Bændablaðið - 27.08.2015, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Áhugaverðir tímar fram undan í mjólkurframleiðslunni:
Byggja á nýjan samning á grunni þess sem
fyrir er og gera nauðsynlegar breytingar
Á dögunum bárust um það fregnir að aukning í mjólkurframleiðslu hefði
verið tæp 15 prósent miðað við sama tíma í fyrra og voru þá horfur á því
að framleiðsla þessa árs yrði meiri en greiðslumark ársins, sem er 140
milljónir lítra. Um svipað leyti sendu Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
bréf til bænda þar sem samdráttur er boðaður á greiðslumarki næsta
árs. Áður hafði því verið lýst yfir að greitt yrði fullt afurðastöðvaverð
fyrir alla innvegna mjólk út næsta ár.
Landbúnaðarráðherra hefur boðað uppstokkun á greiðslumarkskerf-
inu svo það er ljóst að það eru forvitnilegir tímar fram undan í
mjólkurframleiðslunni. Því er ekki úr vegi að kanna hug formanns
Landssambands kúabænda til stöðunnar og hvers sé að vænta.
„Það hefur verið ævintýraleg aukn-
ing í sölu mjólkurafurða síðustu tvö
ár, einkum þeim fituríkari. Frá miðju
ári 2013 til dagsins í dag er aukn-
ingin í smjörsölu til að mynda 21
prósent, rjóma 11 prósent og feitum
ostum um 11 prósent, þá hefur sala
nýmjólkur vaxið um þrjú prósent,
eftir viðvarandi samdrátt síðustu ára-
tugi. Vegna þessa var greiðslumark
aukið milli áranna 2013 og 2014
úr 116 milljónum lítra í 125 mill-
ljónir og síðan í 140 milljónir fyrir
yfirstandandi ár. Þessi mikli vöxtur
hefur verið mjög krefjandi verkefni
fyrir greinina, en ekki verður betur
séð en bændum hafi gengið vel að
nýta þau tækifæri sem hann hefur
skapað,“ segir Sigurður Loftsson,
formaður Landssambands kúabænda,
um stöðu mála.
Laga þarf greiðslumarkið að
bættri birgðastöðu
„Hluti þess greiðslumarks sem
ákvarðað var fyrir yfirstandandi ár
kom til vegna þess að byggja þurfti
upp nauðsynlegar birgðir, en þær
höfðu gengið til þurrðar í söluaukn-
ingu síðustu ára. Söluspáin gerði ráð
fyrir aukningu upp á 136 milljón-
um lítra og 4 milljónir voru áætl-
aðar til birgðasöfnunar. Nú stefnir
í að framleiðsla yfirstandandi árs
verði nokkuð yfir útgefnu greiðslu-
marki og því líklegt að laga þurfi
greiðslumarkið til samræmis við
bætta birgðastöðu. Lækki greiðslu-
markið deilast stuðningsgreiðslurnar
á færri lítra sem því nemur, það gerir
þeim væntanlega léttara fyrir sem
átt hafa í erfiðleikum við að fylla
sitt greiðslumark. Að öðru leyti sé
ég ekki annað en komandi ár geti
orðið kúabændum hagfellt. Það er
ennþá þokkalegur vöxtur í sölu, en
auðvitað er nauðsynlegt að haldið
verði vel á spöðum í markaðsmálum
og hvergi slakað á því efni,“ segir
Sigurður. Hann segir enga ástæðu
til að efast um að ekki verði staðið
við yfirlýsingar um að áfram verði
greitt fullt afurðastöðvarverð fyrir
alla mjólk á næsta ári.
