Tölvumál - 01.10.2013, Page 5

Tölvumál - 01.10.2013, Page 5
5 • Skýrslugerð, starfs- og færnigreining. Mannauðskerfi sem bjóða upp á bæði fastar skýrslur og lifandi greiningarvirkni gera stjórnendum kleift að mæla hvort stefnu félagsins og starfmanna sé framfylgt í takt við áætlanir. Gott mannauðskerfi breytir hráum gögnum í aðgengilegar upplýsingar sem birtast t.d. í mælaborði stjórnandans í auðlæsilegum ritum og myndum. Upplýsingarnar úr mannauðskerfinu eru gríðarlega mikilvægar þegar kemur að margvíslegum ákvörðunum stjórnenda, og ætti kerfið bæði að geta gefið gott yfirlit yfir heildarmyndina og boðið upp á að grafa sig niður í smáatriðin. Þó svo að þessi listi sé engan veginn tæmandi sýnir hann að gerðar eru miklar kröfur til góðra mannauðskerfa úr ólíkum áttum innan hvers fyrirtækis. HVerjir æTTu að noTa mannauðSkerfi? Eins og á við um önnur kerfi þarf að skoða hvort mannauðskerfi henti stærð og gerð fyrirtækisins. Segja má að því stærra sem fyrirtækið er, því meiri hagræðing náist með mannauðskerfi. Fyrirtæki sem hafa um eða undir 30 launþega eru yfirleitt með einfalt launakerfi og þá getur Excel eða eining í Outlook eða Lotus Notes dugað til þess að halda utan um önnur starfsmannamál. Oftar en ekki eru starfsmannamálin hjá fyrirtækjum af þessari stærðargráðu í verkahring framkvæmdastjóra eða fjármálastjóra sem sinna þeim ásamt öðrum verkum, en um leið og starfsmenn eru fleiri og fyrirtækið hefur starfsmannastjóra þá má mannauðskerfi ekki vanta. fjárHagSlegur áVinningur Að sjálfsögðu eru mannauðskerfi fjárfesting vegna kostnaðar við uppsetningu og innleiðingu, og reksturs og þjónustu. Því er mikilvægt að skoða hvar kerfið skilar fjárhagslegum ávinningi. • Utanumhald starfsmanna einfaldast þar sem sjálfsafgreiðsla starfsmanna eykst. Tími mannauðsstjórans losnar í aðra hluti þar sem kraftar hans og sérþekking nýtast betur til að ná fram betri framleiðni og árangri fyrirtækisins. • Minni villuhætta í mikilvægum upplýsingum, þar sem margskráningar eru úr sögunni. Þetta sparar dýrmætan tíma sem annars væri eytt í að hreinsa upp villur eða taka á afleiðingum sem oft geta verið kostnaðarsamar. • Utanumhald um ráðningaferlið frá A til Ö á þægilegan máta flýtir fyrir ráðningu nýrra starfsmanna, auðveldar birtingu auglýsinga um laus störf á vef fyrirtækisins, og einfaldar vinnslu og samanburð umsóknanna. Þannig sparast verðmætur tími stjórnenda, mannauðsstjóra og vefstjóra, heildarkostnaður við ráðningu starfsmannsins lækkar og líkur aukast á að besti umsækjandinn fáist í starfið. • Sjálfvirk svörun til umsækjenda á netinu tryggir að umsækjendur gleymast ekki einhvers staðar í ferlinu. Umsækjendur líta á ófullnægjandi svörun sem vanvirðingu við þá, og þannig varpar samskiptaleysið skugga á orðspor fyrirtækisins, sem getur haft víðtækari áhrif. Til dæmis gætu vinsældir þess sem vinnuveitanda dalað, og þar með verður erfiðara að fá bestu starfsmennina í starfið. • Vefþjónustur sem lesa úr mannauðskerfinu og tryggja að t.d. starfsmannalistinn á innri og/eða ytri vefnum er ávallt réttur. Þannig sparast tími á skiptiborði, leit að tengiliðaupplýsingum verður einfaldari og hætta minnkar