Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Við flytjum í Bakkakot árið 2000
og byrjum að búa þar með nokkr-
ar kindur sem við eigum. Síðan þá
höfum við verið að fjölga smátt og
smátt.
Býli: Bakkakot.
Staðsett í sveit: Refasveit
í Blönduósbæ í Austur-
Húnavatnssýslu.
Ábúendur: Ragnar Heiðar
Sigtryggsson og Aðalbjörg
Valdimarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýr):
Við eigum þrjá syni, Gísla 16 ára,
Pálma 13 ára og Guðna 6 ára, ásamt
hundinum Týru og kisunni Rusla.
Stærð jarðar: Um 300 ha.
Gerð bús: Við erum með fjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir:
Við erum með 290 kindur og 25
hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Við vinnum bæði utan bús og
sinnum búinu utan vinnutíma, þ.e.
snemma á morgnana og síðan seint
á kvöldin.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Allt er gaman ef við
ger um það saman, nema tína plast
af girðingum, segir Hjördís.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Mjög svipað og hann er í dag.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda?
Þau eru í finum málum.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Vonandi bara vel.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Með því að flytja út ferskt kjöt og
sýna fram á hreinleika afurðanna.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ostur, skinka, ávextir og græmeti.
Hver er vinsælasti maturinn á
heim ilinu? Saltað hrossakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bú störfin? Við erum enn að bíða
eftir því.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Búið til ykkar eigið beikon
Svínasíðan er ein mesta gjöf mat-
gæðinga og tilvalin til beikongerð-
ar. Beikon er venjulega saltpæklað
og síðan reykt. Annaðhvort nota
menn saltlög eða þurrverka kjöt-
ið. Útkoman er ferskt beikon eða
„pansetta“ sem er hálfþurrkað
beikon.
Fyrsta skref í beikongerðinni er
að finna heila svínasíðu. Það er raun-
ar synd að það er erfitt að fá hana í
heilu því oftast er hún skorin í minni
bita. Biðjið kjötkaupmanninn ykkar
um heila síðu eða reynið að versla
beint við bændur. Ef það tekst ekki
verður beikonið bara minna en alveg
jafn ljúffengt.
Beikon með svörtum pipar
og púðursykri
› 1 stk. myndarleg svínasíða
› ¼ dl sjávarsalt
› 1 dl dökkbrúnn sykur
› 1 matskeið ferskur malaður svartur
pipar
› ½ tsk. marið lárviðarlauf
› 1 tsk. saxaður laukur (eða duft)
› 1 tsk. saxaður hvítlaukur (eða duft)
› ½ tsk. malað timjan eða blóðberg
(þurrkað)
› 1 tsk. nitritsalt fyrir þá sem vilja bleikt
beikon (má sleppa)
Aðferð
Blandið salti, púðursykri, svörtum
pipar, lárviðarlaufinu, lauk, hvítlauk
og blóðbergi saman í stóru plastíláti
með loki.
Bætið við svínakjötinu með fituna
upp, nuddið og geymið í kæli í 10
daga. Snúið svínakjötinu á hina
hliðina eftir fimm daga.
Eftir dag 10, fjarlægið svínakjöt-
ið úr ílátinu og skolið með köldu
vatni. Fjarlægið eins mikið af krydd-
blöndunni og mögulegt er.
Þerrið og geymið í kæli, án plastloks,
í 24 klukkustundir til að fá smá húð.
Hitið grillið 150 °C með eldi úr viði
með ögn af kolum til að halda uppi
hitanum. Reykið í um 1½ klst. á kg við
100 °C þar til innra hitastig nær 70 °C.
Fjarlægið og látið beikonið hvíla við
stofuhita í 30 mínútur. Kælið beikon
áður en það er sneitt.
Steikið beikonsneiðar á heitri pönnu
yfir miðlungshita í 5 mínútur á hvorri
hlið, eða þar til það er stökkt.
Ofnbökuð svínasíða með krydd-
blöndu og bjór
Fyrir kryddblöndu
› Ögn ólífuolía
› 2 tsk. salt
› 1 tsk. cayenne pipar
› 1 tsk. malað cumin
› 2 stk. saxaður hvítlaukur
› 1 tsk. reykt paprika (duft)
› 1 msk. púðursykur
› 1 bjór eða jafnvel tveir (einn í réttinn,
hinn fyrir kokkinn)
Aðferð
Leggið fituhliðina upp og þurrkið
hana með pappír. Skerið með beitt-
um hníf nokkrar skálínur yfir fituna
og endurtakið í hina áttina á ská.
Blandið saman salti og kryddunum í
litla skál og nuddið kjötið með krydd-
unum og púðursykrinum. Úðið yfir
ólífuolíu, setjið í poka og setjið kjötið
í ísskáp í lágmark klukkutíma.
Hitið ofninn í 220 °C. Leggið á fitu-
hlið upp næstu 10 til 15 mínútur.
Passið upp á að skoða kjötið reglu-
lega því á einhverjum tímapunkti fer
fitan að brúnast. Þegar það gerist,
lækkið í 90 °C og látið það malla
með loki í 90 mínútur.
Eftir 90 mínútur, opnið einn bjór og
hellið í ofnfatið. Látið malla í annan
klukkutíma. Soðinu verður að hella
yfir kjötið þegar það er sneitt eða
rifið.
Það eru nokkur atriði sem þú getur
gert við svínakjötsafganga. Það er
gott að hafa nóg til. Besta Taco-
fylling allra tíma er svínakjöt með
salsa, dýrindis samlokufylling með
ögn af BBQ-sósu. Líka hægt að saxa
smá vorlauk og framreiða í kínversk-
um pönnukökum ásamt hoisin-sósu.
Þetta er máltíð sem er gott að eiga
í frystinum þegar þarf bragóðan
skyndibita.
Spaghetti Carbonara:
Spaghetti Carbonara er ljúffengur
og auðveldur réttur sem inniheldur
í rauninni bara beikon, egg og pasta.
Rétturinn kemur upphaflega frá
Apennine-hæðum Mið-Ítalíu nálægt
Róm.
› 2 handfylli spaghetti
› 4 stór egg
› 8 sneiðar beikon, pansetta eða beikon
í bitum
› 1/2 bolli ferskur rifinn Parmigiano-
Reggiano
› 1/2 bolli ferskur rifinn ostur, t.d.
brauðostur eða jafnvel ítalskur
sauðostur
› Ferskur malaður svartur pipar
› Sjávarsalt
Aðferð
Sjóðið 3 lítra af ríkulega söltuðu vatni
(það ætti að smakkast eins og hafið)
og látið sjóða. Bætið spaghettí og
eldið í um 8 til 10 mínútur eða þar til
„al dente“. Þegar pasta er gert, geymið
1/2 bolla af vatni, sigtið og kælið.
Þegar pasta er eldað, hitið stóra pönnu
yfir miðlungshita. Bætið beikoni og
eldið í um 3 mínútur eða þar til kjötið
er stökkt og gullið. Þeytið egg og ost
vel saman í skál.
Setjið geymda pastavatnið í pönnuna.
Bætið í spaghettí og hristið pönnu
yfir hitanum í nokkrar sekúndur þar
til pastað er heitt. Fjarlægið pönnuna
af hitanum og bætið í eggjablöndu og
hrærið fljótt þar til eggin þykkna. Ef
sósan virðist of þykk, þynnið þá með
smá pastavatni.
Kryddið vel með svörtum pipar. Gæti
þurft smá salt. Skiptið pasta í skálar
og framreiðið strax.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Bakkakot