Tölvumál - 01.01.2007, Page 38
3 8 | T Ö LV U M Á L
Í upphafi er RÞ byggt upp á þjónustum frá Ríkisskattstjóra (RSK),
Tekjubókhaldi Fjársýslu Ríkisins (TBR) og Leyfi sveitingakerfi
Ríkislögreglustjóra (LVK). Þar að auki eru ýmsar aðrar endurnýtanlegar
þjónustur sem snúa að notendaauðkenningu og rafrænum skírteinum
útfærðar og byggðar inn í þjónustulagið. Leitast er við að nota alþjóðlega og
opna staðla eins og SOAP, SAML og WSS [1,2,3] til þess að gera tengingar
kerfa við RÞ eins auðveldar og mögulegt er. RÞ er hannað og smíðað af
Kögun hf. fyrir DKM í samstarfi við verkfræðiþjónustuna Ásverk sem sinnt
hefur ráðgjafa störfum fyrir ráðuneytið. Kögun hefur á undanförnum árum
verið samstarfsaðili ýmissa stærstu fyrirtækja landsins við innleiðingu á
þjónustumiðaðri högun hugbúnaðarkerfa.
Á haustmánuðum 2006 verður fyrsta útgáfa
af Rafrænu Þjónustulagi (RÞ) Dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins (DKM) tekin í notkun.
Rafræna Þjónustulagið er tilraunaverkefni
DKM á þjónustumiðaðri högun
upplýsingatæknimála hjá Tölvumiðstöð
DKM (TMD). Gegnum þjónustulagið eru
tölvukerfi TMD tengd við ytri notendur ásamt
tölvukerfum annarra stofnanna ríkisins.
Markmiðið er að safna saman á einn stað
forritseiningum og samræma greiðslumiðlun,
aðgangsstýringu og notendaauðkenningu.
Þannig má auka endurnýtanleika forrita sem
lækkar kostnað við ný kerfi og fl ýtir því fyrir
bættri þjónustu við borgara.
Rafrænt
Þjónustumiðuð högun
Með sífelldri aukningu á rafrænni þjónustu sem fyrirtæki bjóða
viðskiptavinum sínum, eykst jafnframt krafa þeirra um rafræna þjónustu.
Í hröðu samkeppnisumhverfi skiptir miklu máli að svara kröfunni hratt og
vel. Þróunin á viðskiptahugbúnaði er einnig sú að þjónustur eru farnar að
byggjast á ferlum sem tengjast mörgum undirliggjandi hugbúnaðarkerfum, en
eru ekki lengur byggðar á aðeins einu kerfi . Þessir tveir þættir eru driffjaðrir á
þeirri högun upplýsingatæknikerfa sem nefnd er Þjónustumiðuð högun.
Þjónustumiðuð högun (e. Service Oriented Architecture, SOA) er hugtak
sem mikið hefur verið í umræðunni síðustu 5 árin [4]. Grunnhugsunin í SOA
högun er að byggja ferli þvert á grunnkerfi á endurnýtanlegan máta úr safni af
skilgreindum þjónustum. Hægt er að hugsa sér sölu fl ugfélags á farmiðum.
Upplýsingar um sölu farmiðans þurfa að fara í fl ugbókunarkerfi ð, tekjur þurfa
að bókast í fjárhagskerfi ð, upplýsingar um kaup viðskiptavinar þurfa að
berast í viðskiptamannakerfi ð (CRM), osfrv. Það að selja fl ugmiða hefur því
áhrif á mörg undirliggjandi grunnkerfi fyrirtækisins.
Markmið SOA högunar er að auka endurnýtanleika í forritum, með því að
byggja kerfi upp á sjálfstæðum, vel skilgreindum forritseiningum (þjónustum)
sem geta verið hýstar á aðskildum þjónum. Þessar þjónustur byggja
yfi rleitt á SOAP staðlinum og eru nefndar vefþjónustur. Með því að búa til
vefþjónustu sem framkvæmir ákveðna viðskiptaaðgerð með tengingum í
undirliggjandi grunnkerfi , gefst möguleiki á að nýta þjónustuna í margar
og misjafnar lausnir. Þannig geta viðskiptaaðilar tengt tölvukerfi sín beint
saman og aukið þannig sjálfvirkt gagnafl æði innan sem utan fyrirtækja. Ef
aftur er tekið dæmið um sölu fl ugfélags á farmiða, þá er hægt að hugsa sér
að fl ugfélagið myndi búa til vefþjónustu sem myndi hafa það hlutverk að bóka
sölu á farmiða. Vefþjónustan myndi koma upplýsingunum til grunnkerfa.
Þessa vefþjónustu mætti svo margnýta. Tengja mætti hana beint við ytri vef
fl ugfélagsins til þess að gera væntanlegum farþegum fært að bóka sig beint
gegnum netið. Einnig gæti fl ugfélagið veitt stærri viðskiptavinum aðgengi
beint að vefþjónustunni ef þeir vilja byggja upp kerfi sem bjóða upp á að
bóka fl ug.
Uppbygging RÞ
Í meginatriðum er rafræna þjónustulagið byggt upp á þriggja laga SOA
Þorvarður Sveinsson
Verkfræðingur hjá Kögun hf.
2.tbl-31.arg.indd 14.1.2007, 22:3438