Tölvumál - 01.01.2007, Síða 37

Tölvumál - 01.01.2007, Síða 37
T Ö LV U M Á L | 3 7 Rafrænar umsóknir Meðan undirbúningur að leyfi sveitingakerfi nu stóð sem hæst voru miklar umræður um að hafa kerfi ð úti á “Netinu” og gera almenningi kleift að sækja um með rafrænum hætti og umsagnaraðilum á sama hátt kost á að veita sína umsögn rafrænt. Frá því var horfi ð og ástæður þess voru tvíþættar. Annars vegar þótti ekki tryggt með öllu að gögnin væru fyllilega örugg úti á “Netinu” og þrátt fyrir að gögnin væru ekki viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi laga um persónuvernd, vildi lögreglan ekki eiga það á hættu að utanaðkomandi aðilar gætu komist í gögnin, hvað þá átt við þau með einum eða öðrum hætti. Hins vegar var ástæðan sú að lögreglan vildi vera viss um að sá sem sækir um leyfi sé sannanlega sá sem hann segist vera og vó það þyngst á metunum við ákvörðunina um að reka leyfi sveitingakerfi ð inni á lokuðu neti dómsmálaráðuneytisins. Á síðasta ári ákvað dómsmálaráðuneytið, í anda stefnu ríkisstjórnarinnar undir forystu forsætisráðuneytisins, um “rafrænt Ísland”, að hefja undirbúning að því að gera almenningi kleift að sækja um hin ýmsu leyfi hjá lögreglunni um Internetið. Talsverð greiningarvinna fór fram af hálfu starfsmanna VKS og TMD, með aðkomu starfsmanna Ríkislögreglustjórans. Markmiðin með því að koma leyfi sveitingakerfi nu þannig út á “Netið” eru meðal annars að: • Almenningur geti sótt um leyfi á vefnum og sent inn meðfylgjandi gögn • Leyfi shafar geti fengið yfi rlit um öll sín leyfi og stöðu þeirra • Umsagnaraðilar geti afgreitt umsóknir á vefnum eða rafrænt í gegnum eign tölvukerfi • Umsagnarferlið og tilkynningar þar af leiðandi einfaldað eins og hægt er og gert sjálfvirkt þar sem það er hægt. Grundvöllur þess að markmiðin náist eru þau að lausnin taki tillit til öryggis, sé opin öllum borgurum, sé algjörlega gagnsæ, með mikilli samþáttun og aukinni sjálfvirkni. Þessi vinna er nú langt á veg komin og vonir standa til að hægt verði að hefja tilraunir með umsóknir um tækisfæris skemmtanaleyfi hjá nokkrum útvöldum embættum, með þátttöku sérvalinna viðskiptavina. Ferlið mun verða þannig að umsækjandi skráir sig inn á vef leyfi sveitinga hjá lögreglu, annað hvort í gegnum vefsíðu ríkisskattstjóra og auðkennir sig þannig með aðgangi þaðan, eða með rafrænum skilríkjum. Umsækjandinn skráir síðan umsókn sína, sem berst rafrænt til lögreglu hjá því embætti sem valið er sem viðtökuembætti. Sé umsóknin fullgild og engar hömlur á útgáfu leyfi s, er umsóknin samþykkt. Við það er álagning leyfi sgjaldsins send til Fjársýslu ríkisins, TBR, og þaðan til reiknistofu bankanna, sem þýðir að umsækjandinn getur þá greitt leyfi sgjaldið gegnum netbanka. Þegar staðfesting á greiðslu leyfi sgjaldsins hefur borist inn í leyfi sveitingakerfi ð fær umsækjandinn rafrænt boð um að leyfi sbréfi ð sé tilbúið á netinu og getur þá sótt það á pdf sniði með rafrænni undirritun. Þegar umsóknum og afgreiðslu tækifæris skemmtanaleyfa hefur verið komið í fastan farveg er ætlunin að halda áfram og koma öllum öðrum leyfum inn í þetta rafræna umsóknarferli. Vonir standa til þess að með þessum hætti verði komið til móts við kröfur viðskiptavina og ekki hvað síst kröfur nútímans um einföldun og tímasparnað. Þetta mun líka hafa í för með sér vinnusparnað fyrir starfsfólk lögregluembættanna, en þó nokkur hluti vinnu vegna umsókna um leyfi hefur farið í að færa inn í kerfi ð þær upplýsingar sem tilgreindar eru á umsóknareyðublöðum. Með rafrænum umsóknum verða þær upplýsingar komnar inn í kerfi ð þegar umsóknin berst rafrænt. 2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3437

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.