Tölvumál - 01.10.2013, Síða 50
50 www.advania.is
í heimili
við Guðrúnartún
upplýsingatækninnar
Velkomin
og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Skemmtileg umgjörð fyrir
góð samskipti
Verslun Advania býður gæðavörur frá þekktustu
tölvuframleiðendum heims. Hún er líka
staðurinn þar sem við greinum þarfir og
veitum ráðgjöf, auk þess að vera þægilegur
viðskiptavina. Punkturinn yfir i-ið er svo
kaffihús Te & Kaffi, þar sem ljúffengir
kaffidrykkir eru töfraðir fram.
fundarstað, sýningarsal og kaffihús.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
Ð
/S
ÍA
1
3
-2
2
9
2
Vetrarstarfið fer vel af stað og er mikil aðsókn á viðburði Ský góð
hvatning fyrir metnaðarfulla starfsemi félagsins. Svo virðist sem mikill
meðbyr og góðvilji með Ský sé í upplýsingatæknigeiranum meðal þeirra
sem koma að eða starfa í UT málum. Það átta sig ekki allir á að félagið
er óháð félagasamtök rekin án hagnaðarmarkmiða (e. non-profit) og hjá
Ský starfar einn starfsmaður.
Undirbúningur viðburða, fundar stjórn og fyrirlestrar er allt unnið í
sjálfboðavinnu og kemur alltaf jafn skemmtilega á óvart hve vel fólk
tekur í taka þátt í að viðburðir verði að veruleika. Óeigingjarnt starf
ritnefndar og faghópa félagsins heldur starfinu á lofti og einnig hefur
stjórn Ský á að skipa mjög hugmyndaríkum einstaklingum sem gefa
mikið af sér. Án félagsmanna væri engin starfsemi en félögum hefur
fjölgað jafnt og þétt síðustu misseri.
Síðastliðið vor var enn einn faghópurinn stofnaður og styður hann vel
við hugmyndafræði UTmessunnar um að styðja við og auka menntun,
fræðslu og fræðistörf í UT. Þar er úrvalslið þeirra sem hafa áhuga á
málefninu um að gera þurfi enn betur til að fá ungt fólk til að velja tölvu-
og tæknigreinar sem framtíðarstarf, nýta upplýsingatæknina betur í
skólastarfi og hvetja til endurmenntunar starfsmanna í tölvugeiranum.
Á aðalfundi Ský í febrúar 2013 var nýr félagi heiðraður, Anna
Kristjánsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Anna hefur í gegnum árið
komið að starfi Skýrslutæknifélagsins með margvíslegum hætti en þó
aðallega sem fulltrúi félagsins gagnvart IFIP (International Federation for
Information Processing). Anna Kristjánsdóttir var kjörin í stjórn
Skýrslutæknifélags Íslands 1987 – 1993, varaformaður félagsins árin
1989-1193. Anna var fyrsti menntunarfræðingurinn sem tók þar sæti.
Hún hafði skrifað greinar í Tölvumál, einkum um erlend málefni og sett
þau í íslenskt samhengi. Þar leiddi Anna meðal annars afmælisnefnd
Ský 1993 þegar félagið varð 25 ára. Anna hefur unnið úr heimildum í
sögu Skýrslutæknifélags Íslands og mikli fleiri gögnum sem varða
upplýsingatækni í námi. Hún vinnur að ritun bókar sem varpar ljósi á
hálfrar aldar skeið þessara mála í íslensku samfélagi. Anna á sæti í
Öldungadeild Ský og er í stjórn nýstofnaðs faghóps um menntun,
fræðslu og fræðistörf í UT.
Í febrúar gaf orðanefnd Skýrslutæknifélagsins út 5. útgáfu Tölvu-
orðasafnsins á tölvutæku formi og afhenti félaginu það til varðveislu. Þar
með lauk störfum þeirra sem hafa verið í orðanefndinni síðustu 35 árin
eða samfellt frá árinu 1978. Mikið og óeigingjarnt starf hefur verið unnið
á þeim árum og þakkar stjórn Ský þeim Sigrúnu Helgadóttur, Baldri
Jónssyni, Þorsteini Sæmundssyni og Erni S. Kaldalóns þeirra framlag
við að finna nýyrðum á sviði tölvutækninnar farveg í íslensku máli. Hægt
er að nálgast Tölvuorðasafnið á vefnum www.sky.is og einnig yfirlit yfir
þau rit sem orðanefndin hefur tekið saman í gegnum árin.
Framundan er skemmtilegur vetur og drög að heildardagskrá vetrarins
2013 -2014 komin á vef Ský.
Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að tengjast
Ský á Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum forsíðu sky.is og taka
þátt í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur.
fréTTir af STarfSemi Ský:
Anna Kristjánsdóttir gerð að heiðursfélaga í Ský.
Orðanefnd Ský til 35 ára kvödd.
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský