Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Við flytjum í Bakkakot árið 2000 og byrjum að búa þar með nokkr- ar kindur sem við eigum. Síðan þá höfum við verið að fjölga smátt og smátt. Býli: Bakkakot. Staðsett í sveit: Refasveit í Blönduósbæ í Austur- Húnavatnssýslu. Ábúendur: Ragnar Heiðar Sigtryggsson og Aðalbjörg Valdimarsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýr): Við eigum þrjá syni, Gísla 16 ára, Pálma 13 ára og Guðna 6 ára, ásamt hundinum Týru og kisunni Rusla. Stærð jarðar: Um 300 ha. Gerð bús: Við erum með fjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir: Við erum með 290 kindur og 25 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Við vinnum bæði utan bús og sinnum búinu utan vinnutíma, þ.e. snemma á morgnana og síðan seint á kvöldin. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Allt er gaman ef við ger um það saman, nema tína plast af girðingum, segir Hjördís. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Mjög svipað og hann er í dag. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Þau eru í finum málum. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Vonandi bara vel. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Með því að flytja út ferskt kjöt og sýna fram á hreinleika afurðanna. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Ostur, skinka, ávextir og græmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heim ilinu? Saltað hrossakjöt. Eftirminnilegasta atvikið við bú störfin? Við erum enn að bíða eftir því. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Búið til ykkar eigið beikon Svínasíðan er ein mesta gjöf mat- gæðinga og tilvalin til beikongerð- ar. Beikon er venjulega saltpæklað og síðan reykt. Annaðhvort nota menn saltlög eða þurrverka kjöt- ið. Útkoman er ferskt beikon eða „pansetta“ sem er hálfþurrkað beikon. Fyrsta skref í beikongerðinni er að finna heila svínasíðu. Það er raun- ar synd að það er erfitt að fá hana í heilu því oftast er hún skorin í minni bita. Biðjið kjötkaupmanninn ykkar um heila síðu eða reynið að versla beint við bændur. Ef það tekst ekki verður beikonið bara minna en alveg jafn ljúffengt. Beikon með svörtum pipar og púðursykri › 1 stk. myndarleg svínasíða › ¼ dl sjávarsalt › 1 dl dökkbrúnn sykur › 1 matskeið ferskur malaður svartur pipar › ½ tsk. marið lárviðarlauf › 1 tsk. saxaður laukur (eða duft) › 1 tsk. saxaður hvítlaukur (eða duft) › ½ tsk. malað timjan eða blóðberg (þurrkað) › 1 tsk. nitritsalt fyrir þá sem vilja bleikt beikon (má sleppa) Aðferð Blandið salti, púðursykri, svörtum pipar, lárviðarlaufinu, lauk, hvítlauk og blóðbergi saman í stóru plastíláti með loki. Bætið við svínakjötinu með fituna upp, nuddið og geymið í kæli í 10 daga. Snúið svínakjötinu á hina hliðina eftir fimm daga. Eftir dag 10, fjarlægið svínakjöt- ið úr ílátinu og skolið með köldu vatni. Fjarlægið eins mikið af krydd- blöndunni og mögulegt er. Þerrið og geymið í kæli, án plastloks, í 24 klukkustundir til að fá smá húð. Hitið grillið 150 °C með eldi úr viði með ögn af kolum til að halda uppi hitanum. Reykið í um 1½ klst. á kg við 100 °C þar til innra hitastig nær 70 °C. Fjarlægið og látið beikonið hvíla við stofuhita í 30 mínútur. Kælið beikon áður en það er sneitt. Steikið beikonsneiðar á heitri pönnu yfir miðlungshita í 5 mínútur á hvorri hlið, eða þar til það er stökkt. Ofnbökuð svínasíða með krydd- blöndu og bjór Fyrir kryddblöndu › Ögn ólífuolía › 2 tsk. salt › 1 tsk. cayenne pipar › 1 tsk. malað cumin › 2 stk. saxaður hvítlaukur › 1 tsk. reykt paprika (duft) › 1 msk. púðursykur › 1 bjór eða jafnvel tveir (einn í réttinn, hinn fyrir kokkinn) Aðferð Leggið fituhliðina upp og þurrkið hana með pappír. Skerið með beitt- um hníf nokkrar skálínur yfir fituna og endurtakið í hina áttina á ská. Blandið saman salti og kryddunum í litla skál og nuddið kjötið með krydd- unum og púðursykrinum. Úðið yfir ólífuolíu, setjið í poka og setjið kjötið í ísskáp í lágmark klukkutíma. Hitið ofninn í 220 °C. Leggið á fitu- hlið upp næstu 10 til 15 mínútur. Passið upp á að skoða kjötið reglu- lega því á einhverjum tímapunkti fer fitan að brúnast. Þegar það gerist, lækkið í 90 °C og látið það malla með loki í 90 mínútur. Eftir 90 mínútur, opnið einn bjór og hellið í ofnfatið. Látið malla í annan klukkutíma. Soðinu verður að hella yfir kjötið þegar það er sneitt eða rifið. Það eru nokkur atriði sem þú getur gert við svínakjötsafganga. Það er gott að hafa nóg til. Besta Taco- fylling allra tíma er svínakjöt með salsa, dýrindis samlokufylling með ögn af BBQ-sósu. Líka hægt að saxa smá vorlauk og framreiða í kínversk- um pönnukökum ásamt hoisin-sósu. Þetta er máltíð sem er gott að eiga í frystinum þegar þarf bragóðan skyndibita. Spaghetti Carbonara: Spaghetti Carbonara er ljúffengur og auðveldur réttur sem inniheldur í rauninni bara beikon, egg og pasta. Rétturinn kemur upphaflega frá Apennine-hæðum Mið-Ítalíu nálægt Róm. › 2 handfylli spaghetti › 4 stór egg › 8 sneiðar beikon, pansetta eða beikon í bitum › 1/2 bolli ferskur rifinn Parmigiano- Reggiano › 1/2 bolli ferskur rifinn ostur, t.d. brauðostur eða jafnvel ítalskur sauðostur › Ferskur malaður svartur pipar › Sjávarsalt Aðferð Sjóðið 3 lítra af ríkulega söltuðu vatni (það ætti að smakkast eins og hafið) og látið sjóða. Bætið spaghettí og eldið í um 8 til 10 mínútur eða þar til „al dente“. Þegar pasta er gert, geymið 1/2 bolla af vatni, sigtið og kælið. Þegar pasta er eldað, hitið stóra pönnu yfir miðlungshita. Bætið beikoni og eldið í um 3 mínútur eða þar til kjötið er stökkt og gullið. Þeytið egg og ost vel saman í skál. Setjið geymda pastavatnið í pönnuna. Bætið í spaghettí og hristið pönnu yfir hitanum í nokkrar sekúndur þar til pastað er heitt. Fjarlægið pönnuna af hitanum og bætið í eggjablöndu og hrærið fljótt þar til eggin þykkna. Ef sósan virðist of þykk, þynnið þá með smá pastavatni. Kryddið vel með svörtum pipar. Gæti þurft smá salt. Skiptið pasta í skálar og framreiðið strax. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Bakkakot

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.