Tölvumál - 01.10.2013, Síða 8

Tölvumál - 01.10.2013, Síða 8
8 Framþróun á rafrænni tækni og þjónustu fleygir ört fram. Ýmsum daglegum erindum sem áður var sinnt í gegnum persónuleg samskipti eru í dag leyst með gagnvirkum rafrænum hætti. Viðvera á staðnum í eigin persónu er ekki lengur forsenda fyrir veitta þjónustu. Með rafrænni tækni er þjónustan færð til viðskiptavinarins sjálfs. Gagnvirknin skapar óendanlega marga möguleika sem eru enn að þróast meðal annars með tilkomu snjalltækninnar. Hlutverk neytenda er að breytast, sjálfsafgreiðslan er orðin almennari. Íslendingar eru taldir vera framarlega á sviði tölvu- og netnotkunar og aðgengi fólks að tölvum er gott. Neytendur nútímans geta nýtt sé margvíslega þjónustu með símann einan að vopni; þeir geta til að mynda pantað sér miða í leikhús, bókað ferð til útlanda og sinnt helstu bankaviðskiptum og erindum innan stjórnsýslunnar . Þrátt fyrir þessa gríðarlegu umbyltingu hefur hún enn ekki náð að festa sig í sessi innan heilbrigðisþjónustunnar og þá sérstaklega þess sviðs sem er snýr að sjálfsafgreiðslu viðskiptavinarins. Aðgangur einstaklinga að eigin heilsufarsupplýsingum í gegnum rafræna gátt er enn í þróun hér á landi. Víða erlendis hefur slík þjónusta verið í notkun um árabil. Með notkun á rafrænni sjúkraskrá fær einstaklingur aðgang að allri sinni sjúkrasögu og getur stýrt því hvenær hann notar þjónustuna. Ábyrgðin færist því að einhverju leyti frá heilbrigðisstarfsmönnum til einstaklinganna sjálfra. Með gagnvirkri rafrænni sjúkraskrá er átt við kerfi eða app þar sem einstaklingur getur með einföldum hætti átt samskipti við heilsugæsluna, ljósmóður eða aðra sérfræðinga, pantað tíma rafrænt, sent upplýsingar, fengið gögn, fengið svör við einföldum fyrirspurnum og safnað saman öllum upplýsingum er hann varðar á einn stað. Kerfi af þessu tagi mætti helst líkja við heimabanka. Viðkvæmni fyrir öryggi persónupplýsinga er oftast nefnt sem hindrun þegar innleiðing rafrænnar sjúkraskrár ber á góma. Það skiptir miklu máli með hvaða hætti aðgangur að svo viðkvæmum persónulegum upplýsingum um heilsufar er og því ber stjórnvöldum að tryggja öryggi þeirra við frekari þróun á rafrænni sjúkraskrá. Umræðan um þetta málefni er ekki nýtt af nálinni, og hefur þróun á rafrænni sjúkraskrá ver‘i í vinnslu í mörg ár en hefur enn sem komið er ekki náð fótfestu í kerfinu og fyrir því eru margvíslegar ástæður, ekki síst pólitískar. Verkefnið er nú í höndum landlæknisembættisins. Víða erlendis er þessi þróun komin langt á veg og menn eru á einu máli um að rafræn sjúkraskrá er það sem koma skal og að hún efli heilbrigðisþjónustuna og styrki einstaklinga til sjálfsþjónustu og auki ábyrgðarkennd þeirra, ásamt því að hvetja til sjálfsábyrgðar (Pratt, Unruh, Civan, Skeels 2006). Áreiðanleiki sjúkrasögu og réttmæti hennar er mikilvæg bæði fyrir sjúkling og heilbrigðisstarfsmann, því áreiðanlegri sem upplýsingarnar eru því meiri líkur eru á viðeigandi og réttri meðferð. Það hefur komið sjúklingum sem glíma við erfið veikindi til góða að hafa allar upplýsingar á einum stað. Það eykur yfirsýn og minnkar líkur á mistökum við margþætta meðferð (Pratt, ofl.2006). Notendur rafrænnar tækni í dag hafa yfir að búa færni og þekkingu til að afla upplýsinga. Þeir gera kröfur um virka þátttöku í því þjónustuferli sem þeir eru þátttakendur í. Rannsóknir hafa sýnt að notendur með aðgang að heilbrigðis- upplýsingum