Tölvumál - 01.10.2012, Blaðsíða 28
28
Upplýsingatæknimessan var haldin í annað sinn fimmtu-
daginn 9. febrúar á Grand hóteli í formi ráðstefnu fyrir fagfólk
í upplýsingatækni ásamt sýningu og örkynningum sem var opinn
öllum. Upplýsingatækniverðlaun Ský voru einnig veitt á UT-
messunni.
Daganna á undan voru nokkrir viðburðir í Háskólanum í Reykjavík
sem höfðuðu til almennings eins og kynning á forritun fyrir 9-12
ára börn ásamt fyrirlestri um leikjaforritun í C++.
Tilgangur UT-messunnar er að vekja athygli á mikilvægi upp lýs-
inga tækninnar og áhrifum hennar á einstaklinga, fyrirtæki og
íslenskt samfélag. Markmiðið er að sjá marktæka fjölgun
nemenda sem velja tæknigreinar í háskólum landsins. Einnig
viljum vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi
hennar á öllum sviðum daglegs lífs.
Að UT-messunni 2012 stóð Skýrslutæknifélagið í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Samtök iðnaðarins og
Microsoft Íslandi.
Þátttaka sýningaraðila er mikilvæg og er skemmst frá því að
segja að áhuginn á sýningarplássi var framar öllum vonum og
sprengdi utan af sér það mikla rými sem í boði var í Miðgarði,
glerhýsinu á Grand hóteli. Það er því ljóst að huga þarf að enn
stærri húsa kynnum fyrir næstu UTmessu.
Sýnendur voru eftirfarandi fyrirtæki og samtök í stafrósröð:
Advan ia–A IESEC-App l icon-Bas is-Be lg ingur-ELDEY
hugbúnaður-Epli.is-FUT-Green Qloud-Háskóli Íslands-Háskólinn
í Reykjavík-Hugsmiðjan-Inexchange-Íbúar-Íslandspóstur-
Landsbankinn-Locatify-Maritech-Mentor-Microsoft á Íslandi-
Nýherji-Omnis-Opin kerfi-Promennt -Reiknistofa bankanna-
Samtök iðnaðarins-Skema-Skjal þýðingastofa-Ský-Stokkur
Software-TM Software-Trackwell-Tölvumiðlun-Þekking-
Öldungadeild Ský
Ráðstefnan tókst einstaklega vel og virtust þær þrjár línur sem
keyrðar voru samhliða höfða vel til ráðstefnugesta sem voru
duglegir að flakka á milli ráðstefnusala. Um 400 ráðstefnugestir
voru á staðnum. Þar sem sýningarsvæðið var opið öllum var
gaman að sjá að fjöldi fólks í UT geiranum mættu til viðbótar yfir
daginn og hitti kollega sína þar. Því miður setti veðrið aðeins strik
í reikninginn í þetta sinn og ekki mættu jafnmargir utan UT
geirans á sýninguna og örkynningarnar. Það verður því hugað að
öðru fyrirkomulagi sem hentar almenningi á UTmessunni 2013.
Undirbúningur fyrir UTmessuna 2013 er farin af stað og er það
von okkar að enn fleiri taki þátt í henni en þeirri fyrstu og við
getum þannig sýnt Íslendingum hve mikill hugur er í fólki í UT
geiranum.
utmessan 2012