Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 41

Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 41
41 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Rákir PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is Herrapeysan Rákir er í boði Handverkskúnstar. Garnið í peys- una færðu hjá okkur í verslun okkar sem er staðsett á Nýbýlavegi 32, Dalbrekkumegin, Kópavogi eða á www.garn.is. Stærð: Maxi heklgarn frá garn.is Nál: 2 mm Stærð: S/M Yfirvídd (í munsturpjóni): 88 sm Garn: Kartopu Ketenli 7 dokkur Prjónar: Hringprjónn 40 og 60-80 sm nr 4,5 Sokkaprjónar nr 4,5 Prjónfesta: 20 lykkjur og 24 umferðir = 10x10 sm Útskýringar: S: slétt lykkja B: brugðin lykkja sm: sentimetrar Munstur: *Prjónið *1S,1B* endurtakið út umferðina frá *-* 4 sm. Prjónið 2 umferðir slétt.* Endurtakið frá *-* Laskaúrtaka: Fellt er af um 1 lykkju sitt hvoru megin við prjóna- merkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru að prjóna- merki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Prjónið 2 lykkjur slétt og síðan 2 lykkjur slétt saman. Bolur: Fitjið upp 225 lykkjur, tengið í hring og prjónið stroff *2S, 3B* 7 sm. Aukið út í síðustu umferð um 1 lykkju = 226 lykkjur á prjóninum. Setjið tvö prjóna- merki í stykkið, það fyrra í byrjun umferðar og það seinna eftir 113 lykkjur (fram- og bakstykki). Prjónið munstur þar til bolurinn mælist 51 sm (mælt með stroffi). Setjið 10 lykkjur á þráð/nælu undir handvegi, 5 lykkjur sitt hvoru megin við prjónamerkin. Geymið bolinn og prjónið ermar. Ermar: Fitjið upp 55 lykkjur, tengið í hring og prjónið stroff *2S, 3B* 8 sm. Aukið út í síðustu umferð um 5 lykkjur jafnt yfir umferðina. Setjið prjónamerki og prjónið munstur eins og á bol en aukið út sitt hvoru megin við prjónamerkið um 1 lykkju, fyrst eftir 3 sm og síðan með 6 sm millibili alls 9 sinnum = 78 lykkjur á erminni. Prjónið þar til ermin mælist 61 sm (mælt með stroffi). Setjið 10 lykkjur á þráð/nælu, 5 lykkjur sitthvorum megin við prjónamerkið. Geymið ermina og prjónið aðra eins. Berustykki: Sameinið bol og ermar á einn hring- prjón = 342 lykkjur á prjóninum. Setjið prjónamerki í öll samskeyti erma og bols = 4 prjónamerki. ATH: Lykkjurnar tvær sitthvorum megin við prjónamerkin eru alltaf prjónaðar slétt. Prjónið 4 umferðir áður en úrtaka hefst. Takið úr þannig: 2x í 4. hverri umferð og síðan í 2. hverri umferð þar til bolurinn mælist um það bil 66 sm. Setjið þá 15 lykkjur fyrir miðju á framstykki á þráð/nælu og prjónið nú fram og til baka. Haldið áfram að taka úr eins og áður í laskalínunni en takið jafnframt úr við hálsmál: 2 lykkjur x2, 1 lykkju x2. Prónið þar til bolurinn mælist um 70 sm. Hálsmál: Takið upp lykkjur í hálsmáli, einnig þær sem geymdar voru á framstykki, prjónið eina umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann í 105 lykkjur. Prjónið stroff *2S+3B* 10 sm. Fellið af í sléttum og brugðnum lykkjum. Frágangur: Gangið frá endum, lykkið saman undir höndum. Þvoið flíkina og leggið til þerris. Prjónakveðja, Guðrún María Guðmundsdóttir www.garn.is Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 2 5 9 6 3 7 7 6 1 1 4 5 4 3 6 7 7 6 9 5 9 1 6 5 2 4 Þyngst 2 1 9 4 2 7 6 9 5 7 3 8 6 1 3 4 8 3 7 5 2 4 9 5 3 1 4 7 7 9 8 2 6 6 7 3 2 9 2 1 8 1 3 5 6 2 9 1 3 7 1 5 8 4 3 7 8 2 3 1 3 6 4 9 4 8 9 4 6 1 6 8 2 1 FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Fyrsta minningin úr Legolandi Lúkas Fróði Magnússon er sjö ára vatnsberi sem finnst skemmtileg- ast í heimilisfræði í skólanum. Honum finnst leiðinlegast af öllu að liggja í leti. Hann fór í ferðalag í sumar og að veiða. Nafn: Lúkas Fróði Magnússon. Aldur: 7 ára. Stjörnumerki: Vatnsberi. Búseta: Reykjavík. Skóli: Háteigsskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Heimilisfræði. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur. Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur. Uppáhaldshljómsveit: Amabadama. Uppáhaldskvikmynd: Tommi og Jenni. Fyrsta minning þín? Þegar ég var í bát í Legolandi í Danmörku. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð- færi? Ég er að fara að æfa karate. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Smiður. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég og bróðir minn tíndum öll ,,bannað að kúka“-hunda- skiltin úr görðunum hjá nágrönnun- um hjá frænku okkar og Jói þurfti að fara og skila þeim öllum. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að liggja í leti. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór í ferðalag og að veiða. Glæsilegur og rómantískur veitingastaður í sögufrægu húsi í hjarta borgarinnar við Ingólfstorg j Borðapantanir í síma 511 5090 www.einarben.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.