavinir geta sótt á vefinn og þar með sparað sér ferð í þjónustumiðstöð
eða umboð. Sum þjónustuferlin eru alveg rafræn, eins og til dæmis umsókn
um Evrópska sjúkratryggingakortið. Viðskiptavinir geta reiknað út hvað þeir
muni fá í fæðingarorlof og lífeyri og pantað bæklinga sem gefnir hafa verið
út um ýmis réttindi til almannatrygginga, auk þess sem hægt er að hlaða
bæklingunum niður. Við sem vinnum við vefinn hugsum ávallt um hag
viðskiptavina okkar og reynum að hafa hann sem gagnlegastan fyrir þá.
Við hjá TR leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar upplýsingar sem
eru reglulega endurskoðaðar og endurnýjaðar. Það þarf að hafa vakandi
auga með breytingum því gjaldskrám og reglugerðum er oft breytt. Vefurinn
er efnismikill, því auk mikilla upplýsinga um almannatryggingar eru margir
hlekkir á vefnum sem vísa í aðra opinbera vefi og gefa þar með kost á að lesa
frekar um lögin og reglurnar á bak við þessa þjónustu og forsendur hennar.
Nýr vefur var opnaður nýlega. Hann byggir á öðru vefumsjónarkerfi,
Eplica kerfinu og er frábrugðinn þeim gamla í uppsetningu og útliti. Þó
upplýsingarnar séu að sjálfsögðu þær sömu eru þær aðgengilegri. Nýi
vefurinn er unnin af starfsmönnum TR í samstarfi við Hugsmiðjuna ehf. og
auglýsingastofuna Vatikanið. Stofnunin vildi fá fram skoðanir sem flestra og
ábendingar væntanlegra notenda til hliðsjónar við þróun nýrrar heimasíðu.
Viðtal við Guðbjörgu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra
kynningarmála hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Samskiptatæki og þjónustuveita
Efnt var til vinnu með rýnihópum til að fá viðbrögð þeirra við nýja vefnum.
Rýnihóparnir voru myndaðir af fólki sem vinnur í heilbrigðiskerfinu eða í
hagsmunasamtökum þeirra sem nota þjónustu TR mikið. Starfsmenn TR
fengu einnig aðgang að nýja vefnum mánuði fyrir opnun og voru duglegir
að benda á hvað þeim fannst mega auka við eða bæta. Til að hægt sé að
þróa vefinn áfram er að sjálfsögðu mikilvægt að fá álit þeirra sem nota vefinn
reglulega.
Viðskiptavinir TR eru fjölbreytilegur hópur og ekki allir af tölvukynslóðinni
sem vaxið hefur úr grasi undanfarin ár. Þess vegna höfum við lagt okkur fram
við að bæta aðgengi með nýja vefnum sem var opnaður í byrjun desember.
Þar er leitast við að hafa auðlesnar upplýsingar sem auðvelt er að finna og
höfða til notendahópa með ólíkar þarfir. Með góðri samvinnu við notendur
vefsins stefnir TR að vottun aðgengis á næstunni. Meðal þess sem við
gerum nú til að hafa aðgengið sem best er að bjóða upp á stækkanlegt letur,
öfluga leitarvél og skilmerkilega framsetningu á texta. Eplica kerfið hentar vel
ef aðgengi er forgangsmál, sem það ætti að sjálfsögðu að vera í hverju og
einasta tilfelli. Við teljum einnig hafa tekist að hafa vefinn allan eins einfaldan
í framsetningu og kostur gafst, því vefurinn er mjög umfangsmikill.
Við sjáum ótal tækifæri til aukinnar þjónustu, bæði með opnun nýja vefsins og
með aukinni áherslu á rafræna stjórnsýslu. Stefnt er að því að auka þjónustuna
nú strax og möguleika vefsins, til dæmis með fleiri rafrænum þjónustuferlum og
netspjalli þar sem hægt er að tala við þjónustufulltrúa í þjónustumiðstöð. Þessar
breytingar munu eflaust létta álagið á símaverið og vera til þægindaauka fyrir
viðskiptavini og heilbrigðisstarfsfólk sem notar www.tr.is.
Hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR) er litið á vefinn www.tr.is sem mjög mikilvægt samskiptatæki
og þjónustuveitu. Við uppbyggingu hans er leitast við að mæta þörfum notendanna fyrir
upplýsingar og þjónustu.
Vefur TR
Viðtal: Guðmundur Pálsson
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:317