Tölvumál - 01.10.2013, Side 40

Tölvumál - 01.10.2013, Side 40
40 Á síðustu misserum hefur það færst í aukana að íslenskir kennarar og aðrir sem koma að skólamálum nýti sér samfélagsmiðla til að auðvelda samskipti og dreifa upplýsingum um nýjungar sem tengjast námi og kennslu. Þannig hafa myndast öflug starfssamfélög þar sem þátttakendur sinna eigin símenntun- og starfsþróun með ýmsum hætti. Í október 2012 var MenntaMiðja stofnuð til að styðja við þessi sjálfsprottnu grasrótarsamfélög skólafólks, sem við köllum torg, og styrkja tengsl þeirra og fræðasamfélags háskólanna. Að baki MenntaMiðju standa: Menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennara- samband Íslands, Menntavísindasvið HÍ, Hug- og félagsvísindasvið HA og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Á því tæpa ári sem MenntaMiðja hefur verið starfrækt hefur margt áunnist í samstarfi við starfssamfélög á Tungumálatorgi, Náttúrutorgi og Sérkennslutorgi. Um þessar mundir er unnið að því að byggja á þeirri reynslu sem til er orðin og fjölga starfss amfélögum skólafólks sem nýta sér upplýsingatækni, sér í lagi samfélagsmiðla, til að stuðla að auknu samstarfi og miðlun upplýsinga og þekkingar. STarfSumHVerfi á upplýSingaTækniöld Seint á tíunda áratug síðustu aldar var ég staddur á ráðstefnu um tölvustutt nám í Bandaríkjunum. Á þessum tíma var umræða um „þekkingarstjórnun„ að ná hámarki. Mishæfir gúrúar nýttu tækifærið til að sannfæra jafnvel reyndustu stjórnendur um að með fjárfestingu í upplýsingatækni myndi þekking flæða um ganga fyrirtækja þeirra eins og Skaftá í góðu hlaupi. Þessi sami bjartsýnisljómi sveif yfir vötnum á ráðstefnunni og var kynntur til sögunnar fjöldinn allur af töfralausnum sem myndi auðvelda þekkingar stjórnun í fyrirtækjum og stofnunum. Sölumenn hugbúnaðarlausna létu að því liggja að dagar hefðbundinnar starfsþjálfunar væru taldir og nú myndi upplýsingatæknin sjá um að fanga og miðla þekkingu hvenær og hvert sem hennar væri þörf. Aðalfyrirlesarinn, Michael Milken, reyndur stjórnandi og mikill áhugamaður um nám og starfsþjálfun, hristi því hressilega upp í gestum þegar hann lýsti sinni reynslu af þekkingarmiðlun innan fyrirtækis. Hann fullyrti að til þess að þekkingaryfirfærsla gæti átt sér stað milli samstarfsaðila mætti raunveruleg fjarlægð milli þeirra ekki vera meiri en ca. 15 fet (um 5m) - sama hvaða tækni væri til staðar. Á þeim fimmtán árum sem hafa liðið síðan ég sótti þessa ráðstefnu hefur margt breyst. Í stað fyrirferðamikilla borðtölva notumst við í auknum mæli við öflugar fartölvur og snjallsíma til að halda okkur í sambandi við samstarfsfólk hvar og hvenær sem er. Segja má að raunheimar og netheimar hafa tvinnast saman þannig að það hefur núorðið litla merkingu að tala um fjarlægð milli samstarfsfólks í mældum metrum. Nálægðin felst í því hvernig okkur tekst að nýta samskiptatækni nútímans. MenntaMiðja og starfssamfélögin sem tengjast henni hafa sprottið úr nýju starfsumhverfi þar sem aukið upplýsingaflæði knýr áfram örari úreldingu og nýsköpun þekkingar. Þörf er á nýjum aðferðum til að tryggja að starfsfólk skóla búi yfir þeirri hæfni og þekkingu sem þarf til að sinna kennslustarfi í breyttum samfélögum 21. aldar. Skólafólk hefur sjálft tekið af skarið með myndun starfssamfélaga sem nýta nýjustu tækni til að skapa nálægð milli dreifðra samstarfsaðila og stuðla að skilvirku upplýsingastreymi, umræðu og samstarfi um nýjungar sem það varðar. MenntaMiðja kemur að þessu