á að mikilvægur póstur sé sendur á starfsmann sem er hættur eða hefur fært sig um set. Samskipti sem þannig fara forgörðum geta leitt af sér óánægju hjá viðskiptavini eða glötuð viðskiptatækifæri. • Samanburður árangursmælinga og starfsmanna kostnaðar getur varpað ljósi á hverjir bestu starfsmenn fyrirtækisins eru og hverjir eru ekki að skila nægum árangri miðað við kostnað við laun, þekkingaröflun og annað slíkt. Þannig má stýra mannaflanum betur, efla viðleitni til að halda í gott fólk, og finna þeim betra hlutverk sem ef til vill eru réttir menn á röngum stað. • Viðskiptagreind gefur til dæmis yfirsýn yfir launaþróun eða fjölda umsókna eftir árum eða deildum. Þannig má skoða hvort laun fylgi árangri deildarinnar, eða hvort verið sé að auglýsa eftir starfsfólki á réttum miðlum og á réttan hátt. Í þessum tilvikum og öðrum svipuðum, sér stjórnandinn fljótt hvort fjármunum sé best varið. • Gagnaöryggi er fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra mikilvægt. Slakt gagnaöryggi getur haft bæði fjárhagslegar og lagalegar afleiðingar, en lög um persónuvernd krefjast þess að fyrirtæki verndi persónuupplýsingar starfsmanna sinna. Betr i aðgangsstýringar í fullbúnu, vel vörðu mannauðskerfi tryggja öryggi gagnanna mun betur en þegar ráðningasamningar, áminningar, launasamtöl og önnur viðkvæm skjöl liggja á víð og dreif á sameiginlegum tölvudrifum eða skjalaskápum. Söguskráning gerir svo umsjónarmanni mögulegt að kanna hver hefur skoðað eða breytt hvaða gögnum og hvenær. HorfT Til framTíðar Mannauðskerfi er nauðsynlegt tól fyrir fyrirtæki sem vilja vaxa og bæta árangur sinn í þeirri hörðu samkeppni sem ríkir í dag, ekki einungis um markaðshlutdeild eða fjárhagslegan árangur, heldur einnig um besta starfsfólkið. Öflugur starfsmannahópur er enda einn mikilvægasti þátturinn í því að framleiða vöru eða bjóða þjónustu í mestu gæðum með hagkvæmasta hætti. Eins og fram hefur komið gera sífellt fleiri stjórnendur og starfsmenn kröfu um að slíkt kerfi sé í notkun, með mismunandi miklum einingum þó. Fyrirséð er að með aukinni tækniþróun gefist tækifæri til margvíslegrar hagræðingar og aukinna sóknarfæra með viðbótum á virkni og notkun mannauðskerfa. Sem dæmi má nefna að færa margvísleg samskipti innan fyrirtækisins inn í kerfið, svo hægt sé að greina og nýta þau til þekkingardreifingar og -vörslu. Jafnvel mætti hugsa sér að útfæra slík samskipti á svipaðan hátt og samskiptamiðla á borð við Facebook og LinkedIn, svo notendur séu enn líklegri til að vera virkir þátttakendur í framleiðslu og skráningu þekkingarinnar. Nú þegar eru ráðningarkerfi farin að nýta sér slíka samskiptamiðla í miklum mæli til að ná til nýrra starfsmanna. Til dæmis býður veflæga ráðningakerfið The Resumator viðskiptavinum sínum upp á að deila atvinnuauglýsingum sínum á Facebook, LinkedIn og Twitter á auðveldan hátt: með tveimur músarsmellum. Kerfið fylgist svo með vinsældum auglýsinganna á samskipta miðlunum og hvaða umsækjendur sækja um starfið eftir að skoða auglýsinguna á hvaða miðli. Ráðningarkerfið Ascendify leyfir starfsmönnum viðskiptavina Dæmi um mælaborð

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.