Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 46

Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 46
46 Íbúar landa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) hafa aðgang að almannatryggingum hvar sem er á EES svæðinu. Vegna þessa hafa almannatryggingastofnanir landanna, s.s Tryggingastofnun (TR), með sér samstarf og skiptast á skjölum og upplýsingum við afgreiðslu mála. Samskiptin hafa farið að mestu fram með svokölluðum E-vottorðum sem send eru í bréfapósti. Um 200 tegundir af E-vottorðum hafa verið í notkun. Dæmi um E-vottorð eru tilkynning um ákvörðun varðandi umsókn um lífeyri (E-210) og vottorð um tímabil sem skal taka tillit til við úthlutun atvinnuleysisbóta (E-301). Nú er unnið að því að sendingar á nauðsynlegum skjölum og upplýsingum við afgreiðslu almannatryggingamála milli landa innan EES fari alfarið fram rafrænt á milli stofnana. Verkefnið nefnist á ensku Electronic Exchange of Social Security Information skammstafað EESSI. EESSI byggir á reglugerð nr. 883/2004 sbr. framkvæmdareglugerð nr. 987/2009 um samhæfingu almannatryggingakerfa innan ESB. Þær tóku gildi innan ESB 1. maí 2010 en voru innleiddar á Íslandi 1. júní 2012. Markmið EESSI er að bæta þjónustu við íbúa landa EES og tryggja betur áunnin réttindi þeirra til almannatrygginga sem flytjast á milli landanna. Afgreiðslutíminn verður styttur með hraðvirkari og nákvæmari upplýsingasamskiptum á milli stofnananna. Hagræðið á einnig að verða nokkurt þar sem gögn munu streyma rafrænt með stöðluðum hætti á milli tölvukerfa stofnana í stað bréfasendinga áður. Að verkefninu koma á Íslandi auk TR, Sjúkratryggingar Íslands (SÍ), Vinnumálastofnun (VMST) og Ríkisskattstjóri (RSK). TölVuneT Sem Tengir Saman um Tíu þúSund STofnanir Í grunninn er EESSI samhæft og lokað tölvunet sem tengir saman um tíu þúsund almannatryggingastofnanir innan EES. EESSI er útfært með tengipunktum (e. Access Points) í hverju landi innan EES fyrir sig sem tengja þau við miðlægan hluta hjá ESB, sjá mynd 1. Þetta gerir stofnunum sem sjá um framkvæmd almannatrygginga kleift að skiptast rafrænt á nauðsynlegum skjölum og upplýsingum á milli landa við afgreiðslu mála. Samskiptin munu fara fram í gegnum lokað netkerfi Evrópusambandsins (ESB) svokallað sTESTA-net. Í miðlæga hlutanum er samhæfingarpunktur (e. Coordination Node) sem samanstendur af skeytamiðlara sem beinir rafrænum skeytum á milli landa frá einum tengipunkti til annars og miðlægum grunni með upplýsingum um stofnanir, einskonar miðlæg stofnanaskrá (e. Master Directory). Tilgangur miðlægu stofnanaskrárinnar er að rafræn skjöl rati á milli stofnana í samskiptum í gegnum skeytamiðlarann. Tilgangur skrárinnar er einnig að starfsmenn stofnana og íbúar geti flett upp upplýsingum um stofnanir s.s. undir hvaða almannatryggingastofnun tiltekinn málaflokkur tilheyrir. Ein leið til að nálgast þessar upplýsingar um stofnanir er að finna á vefsíðu á vefsvæði ESB www.europa.eu. Vefsíðan nefnist „EESSI – Rafræn skrá yfir almannatryggingastofnanir í Evrópu„ og hefur verið þýdd á 27 tungumál, þ.m.t. á íslensku. VeflauSn fyrir ViðSkipTaVirkni Í EESSI er annars vegar gert ráð fyrir því að kerfi stofnana verði í beinu sambandi við aðrar stofnanir í gegnum miðlæga hlutann hjá ESB og hins vegar að stofnanir geti nýtt sér veflausn, sem tengist miðlæga hlutanum og sem ESB mun útvega fyrir samskiptin. Þessi veflausn hefur verið nefnd WebIC, sem stendur fyrir Web Interface for Clerks. WebIC mun halda utan um viðskiptavirknina, s.s. skeyti og flæði þeirra, í rafrænum samskiptum á milli stofnana í EESSI. Fyrir fámennt land eins og Ísland þar sem fjöldi mála er ekki mikill í samanburði við önnur Evrópulönd borgar sig að styðjast við slíka veflausn í flestum tilvikum svo ekki þurfi að innleiða alla viðskiptavirkni EESSI í innri kerfi almanna- tryggingastofnana hér á landi. Það sparar fjármagn og tíma við innleiðingu. Jafnframt stefnir TR að því að innleiða lausn sem Norðmenn hafa verið að þróa í samvinnu við ESB og nefnist Solution 7. Með lausninni er hægt að hlaða gögnum úr innri kerfum stofnana í WebIC og úr WebIC í innri kerfin sem m.a. sparar tíma við afgreiðslu mála og minnkar líkur á villum. Það er á ábyrgð hvers lands fyrir sig að koma upp tengipunkti sem ESB útvegar til að tengjast miðlægum hluta ESB. Einnig að koma upp afriti af miðlægri stofnanaskrá (e. National Directory) til að tengja við innlend tölvukerfi og setja upp veflausnina WebIC ef stofnun í viðkomandi landi ætlar sér að nýta þá lausn. Sjá má hvernig einfölduð högun á Íslandi lítur út á mynd 2 en TR var falið að setja upp og reka tengipunktinn hér á landi. Tengipunkturinn, stofnanaskráin, WebIC og Solution 7 verða í tölvuumhverfi TR sem SÍ, VMST og RSK munu geta tengst. Stofnanirnar geta einnig tengst miðlæga hluta EESSI beint úr innri kerfum sínum í gegnum TR ef vilji er fyrir því. Að auki þurfa stofnanirnar að aðlaga sín innri kerfi í tengslum við EESSI. Verkefninu hefur miðað nokkuð vel áfram hér á landi. uppSTokkun á flæði SamSkipTa og inniHaldi Skjala Samhliða því að koma á rafrænum samskiptum á mil l i almannatryggingastofnana innan EES þá er tækifærið einnig nýtt til að rafræn SamSkipTi almanna Trygginga­ STofnana á eVrópSka efnaHagSSVæðinu Þórólfur Þórisson, verkefnastjóri, Upplýsingatæknisvið, Tryggingastofnun ríkisins

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.