breytta starfsumhverfi skólafólks með tvö meginmarkmið að leiðarljósi. Í fyrsta lagi, að styrkja tengsl fræða- samfélags háskólanna við þann vettvang sem hann þjónar og stuðla þannig að auknu upplýsingaflæði milli þessara aðila. Í öðru lagi, að rannsaka áhrif upplýsingatækni og samfélagsmiðla á símenntunarleiðir skólafólks til að bæta skilning okkar á því hvernig þessi tækni getur best nýst í því samhengi. STarfSSamfélög SkólafólkS á neTinu Upphaf MenntaMiðju má rekja til Tungumálatorgs (www.tungumalatorg. is sem var stofnað í nóvember 2010 með stuðningi mennta mála- ráðuneytisins og ýmissa íslenskra og norrænna sjóða. Markmið Tungumálatorgs er að byggja upp öflugan samstarfs vettvang fyrir tungumálakennara á netinu. Þannig eru vefurinn og samfélagsmiðlar notaðir til að brúa bilið milli fjarlægra einstaklinga með það í huga að bæta aðgengi að upplýsingum um nýjungar tengdar námi og kennslu tungumála og fjölmenningarlegu skólastarfi. Vefur torgsins er tæknileg umgjörð þess en hið eiginlega samstarf fer að mestu fram á samfélagsmiðlum og sérstökum viðburðum, s.s. upplýsingafundum og námskeiðum. Tungumálatorg gegnir þannig mikilvægu hlutverki í símenntun og starfsþróun kennara og annars skólafólks með því að skapa vettvang þar sem þátttakendur miðla þekkingu um kennsluaðferðir, tækni og námsefni á opnum og aðgengilegum vettvangi. Á síðasta ári komu tvö ný torg til sögunnar sem voru stofnuð eftir fyrirmynd Tungumálatorgs. Það eru Náttúrutorg (www.natturutorg.is), sem tengist starfssamfélagi náttúrufræðikennara, og Sérkennslutorg (www.serkennslutorg.is), sem tengist starfs samfélagi þeirra sem koma að kennslu nemenda með sérþarfir. Torgin móta sín eigin verkefni í samræmi við þarfir samfélags þeirra og nýta þá tækni sem best hentar hverju sinni. Sérstaklega vel hefur reynst að nýta Facebook þar sem flestir Íslendingar eru þegar virkir notendur og hægt er að tengja samskiptavettvang torganna beint inn í hið daglega netræna umhverfi notenda. Stofnaðir hafa verið Facebook hópar þar sem aðilar að starfssamfélögunum geta leitað eftir og skipst á upplýsingum um nýjungar sem tengjast þeirra fagi. Eins og á Tungumálatorgi hafa viðfangsefni torganna verið af ýmsum toga, t.d. símenntun, upplýsingamiðlun, gerð námsefnis, þróun kennsluaðferða, notkun nýrrar tæknilausna og þar fram eftir götunum. Um haustið 2012 boðaði Menntavísindasvið HÍ til vinnustofu með Etienne Wenger og Beverly Trayner um fræðslu og þjálfun í starfssamfélögum en Wenger er upphafsmaður kenninga um starfssamfélög (e. communities of practice) ásamt Jean Lave. Í kjölfar vinnustofunnar var ákveðið að stofna MenntaMiðju til að styrkja tengsl fræðasamfélags háskólanna við starfssamfélög skólafólks og þróa frekar hugmyndafræðina sem liggur að baki þeirra með áherslu á markvissa notkun upplýsingatækni og samfélagsmiðla til starfsþróunar. mennTamiðja MenntaMiðju er ætlað að vera umgjörð utan um sjálfsprottið grasrótarstarf skólafólks. Mismunandi torg eru grunneiningar MenntaMiðjunnar og þar fer fram hið raunverulega starf. Með MenntaMiðju er lögð áhersla á tengingar milli stofnana, skóla og fræðasamfélags með gagnkvæman ávinning allra aðila að leiðarljósi. Þannig er MenntaMiðja hugsuð sem eins konar starfssamfélag starfssamfélaga. mennTamiðja – STarfSSamfélög SkólafólkS á neTinu Tryggvi Thayer er verkefnisstjóri MenntaMiðju og Ph.D. kandídat í stjórnun og stefnumótun í menntun

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.