Tölvumál - 01.10.2012, Side 9
9
Python, C++) annars vegar og gagnagrunnurinn (T-SQL) hins
vegar en til viðbótar eru margs konar vefþjónustur (mestmegnis
C#), eins og Community Website, Wiki, Forums, Character Portal/
Gate, API, Voice, Search, Patching Service og Image Server, sem
sumar eru notaðar af leikjaforritinu og -þjóninum. Sumar eru
þjónustur fyrir spilara tengdar leiknum sem eru hluti af upplifuninni
af því að spila EVE og vera meðlimur í EVE samfélaginu.
Leikjaforritið (biðlari, e. client) er sá hluti sem snýr beint að
notandanum og sýnir umhverfi leiksins, tekur við skipunum frá
notandanum og sendir til leikjaþjónsins (miðlari, e. server) og er
aðalgáttin inn í EVE Online heiminn.
Á leikjaþjóninum fer fram keyrsla á hermunarlíkaninu sem er
sýndarheimurinn, meðhöndlun á gögnum frá öllum leikjaforritunum
sem tengd eru, meðhöndlun á gögnum frá vefsvæðum EVE
Online, aðgangsstýringar notenda og fleira.
Þriðji hluti kerfisins er svo vefhlutinn sem er skrifaður til að bjóða
uppá spjallsvæði fyrir EVE Online, EVE Gate sem er samfélagssíða
fyrir leikmenn, API tengingu sem veitir aðgang að hrágögnum úr
EVE sem að spilurum er svo frjálst að byggja tól fyrir (svo sem fyrir
farsíma), EVE Wiki síðu og margt fleira.
Það kann að hljóma sem undarleg ákvörðun að skrifa tölvuleik í
Python, því Python er túlkað mál og hægvirkara en þýdd mál og
grafískur tölvuleikur gerir töluvert miklar performance kröfur, en á
móti kemur að mun auðveldara er að skrifa hugbúnað í Python og
þurfa ekki að hafa áhyggjur af mörgum atriðum sem þarf að huga
að í C++, eða mun minni áhyggjur, eins og minnismeðhöndlun.
Python er notuð fyrir þá vinnslu sem þarf ekki að vera hröð (þ.e.
má gerast á tímabili sem mælist í hundruðum millisekúndna) en
C++ er notað fyrir þá vinnslu sem þarf að vera mjög hröð (þ.e.
gerist á millisekúndum eða tugum millisekúndum). T.d. er
grafíkvélin og hermunin skrifuð í C++ en almenn leikjavirkni í
Python.
miðlaRatölvan (e. seRveR)
Leikjaþjónninn sem keyrir EVE Online heiminn er engin smásmíði.
Í rauninni er rangt að tala um eina tölvu, heldur eru það nærri 230
hnúður (e. nodes) sem sjá um alla vinnsluna. Þessar 230 hnúður
skiptast í 20 hnúður sem gera ekkert annað en að beina
netumferðinni á leikjaþjóninum á rétta staði og 210 hnúður sem
keyra hermun fyrir hin mismunandi sólkerfi og allar þjónustur sem
leikurinn þarf (aðrar en vefþjónustur). Líkt og með aðrar þjónustur
á internetinu, eru öflug varnarkerfi sem aðskilja sjálft internetið frá
EVE Online heiminum. Þessi varnarkerfi hafa oft sannað sig á
liðnum árum þegar óprúttnir aðilar hafa reynt, án mikils árangurs,
að raska þjónustu CCP með ýmsum aðferðum.
Tölvurnar (nánar tiltekið blöðin (e. blades)) sem CCP notar eru
annars vegar með tvo 2ja kjarna 3,33 GHz örgjörva hver og 32 GB
minni (hermun og þjónustur) og hins vegar með tvo 4ra kjarna 3,6
GHz örgjörva hver og 24 GB minni (beinar), sem allir eru á sama
staðarneti. Einnig er vél fyrir sérstaka atburði, eins og stóra
flotabardaga spilara, með tveimur 4.4 GHz örgjörvum og 65 GB
minni. Hvert blað keyrir 4-5 hnúður.
Gagnagrunnur EVE Online er keyrður á tveimur tölvum (e. active/
passive MSSQL cluster), hvor þeirra með tvo 8 kjarna örgjörva
(samtals 32 sýndar örgjörvar með hyper-threading) og 512 GB
minni. Diskastæðan er með 1,8 TB SSD (e. solid state drive) harða
diska og 3,5 TB SAS diska. Þessar vélar eru svo tengdar hvor
annarri með ljósleiðara til að tryggja hámarks gagnaflutning.
samantekt
Hönnun og gerð tölvuleikja hefur tekið miklum framförum á síðustu
áratugum. Ekki hefur einungis stærð og flækjustig þeirra aukist
heldur hefur tölvuleikjagerð færst með ýmsu móti í átt frá vöru-
hugsun yfir í þjónustu-hugsun, þ.e.a.s. fæstir nútíma tölvuleikir eru
gefnir út eins og venjulega vara, heldur er þeim fylgt eftir með
viðbótum og viðhaldi. Fjölspilunarleikir eru hannaðir með margra ára
notkun í huga og einstaklings- og hópleikir eru í auknu mæli að
færast þangað líka. Þessi þróun kallar á annan hugsunarhátt í
sambandi við tölvuleiki, bæði hjá fyrirtækjum sem framleiða þá og
hjá notendum þeirra. Með fjölgun tækja sem geta tengst Internetinu
hefur tölvuleikjaiðnaðurinn meiri möguleika á að veita notendum
sínum aðgang að vörum og þjónustu sinni, stækkað markhópa sína
og rutt sér til rúms á sviðum sem hingað til hafa ekki þótt henta.
Þess má til gamans geta í lokin að iðnaðurinn í kringum tölvuleiki
hefur vaxið gríðarlega og er nú orðinn stærri en kvikmynda-
iðnaðurinn eða tónlistariðnaðurinn (í sitt hvoru lagi) og er því spáð
að hann verði stærri en þeir tveir til samans áður en langt um líður.
EVE er ekki eitt forrit heldur stórt kerfi, sem samanstendur
af mörgum forritum og þjónustum, sem að mestu leyti
eru skrifuð í CCP Stackless Python (sérútgáfa CCP af
Stackless Python sem aftur er útgáfa af Python með
míkróþráðum), T-SQL, C++ og C#.