Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 1
16. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 27. ágúst ▯ Blað nr. 449 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000 Íslenskir bændur: Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári − hlutfallslega er mest selt af alifuglakjöti, en síðan kemur kinda- og svínakjöt, en samdráttur var í sölu á nauta- og hrossakjöti Samkvæmt tölum Búnaðarstofu BÍ sem birtar eru á bls. 16 í Bændablaðinu í dag, þá var kjöt- framleiðslan á Íslandi frá ágúst 2014 til júlíloka 2015 samtals rúm- lega 29.497 tonn. Var það aukning upp á 1,3% á milli ára, eða svipað og söluaukningin milli ára. Mest var framleitt af kindakjöti, eða rétt rúm 10 þúsund tonn, en þar á eftir kom alifuglakjöt, 8.368 tonn. Svínakjöt var síðan í þriðja sæti með tæplega 6.622 tonn. Eins voru framleidd tæplega 3.340 tonn af nautakjöti og tæplega 1.086 tonn af hrossakjöti. Meðaltalsaukning á þessu 12 mánaða framleiðslutímabili upp á 1,3% var haldið uppi af aukinni framleiðslu á alifuglakjöti upp á 5,5% og aukinni framleiðslu á kinda- og svínakjöti upp á tæplega 2% í hvorri grein. Athygli vekur að á sama tíma varð verulegur samdráttur í hrossakjötsframleiðslunni eða sem nemur -12,2% og í nautakjötsfram- leiðslunni upp á -6,1%. Verkfall skekkti myndina Ef tekin er staðan síðustu þrjá mánuði var samdrátturinn í hrossa- og nauta- kjötsframleiðslunni mun meiri, eða -31,2% í hrossakjötinu og -11,3% í nautakjötinu. Það skýrist væntan- lega að einhverju leyti af verkfalli dýralækna. Virðist verkfallið einnig hafa haft einhver áhrif á samdrátt í sölu á nautakjöti á sama tímabili upp á -15,1%, á hrossakjöti upp á -2,8% og á alifuglakjöti upp á -2,3%. Á þessu þriggja mánaða tímabili varð aftur á móti umtalsverð söluaukning á svínakjöti sem nam 12,3% og á kindakjöti upp á 6,6%. Þess ber þó að geta að salan á kindakjöti sýnir tölur yfir sölu afurðastöðva til kjötvinnsla og verslana, en ekki endanlega sölu til neytenda. Um 1,2% aukning í kjötsölunni Heildarsalan á kjöti á innanlands- markaði á tólf mánaða tímabili frá byrjun ágúst 2014 til loka júlí 2015, nam rúmum 24.518 tonnum. Er það söluaukning upp á 1,2% á milli ára. Er það tæpum 5.000 tonnum minna en heildarframleiðslan á sama tíma, en hluti af þeirri framleiðslu var seldur til útflutnings. Mest var selt af alifuglakjöti, eða rúmlega 7.976 tonn. Þá komu sauðfjárafurðir með 6.784 tonn og svínakjötssalan nam rúmlega 5.891 tonni. Nautakjötssalan nam rúmu 3.321 tonni og seld voru rúm 545 tonn af hrossakjöti. Hlutfallslega er mest selt af alifuglakjöti og er hlutdeildin þar 32,5%. Sauðfjárafurðir standa fyrir 27,7%, svínakjöt fyrir 24% og nautakjöt er með 13,5% hlutdeild. Hrossakjötið rekur svo lestina með 2,2% markaðshlutdeild. /HKr. Mynd / HKr. 14, 24–2520 26

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.