Tölvumál - 01.01.2007, Side 36

Tölvumál - 01.01.2007, Side 36
3 6 | T Ö LV U M Á L Leyfi sveitingar Lögreglan hefur með höndum útgáfu ýmissa leyfa, sem henni hefur verið falið að annast samkvæmt lögum og reglugerðum sem sett hafa verið gegnum tíðina. Til skamms tíma hélt hvert lögregluembætti utan um leyfaútgáfuna með eigin hætti. Minni embættin héldu sum hver gamaldags spjaldskrár, önnur notuðu ritvinnslu eða töfl ureikna til að skrá útgefi n leyfi , en stærri embættin höfðu sum hver ýmist útbúið sjálf eða höfðu fengið aðkeypta þjónustu til að útbúa einfalda gagnagrunna til að hafa nauðsynlega yfi rsýn yfi r útgáfu leyfanna. Rafrænt afgreiðslukerfi Við undirbúning að gerð kröfulýsingar fyrir nýjan hugbúnað til að skrá og halda utan um verkefni lögreglunnar, rannsóknarskyld verkefni, sakamál og annað sem lögreglunni ber að halda skrá um samkvæmt reglugerð um meðferð persónuupplýsinga hjá lögreglu, kom til tals að auka við verkið og láta þennan nýja hugbúnað halda utan um leyfaútgáfuna. Fljótlega var þó horfi ð frá því, þar sem mönnum þótti ekki samræmast að blanda saman gögnum varðandi umsóknir og afgreiðslu leyfa hinna almennu borgara við gögn sem varða sakamál og sakamenn. Ekki vildu menn hverfa frá því að taka upp miðlægt kerfi til leyfaútgáfu að svo komnu og möguleikar á aðkeyptum lausnum skoðaðir, en enginn þótti henta að óbreyttu. Dómsmálaráðuneytið hafði samið við VKS hf um kaup á leyfum á “Starfanda” fyrir allar undirstofnanir sínar nokkru áður. Segja má að Starfandi byggist á lögmálum gamla spjaldskrárkerfanna og einn megin kostur Starfanda er að tiltölulega auðvelt er að bæta við hann og aðlaga að hinum mismunandi þörfum notenda. Var því farið að huga að möguleikanum á því að nýta Starfanda sem grunn að leyfi sveitingakerfi fyrir lögregluna og við frekari skoðun var sýnt að kerfi ð mundi nýtast sem slíkt. Snemma árs árið 2002 var ákveðið að ráðast í þessa aðlögun á Starfanda og í hönd fór talsverð greiningar- og á vefnum undirbúningsvinna, sem að komu starfsmenn VKS, starfsmenn tölvumiðstöðvar dómsmálaráðuneytisins (TMD), starfsmenn Ríkislögreglustjórans og síðast en ekki síst fulltrúar frá stærstu lögregluembættunum á SV-horni landsins. Ákveðið var að fara af stað með útgáfu 10 algengustu leyfa sem lögreglan gefur út. Þessir starfsmenn skilgreindu þau atriði sem þurfti að skrá í kerfi ð í samræmi við lög og reglur, sem og útlit skjala, svo sem leyfi sbréfa o.s.frv. Starfræksla leyfi sveitingakerfi sins hófst í lok ársins 2002 með útgáfu leyfa fyrir innfl utning og sölu á skoteldum og strax í ársbyrjun 2003 var farið að gefa öll 10 leyfi n í nýja kerfi nu. Frá því hefur smám saman verið aukið við fjölda leyfanna og um áramótin 2005 – 2006 voru 28 mismunandi leyfi gefi n út úr kerfi nu. Megin kostirnir við að starfrækja miðlægt leyfi sveitingakerfi er samræming í vinnubrögðum og útgáfu leyfa hjá öllum lögregluembættum, sem og að gjaldtaka fyrir leyfi n er samræmd við lög um aukatekjur ríkissjóðs. Þá ber að nefna að árlega þarf að birta í opinberum skýrslum fjölda leyfa af hverri tegund sem lögreglan gefur út. Fram að því að leyfi sveitingakerfi ð var tekið í notkun, varð að skrifa bréf til hvers og eins lögregluembættis og óska eftir þessum tölum. Gat því oft liðið nokkur tími þar til búið var að afl a talna frá öllum embættum. Póstdreifi ng tekur sinn tíma og mörg embættin þurftu að handtelja afrit af útgefnum leyfum, sem hafði í för með sér að oft tók talsverðan tíma að fá heildaryfi rsýn yfi r útgáfu leyfa á landsvísu ár hvert. Í dag eru tölfræðilegar samantektir því leikur einn frá því sem var og nokkrir tugir dagsverka hefur sparast bara á þessu litla atriði. Þá er ótalið að samkvæmt reglugerð um veitinga- og gististaði ber að gefa út skrá um leyfi shafa fyrir slíka staði árlega. Með leyfi sveitingakerfi nu gafst kostur á að taka þessa skrá út rafrænt og er hún nú birt á lögregluvefnum (www.logreglan.is) og uppfærð einu sinni í mánuði, en til stendur að gera þessa birtingu sjálfvirka með öllu og uppfæra einu sinni á sólarhring. Árni E. Albertsson Aðstoðaryfi rlögregluþjónn 2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3436

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.