Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Hagur loðdýrabænda á Íslandi hefur heldur vænkast á þessu ári eftir mikið verðfall á minkaskinn- um á síðasta ári. Við árslok 2014 voru 33 aðilar með aliminka á 28 minkabúum í landinu samkvæmt tölum MAST. Staðan á skinnamörkuðum hefur farið hægt batnandi, en óvissa ríkir þó enn varðandi stóra skinnakaup- endur eins og Rússa og Kínverja. Á þeim 28 loðdýrabúum sem hér eru starfrækt voru um 44 þúsund paraðar læður samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og skv. niðurstöðum úr plasmacytósu- rannsóknum. Tveir bændur hættu minkarækt en nokkuð er um að fleiri en einn bóndi séu með dýr á sama búi. Staða minkaræktunar í landinu er í heild nokkuð góð þótt verðsveiflur á skinnum hafi gert mörgum erfitt fyrir. Mikill árangur hefur náðst í ræktun- arstarfi minkabænda í kjölfarið á innflutningi kynbótadýra. Þar hafa íslenskir bændur skipað sér í efstu sæti í gæðum skinna á heimsvísu. Koma þeir þar fast á hæla danskra kollega sinna en mikil og góð samvinna hefur verið á milli þessara frændþjóða í minkaræktinni. Það hefur skilað sér í stærri dýrum og betri feldgæðum. Tvö einangrunarbú fyrir innflutning Í norðvesturumdæmi eru starfrækt tvö einangrunarbú fyrir innflutta minka. Í maí og í desember voru fluttir inn annars vegar 1.140 högnar og hins vegar 1.240 minkar af báðum kynjum frá dönskum ræktunarbúum. Dýrin voru flutt með flugi til Keflavíkur og flutt í einangrunarstöð í Skagafirði. Lögum samkvæmt voru dýrin í ein- angrun í rúma 6 mánuði og var ein- angrun aflétt að loknum rannsóknum af fyrri innflutningshópnum í nóv- ember. Samkvæmt reglugerð um vel- ferð minka skulu bændur láta prófa að minnsta kosti 10% paraðra læða á hverju búi fyrir A-sjúkdómnum plasmacytosis. Allar blóðprufur sem teknar voru á minkabúum landsins á síðasta ári reyndust neikvæðar. Tíðni algengustu sjúkdóma var svipuð og undanfarin ár. Í byrjun október vaknaði grunur á einum bæ í norðvesturumdæmi um tilfelli af B-sjúkdómnum lungnafári sem bakt- erían Pseudomonas aeruginosa veldur. Ekki náðist að staðfesta bakteríuna og því voru engin staðfest tilfelli af lungnafári á árinu. Ný reglugerð um aðbúnað og velferð minka tók gildi rétt fyrir árs- lok 2014. Engar ábendingar bárust Matvælastofnun á árinu sem sneru að aðbúnaði og velferð minka. Ekkert refabú starfrækt Sem fyrr er ekkert refabú starfrækt á landinu, einu refirnir sem haldnir eru innan girðinga, svo vitað sé, er refapar í Húsdýragarðinum í Reykjavík. Eitt stórt kanínubú Tæplega 300 kanínur eru haldnar sem hluti af búfénaði á Íslandi við lok árs 2014. Eitt stórt holdakanínu- bú er á landinu og nokkuð er um að einstaklingar haldi nokkrar kanínur, ýmist af angóru-, holda- eða feldkyni, sem gæludýr eða til heimanotkun- ar. Slátrun á holdakanínum hófst á Hvammstanga haustið 2014 og hefur sala afurða gengið vel. /HKr. Fréttir Kartöflurækt á Norðurlandi: Gerist ekkert undir grösunum í sólarleysi Staðan í loðdýraræktinni á Íslandi er nokkuð góð: Yfir 43 þúsund minkalæður og rúmlega 8 þúsund högnar á 28 búum „Þetta var nú frekar dapurt, bæði lítið og lélegt,“ segir Bergvin Jóhannsson, kartöflubóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi. Hann hefur aðeins litið undir grösin og segir að mun minna sé undir en vant er. Bergvin segir að þetta sumar sé gjörólíkt því sem var í fyrra, það var einstaklega gott og allt snemma á ferðinni. „Ég kíkti undir grösin hjá mér þegar aðeins var liðið á ágúst- mánuð, en það er um þremur vikum seinna en ég er vanur.“ Óvenju kalt og blautt hefur verið í nánast allt sumar. „Þetta getur farið á hvorn veg sem er,“ segir Bergvin, en verði sólríkir dagar nú síðsumars gæti spretta tekið við sér. Aftur á móti megi ekki búast við góðri uppskeru verði tíð með sama hætti og verið hefur. „Það gerist ekkert undir grös- unum ef það er sólarlaust, það er alger forsenda þess að spretta taki við sér að sólin fari að láta sjá sig. Ef okkur verður ekki að þeirri ósk má búast við að uppskeran í haust verði fremur léleg,“ segir Bergvin. /MÞÞ Kínverjar hafa verið mjög umsvifamiklir kaupendur á skinnamarkaði á undanförnum árum. Þessi mynd var tekin í uppboðshúsi Kobenhagen Fur í Danmörku þar sem Kínverjar eru jafnan mjög áberandi. Hér bíður stór skinnasending lestunar í loðskinnauppboðshúsi Kopenhagen Fur, en fyrirtækið er jafnframt með vöruhús í Kína. Myndir / HKr. Kartöflur ræktaðar í Ikea-pokum Í garði á Eyrarbakka eru íslenskar kartöflur ræktaðar í Ikea-pokum með góðum árangri. Kartöflurnar voru settar niður í vor og þegar þær verða teknar upp í haust er sturtað úr pokunum og kartöflurnar tíndar úr, sniðug lausn fyrir fólk sem hefur ekki garð, býr t.d. í blokk eða annað slíkt. /MHH Hér eru nokkrir Ikea-pokar í garðinum á Eyrarbakka með fallegum kart- Mynd / MHH í vonina að úr rætist, en eftir kalt og blautt sumar er spretta hæg og því má allt eins búast við að uppskera verði með lélegra móti í haust. Mynd / MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.