um sjálfa sig eru skilningsríkari og ábyrgari gagnvart eigin heilsu. Markmiðið með rafrænni þjónustu á heilbrigðissviði ætti að vera viðbót við þjónustu en ekki til að skipta henni út (Gyða Halldórsdóttir og Ásta St. Thoroddssen,2008). Upplýsingar um eigið heilsufar eru dýrmætar og miklu skiptir að tryggja vel með hvaða hætti unnið er með þær og hvernig þær eru gerðar aðgengilegar (Chanabahi ofl. 2007). Gagnaöryggi og persónuvernd eru mikilvæg og huga verður vel að því með hvaða hætti slíku er stýrt. Aðgengi að upplýsingum um einstaklinga verður að vera vel skilgreint þannig að tryggingafélög, atvinnurekendur og aðrir hagsmunaaðilar sjái sér ekki leik að borði til að misnota slíkar upplýsingar (Kristján Guðmundsson,munnleg heimild,mars 2013). Krafan um örugg samskipti á netinu hefur kallað á nýjar lausnir. Nýlega var rafræna auðkennið Íslykill tekið formlega í notkun hér á landi. Þróun hans var á vegum Þjóðskrár Íslands en lykillinn leysir af veflykil ríkisskattstjóra og er notaður sem persónuskilríki á netinu í þjónustugáttinni Island.is. (www. islykill.is ). Með notkun á auðkenninu eiga notendur að vera öruggir um persónuupplýsingar sínar. Stefnt er að því að fjölga þjónustuaðilum hjá hinu opinbera sem nýta sér Íslykilinn (Innanríkisráðuneytið,2013). Í Ástralíu er þróunin langt á veg komin en þar er einstaklingum boðið að skrá sig inn í rafrænan grunn „e-health“, sem er tvíhliða heilsugrunnur, þ.e. aðgengilegur bæði fyrir sjúklinga og heilbrigðisstarfsmenn. Þar er boðið upp á heildarlausnir bæði fyrir starfsmenn í heilbrigðisþjónustu og íbúa Ástralíu. Meginmarkmið heilsugáttarinnar er skv. heimasíðu vefsins (www.ehealth.gov.au) að gefa einstaklingum verkfæri í hendurnar þar sem þeir eru sjálfir við stjórnvölinn. Á þessum vef geta Ástralir nálgast allar upplýsingar er tengjast samskiptum þeirra við sjúkrahús, tannlækna, sjúkraþjálfara og sérfræðinga. Mikil áhersla er lögð á gagnaöryggi fyrir þá sem nota vefinn. Frændur okkar á Norðurlöndunum í Svíþjóð og Danmörku notast nú þegar við rafræna sjúkraskrár, www.sundhed.dk í Danmörku og í Svíþjóð nefnist hún www.cehis.se. Danir settu fram þá grunnhugmynd árið 2001 að tvíþættu markmiði mætti ná með rafrænni heilbrigðis- þjónustugátt. Í fyrsta lagi að styrkja þau markmið sem þeir hafa sett fram í heilsugæslu og í öðru lagi að efla upplýsingaflæði heilsugæslunnar þannig að nýjustu upplýsingarnar eru ávallt tiltækar. rafræn SamSkipTi munu endanlega ganga af HeimiliSlæknum dauðum! Hvert er viðhorfið til rafrænnar sjúkraskrár á Íslandi? Yrði hún gagnlegt tæki fyrir neytendur og þjónustuaðila? Mun innleiðing hennar hafa þau áhrif að sjúklingar verði sjálfstæðari og þjónustan persónulegri og frekar sniðin að þörfum sjúklings en stofnunar? Til að varpa ljósi á þessa spurningu var viðhorf heimilislækna til rafrænnar þjónustu kannað. Könnunin var hluti af lokaverkefni í MPM námi við Háskólann í Reykjavík og var framkvæmd vorið 2013. Helstu niðurstöður sýndu að áhyggjur læknanna sneru að öryggi persónuupplýsinga og því að tæknin myndi ekki draga úr vinnuálagi heldur fremur auka það. Spurningakönnun var send út á póstlista félags heimilislækna í gegnum tengilið þess. Settar voru fram 24 fullyrðingar og svarendur beðnir um er gagn af rafrænum SjúkraSkrám? Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, MPM

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.