Tölvumál - 01.10.2012, Síða 18
18
Námsleikjavefurinn paxel123.com með leikjum fyrir leik- og
grunnskólabörn hefur verið á internetinu í rúmlega eitt ár. Leikirnir
eru flestir byggðir á reynslu minni í starfi mínu sem leikskólakennari
og síðar leikskólastjóri í leikskólanum Nóaborg í Reykjavík.
Leikskólinn Nóaborg hefur frá árinu 1999 haft stærðfræði og
sýnilegt ritmál að leiðarljósi í starfinu með börnunum. Veturinn
1999-2000 og 2001-2002 vann ég þróunarverkefni sem tengdust
þessum leiðarljósum auk þess að gefa út hugmyndabanka með
verkefnum og viðfangsefnum sem þeim tengdust. Þann tíma sem
ég vann þessi þróunarverkefni útbjó ég fjöldann allan af borðspilum,
leikjum og öðrum viðfangsefnum sem öll höfðu það að markmiði
að örva læsi barnanna í stærðfræði og móðurmáli. Sum þessara
viðfangsefna slógu í gegn hjá börnunum og núna árið 2012 eru
þau enn í notkun og vinsæl.
Þegar ég varð þess vör að enn væri verið að leika með efni sem
var búið til fyrir meira en áratug síðan fór ég að hugleiða hvernig
önnur börn gætu notið þessara viðfangsefna. Ég hugsaði málið
fram og til baka og fékk margar misgóðar hugmyndir. Að endingu
datt mér í hug að gaman væri að útbúa tölvuleiki úr þessum
verkefnum, það gæfi möguleika á meiri fjölbreytni. Þegar ég var
komin að þeirri niðurstöðu að tölvuleikir væru málið þá tók við
hugmyndavinna að finna út úr því hvernig það yrði útfært. Það var
hægt að gefa út leikjadisk, hægt að setja á netið og selja aðgang,
setja á netið og hafa auglýsingar, gera Apps leiki o.s.frv. Að
endingu datt ég niður á það að gera námsleikjasíðu sem væri
ókeypis, með engum auglýsingum og engum upplýsingum yrði
safnað um notendur því mér finnst mikilvægt að börn geti leikið og
lært á netinu í öruggu umhverfi. Þessi síða var hugsuð þannig að
hún yrði lifandi og smátt og smátt myndu bætast við leikir.
Markmiðið væri að örva læsi barna í móðurmáli og stærðfræði í
gegnum tölvuleiki.
Í upphafi var hugsunin um að gera þessa síðu eingöngu fyrir
íslensk leik- og grunnskólabörn og því var byrjað á því að sækja
um styrk hjá Þróunarsjóði námsgagna sem er sjóður hjá Mennta-
og menningarmálaráðuneytinu en ekki hefur fengist styrkur þar.
Áfram var sótt í aðra sjóð s.s. Nordplus-Nordiske sprog en
Nordplus hefur umsjón með Menntaáætlun Nordplus auk þess að
veita ráðgjöf og aðstoð um önnur verkefni á sviði menntamála er
varða Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin. Í lok árs 2010 fékkst
styrkur þaðan til að gera paxel123.com á sænsku fyrir
sænskumælandi börn. Kennarasamband Íslands, Barnavinafélagið
sumargjöf og Menntamálaráðuneytið styrktu svo verkefnið þannig
að vefurinn varð líka á ensku og íslensku.
Á meðan síðan var í þróun fékk ég til liðs við mig kennara í nokkrum
leik- og grunnskólum víðsvegar á Íslandi og í Svíþjóð. Þeirra
hlutverk var að prófa leikina á meðan þeir voru í þróun með sínum
nemendum og koma með athugasemdir og ábendingar um hvað
var að virka og hvað ekki. Það var skemmtilegt samstarf og
hjálplegt. Sérstaklega var skemmtilegt að fá athugasemdir frá
krökkunum sjálfum sem sumir hverjir tóku hlutverk sitt í verkefninu
mjög alvarlega. Vorið 2011 var námsleikjavefurinn paxel123.com
formlega opnaður með þremur leikjum á þremur fyrrgreindum
tungumálum. Sumarið og haustið 2011 voru gerðar ýmsar
endurbætur á vefnum, leikirnir þýddir á fleiri tungumál og fleiri
leikjum bætt við enda hafði Nordplus veitt verkefninu styrk öðru
sinni. Þegar þetta er ritað er síðan á sjö tungumálum og leikirnir eru
sjö. Nýverið veitti Nordplus paxel123.com þriðja styrkinn og í
haust og vetur munu bætast við þrír nýir leikir, leikirnir verða þýddir
á finnsku og hljóð verða sett á nokkra leiki þannig að hægt verður
að hlusta á ýmis orð á íslensku, norsku, dönsku og sænsku.
Leikirnir á paxel123.com henta vel elstu börnum leikskólans og
yngri börnum grunnskólans auk þess sem þeir geta nýst vel við
sérkennslu þ.m.t. við kennslu tvítyngdra barna. Flestir leikirnir eru í
þremur mismunandi erfiðleikastigum og því hægt að spila þá í
ýmsum útgáfum. Einfaldleiki og litagleði einkennir leikina og
tónlistarstefin sem heyrast með leikjunum eru sérstaklega samin
fyrir paxel123.com af atvinnutónlistarmönnum.
Börn verða sífellt yngri þegar þau fara að nota tölvur til að leika og
læra og þau eru fljótt að tileinka sér internetið. Þrátt fyrir að
internetið opni fyrir þeim nýjan og áður óþekktan heim þá eru þar
ýmsar freistingar og hættur sem ber að varast. Gylliboð og oft á
tíðum óviðeigandi auglýsingar birtast fyrirvaralaust á skjánum og
það er freistandi að smella á eitthvað fallegt sem blikkar. Hlutverk
okkar fullorðna fólksins er að kenna börnunum að nota internetið
á eins öruggan hátt og hægt er og við eigum að leiðbeina þeim inn
á leikjasíður sem eru eins öruggar og kostur er. SAFT á Íslandi er
vakningarátak um örugga netnotkun og er hluti af áætlun ESB um
örugga netnotkun. Þar sem paxel123.com fellur vel að reglum
ESB um netöryggi hefur verið samstarf á milli SAFT og paxel123.
com frá upphafi og systursamtök SAFT í Svíþjóð og Finnlandi eru
formlegir samstarfsaðilar við síðasta Nordplus styrk. SAFT hefur
kynnt paxel123.com á fundum og ráðstefnum víða um Evrópu og
hefur síðan fengið góð viðbrögð. Einn leikur á paxel123.com er
unninn í samvinnu við SAFT og gengur sá leikur út á það að sýna
börnunum rétta hegðun á internetinu í gegnum myndræn skilaboð.
Markviss kynning hefur ekki farið fram á paxel123.com þar sem
ekki er fjármagn til auglýsinga. Þó hefur vefurinn fengið smá
kynningu í Danmörku og hefur sú kynning skilað því að Danir eru
boRðspil og önnuR
viðFangseFni veRða að
tölvuleikjasíðu FyRiR
böRn
Anna Margrét Ólafsdóttir. leikskólastjóri