Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 30

Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Áhugaverðir tímar fram undan í mjólkurframleiðslunni: Byggja á nýjan samning á grunni þess sem fyrir er og gera nauðsynlegar breytingar Á dögunum bárust um það fregnir að aukning í mjólkurframleiðslu hefði verið tæp 15 prósent miðað við sama tíma í fyrra og voru þá horfur á því að framleiðsla þessa árs yrði meiri en greiðslumark ársins, sem er 140 milljónir lítra. Um svipað leyti sendu Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði bréf til bænda þar sem samdráttur er boðaður á greiðslumarki næsta árs. Áður hafði því verið lýst yfir að greitt yrði fullt afurðastöðvaverð fyrir alla innvegna mjólk út næsta ár. Landbúnaðarráðherra hefur boðað uppstokkun á greiðslumarkskerf- inu svo það er ljóst að það eru forvitnilegir tímar fram undan í mjólkurframleiðslunni. Því er ekki úr vegi að kanna hug formanns Landssambands kúabænda til stöðunnar og hvers sé að vænta. „Það hefur verið ævintýraleg aukn- ing í sölu mjólkurafurða síðustu tvö ár, einkum þeim fituríkari. Frá miðju ári 2013 til dagsins í dag er aukn- ingin í smjörsölu til að mynda 21 prósent, rjóma 11 prósent og feitum ostum um 11 prósent, þá hefur sala nýmjólkur vaxið um þrjú prósent, eftir viðvarandi samdrátt síðustu ára- tugi. Vegna þessa var greiðslumark aukið milli áranna 2013 og 2014 úr 116 milljónum lítra í 125 mill- ljónir og síðan í 140 milljónir fyrir yfirstandandi ár. Þessi mikli vöxtur hefur verið mjög krefjandi verkefni fyrir greinina, en ekki verður betur séð en bændum hafi gengið vel að nýta þau tækifæri sem hann hefur skapað,“ segir Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda, um stöðu mála. Laga þarf greiðslumarkið að bættri birgðastöðu „Hluti þess greiðslumarks sem ákvarðað var fyrir yfirstandandi ár kom til vegna þess að byggja þurfti upp nauðsynlegar birgðir, en þær höfðu gengið til þurrðar í söluaukn- ingu síðustu ára. Söluspáin gerði ráð fyrir aukningu upp á 136 milljón- um lítra og 4 milljónir voru áætl- aðar til birgðasöfnunar. Nú stefnir í að framleiðsla yfirstandandi árs verði nokkuð yfir útgefnu greiðslu- marki og því líklegt að laga þurfi greiðslumarkið til samræmis við bætta birgðastöðu. Lækki greiðslu- markið deilast stuðningsgreiðslurnar á færri lítra sem því nemur, það gerir þeim væntanlega léttara fyrir sem átt hafa í erfiðleikum við að fylla sitt greiðslumark. Að öðru leyti sé ég ekki annað en komandi ár geti orðið kúabændum hagfellt. Það er ennþá þokkalegur vöxtur í sölu, en auðvitað er nauðsynlegt að haldið verði vel á spöðum í markaðsmálum og hvergi slakað á því efni,“ segir Sigurður. Hann segir enga ástæðu til að efast um að ekki verði staðið við yfirlýsingar um að áfram verði greitt fullt afurðastöðvarverð fyrir alla mjólk á næsta ári. Brýnt að taka upp starfsskilyrði kjötframleiðslunnar Nú rennur mjólkursamningurinn út í árslok á næsta ári. Sigurður segist sjá það fyrir sér að nýr samningur um starfsskilyrði kúabænda muni taka mið af þeim árangri sem núverandi samningur hefur skilað. „Í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands kemur fram að núverandi samningur um starfsskilyrði mjólk- urframleiðslunnar og þau ákvæði búvörulaganna sem tengjast grein- inni, hafa skilað verulegum árangri til hagsbóta fyrir neytendur og tryggt afkomu bænda. Ég tel því eðlilegt að byggt verði áfram á grunni þess fyrirkomulags sem í gildi er, en þróa það jafnframt áfram og sníða af því þá agnúa sem til staðar eru. Mikil- vægustu þættirnir sem varða starfs- skilyrði mjólkurframleiðslunnar eru tollverndin og að bændur fái áfram að koma fram sameinaðir gagnvart markaði, að þessu þarf sérstaklega að gæta. Síðan er að mínu mati al- görlega nauðsynlegt að tekið verði á starfsskilyrðum nautakjötsfram- leiðslunnar.