Brýnt að taka upp starfsskilyrði
kjötframleiðslunnar
Nú rennur mjólkursamningurinn út
í árslok á næsta ári. Sigurður segist
sjá það fyrir sér að nýr samningur um
starfsskilyrði kúabænda muni taka
mið af þeim árangri sem núverandi
samningur hefur skilað. „Í nýlegri
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands kemur fram að núverandi
samningur um starfsskilyrði mjólk-
urframleiðslunnar og þau ákvæði
búvörulaganna sem tengjast grein-
inni, hafa skilað verulegum árangri
til hagsbóta fyrir neytendur og tryggt
afkomu bænda. Ég tel því eðlilegt
að byggt verði áfram á grunni þess
fyrirkomulags sem í gildi er, en þróa
það jafnframt áfram og sníða af því
þá agnúa sem til staðar eru. Mikil-
vægustu þættirnir sem varða starfs-
skilyrði mjólkurframleiðslunnar eru
tollverndin og að bændur fái áfram
að koma fram sameinaðir gagnvart
markaði, að þessu þarf sérstaklega
að gæta. Síðan er að mínu mati al-
görlega nauðsynlegt að tekið verði
á starfsskilyrðum nautakjötsfram-
leiðslunnar.“
Uppstokkun á styrkjakerfinu
hefur ekki verið rædd
Í ræðu landbúnaðarráðherra á síðasta
Búnaðarþingi kom fram að hann sæi
fyrir sér að með nýjum búvörusamn-
-
aði byrja að ganga í endurnýjun líf-
daga. Sigurður sér þó ekki fyrir sér að
þar verði einhver sérstök uppstokkun
í einni svipan. „Það hafa ekki verið
viðraðar neinar hugmyndir eða til-
lögur af því tagi við okkur varðandi
mjólkina og ég tel afar ólíklegt að
svo verði. Að mínu mati ber að horfa
til þess að stuðningur ríkisins við
greinina treysti afkomu bænda og
stuðli að bættum aðbúnaði gripa, en
jafnframt lægra vöruverði til neyt-
enda og bættri samkeppnishæfni
greinarinnar. Það má líka benda á að
síðasta Búnaðarþing varaði við hug-
myndum um landgreiðslur, þar sem
slíkur stuðningur hefði ríka tilhneig-
ingu til að eigngerast. Ég óttast að
það sama geti átt við um búsgreiðsl-
ur. Í þessu sambandi er líka rétt að
minna á, að landbúnaðarráðherra gaf
um síðustu áramót út nýja reglugerð
um velferð nautgripa, þar sem um
helmingur allra fjósa í landinu var
úreltur á næstu 20 árum. Landssam-
band kúabænda hefur áætlað að fjár-
festingarþörf greinarinnar einungis
vegna þess sé ekki undir 18 millj-
örðum. Með einhverjum hætti verður
greinin að bera þá fjárfestingu. Það
er ekki bundið við Ísland að eigin-
fjármyndun í landbúnaði sé hæg,
slíkt er fremur algengara en hitt víð-
ast hvar í þróuðum löndum. Margar
þjóðir bregðast við þessu með því
að tryggja landbúnaðinum aðgang
að langtímafjármögnun á boðlegum
vöxtum, slíku er hins vegar ekki til
að dreifa hér. Það bætir þá varla úr
skák ef stuðningsgreiðslum greinar-
innar verður spreðað út um holt og
móa með óljósum tilgangi.
Ég tel því að það eigi að byggja
nýjan samning á grunni þess sem
fyrir er, en gera á því nauðsynlegar
breytingar. Það gildir um greiðslu-
Skiptir mestu að það sé stuðlað að
traustri búsetu
Sú þróun hefur orðið í mjólkurfram-
leiðslunni að kúabú hafa verið að
stækka. Risafjós er í byggingu hjá
hefur ekki áhyggjur af því að það séu
ekki bændur sem standi að slíkum
búrekstri og þiggi stuðningsgreiðslur
en aðrir til þeirra hugmynda sem
forsvarsmenn Flateyjarbúsins hafa
um framtíð þess, en vissulega eru þar
á ferð hugmyndir um stærra bú en áð-
ur hefur þekkst hér á landi. Það sem
skiptir mestu máli í þessu sambandi
er hvort rekstur þessa bús stuðlar að
traustari búsetu fólks í sínu nærum-
-
lega neikvætt að utanaðkomandi aðil-
ar vilji fjárfesta í greininni. Hins vegar
er það mín skoðun að fjölskyldubúið
eigi áfram að vera sá grunnur sem
nautgriparæktin byggir á, en það
verður líka að þróast í samhliða nýrri
tækni og auknum samfélagskröfum.
Hvað varðar beingreiðslurnar, þá
eru þær greiddar á framleiddan lítra
mjólkur innan greiðslumarks og gera
sér engan mannamun í því eins og
fyrirkomulagið er í dag, enda eru
þær hugsaðar til að lækka vöruverð
til neytenda. Sé hins vegar vilji til
þess að taka í auknum mæli tillit til
stærðarhagkvæmni búanna við útdeil-
ingu stuðnings, er eðlilegast að ræða
það samhliða nýjum samningi.“
Tækifæri fyrir dugmikla og
útsjónarsama bændur
„Núverandi stjórnvöld hafa lýst
því í stjórnarsáttmála að íslenskum
landbúnaði verði gert kleift að nýta
þau sóknarfæri sem greinin stend-
ur frammi fyrir. Nú í byrjun sumars
var endanlega staðfest skipun samn-
inganefndar vegna búvörusamninga
og væntanlega verður gengið frá
nýjum samningum á komandi vikum
eða mánuðum sem gilda muni næstu
ár. Þar munu að vonum felast tæki-
færi fyrir dugmikla og útsjónarsama
bændur. Ég er því heldur bjartsýnn á
framtíðina fyrir hönd nautgriparækt-
arinnar.“ /smh
Mynd / TBSigurður Loftsson, formaður Lands-
Mynd / HKr.
Klippt og
Skorið
Hafðu samband í síma 480 5600 eða á landstolpi@landstolpi.is
og fáðu nánari upplýsingar
Landstólpi Gunnbjarnarholti 801 Selfoss
s. 4 80 5600 landstolpi@landstolpi.is www.landstolpi.is
TRIOLIET Turbobuster stæðuskerar -
Hraðvirkir og sterkbyggðir.
Landstólpi er vaxandi fyrirtæki með kjarnastarfsemi í heildsölu
og smásölu landbúnaðarvara og byggingu stálgrindarhúsa.