Tölvumál - 01.10.2012, Page 38
38
eF Haldið væRi Rétt Á spöðunum
Með því að efla tæknimenntun á grunn- og framhaldsskólastigi
munum við styrkja stoðir íslensks atvinnulífs og draga úr líkum á
því að íslensk fyrirtæki þurfi að flytjast úr landi sökum skorts á
tæknimenntuðu starfsfólki. Í dag skiptast þjóðartekjur milli fjögurra
þátta; sjávarútvegs, stóriðju, ferðaiðnaðar og annað. Undir þetta
“annað” fellur hugverkið sem er ekki bundið við auðlindir og getur
stækkað svo lengi sem mannafli og þekkingin er til staðar. Það er
akkúrat þarna sem við getum komið Íslandi á kortið sem frumkvöðli
í tækni, tæknimenntun og rannsóknum. Í skýrslu Porter, Delgado-
Garcia, Ketels og Stern (2008) um samkeppnisstuðul er fjallað um
mikilvægi þekkingar og að þekking sé einn stærsti lykilþátturinn í
framleiðini og þar af leiðandi hagvexti þjóða. Endalaus niðurskurður
í menntakerfinu er ekki lausnin. Það væri mun gáfulegra að byggja
upp menntakerfið og auka þannig hagvöxt í þjóðfélaginu til
framtíðar.
FRamlag skema
Skema ehf. er eins árs sprotafyrirtæki sem stofnað var í framhaldinu
af því að hugmyndin „Börnin í Undralandi Tölvuleikjanna“ hlaut
nýsköpunarverðlaunin Fræ ársins 2011. Skema vinnur að því að
byggja upp menntun í takt við tækniþróun og hefur fyrirtækið verið
að móta aðferðafræði byggða á rannsóknum í sálfræði, kennslu-
fræði og tæknifræði til að kenna ungu fólki frá sex ára aldri að
forrita. Til að ná fram vitundarvakningu og að koma til móts við
þarfir nútímabarna þá stendur Skema fyrir námskeiðum fyrir yngri
kynslóðina í leikjaforritun. Á námskeiðunum frá þátttakendur
kennslu og innsýn inn í möguleika tækninnar á skemmtilegan og
áhugaverðan máta. Kennslan byggir á leikjaforritun auk þess sem
fléttað er inn í kennsluna hugarkortum og flæðiritum. Unnið er að
því að innleiða kennslu í forritun í grunnskóla landsins auk þess
sem fyrirtækið stendur fyrir rannsóknum á þeim áhrifum sem
kennsla í forritun hefur á hugrænan þroska, líðan, sjálfsmat og
getu í öðrum námsgreinum. Eftir frumrannsókn í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík og Vífilsskóla Hjallastefnunnar fengust
vísbendingar þess efnis að kennsla í forritun með aðferðafræði
Skema hefði jákvæð áhrif á getu níu ára drengja í stærðfræði og
jákvæð áhrif á getu beggja kynja í íslensku. Auk þessa hefur
athugun starfsfólks Skema og eftirfarandi ummæli foreldra gefið
vísbendingar um uppbyggingu sjálfsmats og líðan og þá
sérstaklega hjá börnum með greiningar líkt og ADHD, asperger,
einhverfu og lesblindu.
„Victor er búinn að vera í skýjunum með þetta námskeið, þvílík
ánægja hjá honum. Hann fann í gær drauma starfið, sagði með
bros á vör á leiðinni heim „þegar ég verð stór ætla ég að vinna hjá
CCP“. Takk fyrir að halda svona skemmtilegt og fróðlegt námskeið.
Kveðja, Kristín“
„Sonur minn, sem er 10 ára hress einhverfur strákur, tók því
fagnandi þegar ég bauð honum að fara á tölvunámskeið í sumar.
Ég hafði lengi leitað að tölvunámskeiðum fyrir börn því tölvur eru
aðaláhugamál sonar míns og hans helsti styrkleiki. Sonur minn
hafði verið á alls konar íþróttaog leikjarnámskeiðum á sumrin en
fannst þau bæði löng og leiðinleg. Þegar ég náði í hann eftir fyrsta
tímann á tölvunámskeiðinu þá sagði hann við mig „þetta var bara
eins og einn klukkutími, ég hefði sko viljað vera lengur“. Honum
fannst námskeiðið virkilega skemmtilegt og áhugavert. Það
frábærasta við námskeiðið var að hann hafði frumkvæði að því
sjálfur að æfa sig á kvöldin og síðan tók hann það upp hjá sjálfum
sér að bjóða öfum sínum og ömmum í kaffiboð til þess að sýna
hvað hann hefði gert á námskeiðinu. Það er mjög sjaldgæft að
börn á einhverfurófinu sýni frumkvæði þannig að það jók enn frekar
á gleði okkar foreldrana með námskeiðið. Nú bíðum við bara eftir
framhaldsnámskeiði svo sköpunargleði sonar okkar geti haldið
áfram að njóta sín. Kveðja – Helga”
Til að mæta þörfum atvinnulífsins fljótt og vel, er nauðsynlegt að
vinna með framhalds- og háskólum samhliða grunnskólunum. Til
að svara sem fyrst þessari miklu eftirspurn á markaði eftir tölvu- og
tæknimenntuðu fólki var sett af stað samstarfsverkefnið „Forskot
til Framtíðar“. Það er samstarfsverkefni Skema, Háskólans í
Reykjavík og Fjölbrautarskólans í Breiðholti (FB) og stutt af
Tækniþróunarsjóð Rannís. Fyrsta skrefið er að breyta aðferðafræði
við undirbúning í forritun fyrir nýja nemendur sem eru að hefja nám
í tæknigreinum við HR samhliða því að hefja kennslu í forritun í FB.
Rannsóknir hafa sýnt að þegar nemendur byrja í tölvunarfræði
finnst þeim oft erfitt að ná tökum á forritun. Af því leiðir að mikið er
um að nemendur gefist upp á fyrsta ári í námi í tölvunarfræðum
(Ásrún Matthiasdóttir og Hrafn J. Geirsson, 2011, Dunican, 2002;
Jenkins, 2002; McCracken o.fl., 2001; Proulx, 2000). Jenkins
(2002) telur vera nokkrar ástæður fyrir þessu brottfalli og þessum
erfiðleikum sem nemendur lenda í. Í fyrsta lagi þá telur hann að
Mynd 1