“ Uppstokkun á styrkjakerfinu hefur ekki verið rædd Í ræðu landbúnaðarráðherra á síðasta Búnaðarþingi kom fram að hann sæi fyrir sér að með nýjum búvörusamn- - aði byrja að ganga í endurnýjun líf- daga. Sigurður sér þó ekki fyrir sér að þar verði einhver sérstök uppstokkun í einni svipan. „Það hafa ekki verið viðraðar neinar hugmyndir eða til- lögur af því tagi við okkur varðandi mjólkina og ég tel afar ólíklegt að svo verði. Að mínu mati ber að horfa til þess að stuðningur ríkisins við greinina treysti afkomu bænda og stuðli að bættum aðbúnaði gripa, en jafnframt lægra vöruverði til neyt- enda og bættri samkeppnishæfni greinarinnar. Það má líka benda á að síðasta Búnaðarþing varaði við hug- myndum um landgreiðslur, þar sem slíkur stuðningur hefði ríka tilhneig- ingu til að eigngerast. Ég óttast að það sama geti átt við um búsgreiðsl- ur. Í þessu sambandi er líka rétt að minna á, að landbúnaðarráðherra gaf um síðustu áramót út nýja reglugerð um velferð nautgripa, þar sem um helmingur allra fjósa í landinu var úreltur á næstu 20 árum. Landssam- band kúabænda hefur áætlað að fjár- festingarþörf greinarinnar einungis vegna þess sé ekki undir 18 millj- örðum. Með einhverjum hætti verður greinin að bera þá fjárfestingu. Það er ekki bundið við Ísland að eigin- fjármyndun í landbúnaði sé hæg, slíkt er fremur algengara en hitt víð- ast hvar í þróuðum löndum. Margar þjóðir bregðast við þessu með því að tryggja landbúnaðinum aðgang að langtímafjármögnun á boðlegum vöxtum, slíku er hins vegar ekki til að dreifa hér. Það bætir þá varla úr skák ef stuðningsgreiðslum greinar- innar verður spreðað út um holt og móa með óljósum tilgangi. Ég tel því að það eigi að byggja nýjan samning á grunni þess sem fyrir er, en gera á því nauðsynlegar breytingar. Það gildir um greiðslu- Skiptir mestu að það sé stuðlað að traustri búsetu Sú þróun hefur orðið í mjólkurfram- leiðslunni að kúabú hafa verið að stækka. Risafjós er í byggingu hjá hefur ekki áhyggjur af því að það séu ekki bændur sem standi að slíkum búrekstri og þiggi stuðningsgreiðslur en aðrir til þeirra hugmynda sem forsvarsmenn Flateyjarbúsins hafa um framtíð þess, en vissulega eru þar á ferð hugmyndir um stærra bú en áð- ur hefur þekkst hér á landi. Það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er hvort rekstur þessa bús stuðlar að traustari búsetu fólks í sínu nærum- - lega neikvætt að utanaðkomandi aðil- ar vilji fjárfesta í greininni. Hins vegar er það mín skoðun að fjölskyldubúið eigi áfram að vera sá grunnur sem nautgriparæktin byggir á, en það verður líka að þróast í samhliða nýrri tækni og auknum samfélagskröfum. Hvað varðar beingreiðslurnar, þá eru þær greiddar á framleiddan lítra mjólkur innan greiðslumarks og gera sér engan mannamun í því eins og fyrirkomulagið er í dag, enda eru þær hugsaðar til að lækka vöruverð til neytenda. Sé hins vegar vilji til þess að taka í auknum mæli tillit til stærðarhagkvæmni búanna við útdeil- ingu stuðnings, er eðlilegast að ræða það samhliða nýjum samningi.“ Tækifæri fyrir dugmikla og útsjónarsama bændur „Núverandi stjórnvöld hafa lýst því í stjórnarsáttmála að íslenskum landbúnaði verði gert kleift að nýta þau sóknarfæri sem greinin stend- ur frammi fyrir. Nú í byrjun sumars var endanlega staðfest skipun samn- inganefndar vegna búvörusamninga og væntanlega verður gengið frá nýjum samningum á komandi vikum eða mánuðum sem gilda muni næstu ár. Þar munu að vonum felast tæki- færi fyrir dugmikla og útsjónarsama bændur. Ég er því heldur bjartsýnn á framtíðina fyrir hönd nautgriparækt- arinnar.“ /smh Mynd / TBSigurður Loftsson, formaður Lands- Mynd / HKr. Klippt og Skorið Hafðu samband í síma 480 5600 eða á landstolpi@landstolpi.is og fáðu nánari upplýsingar Landstólpi Gunnbjarnarholti 801 Selfoss s. 4 80 5600 landstolpi@landstolpi.is www.landstolpi.is TRIOLIET Turbobuster stæðuskerar - Hraðvirkir og sterkbyggðir. Landstólpi er vaxandi fyrirtæki með kjarnastarfsemi í heildsölu og smásölu landbúnaðarvara og byggingu stálgrindarhúsa.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.