Bændablaðið - 27.08.2015, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Hagur loðdýrabænda á Íslandi
hefur heldur vænkast á þessu ári
eftir mikið verðfall á minkaskinn-
um á síðasta ári. Við árslok 2014
voru 33 aðilar með aliminka á 28
minkabúum í landinu samkvæmt
tölum MAST.
Staðan á skinnamörkuðum hefur
farið hægt batnandi, en óvissa ríkir
þó enn varðandi stóra skinnakaup-
endur eins og Rússa og Kínverja. Á
þeim 28 loðdýrabúum sem hér eru
starfrækt voru um 44 þúsund paraðar
læður samkvæmt upplýsingum frá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og
skv. niðurstöðum úr plasmacytósu-
rannsóknum. Tveir bændur hættu
minkarækt en nokkuð er um að
fleiri en einn bóndi séu með dýr á
sama búi.
Staða minkaræktunar í landinu er
í heild nokkuð góð þótt verðsveiflur á
skinnum hafi gert mörgum erfitt fyrir.
Mikill árangur hefur náðst í ræktun-
arstarfi minkabænda í kjölfarið á
innflutningi kynbótadýra. Þar hafa
íslenskir bændur skipað sér í efstu sæti
í gæðum skinna á heimsvísu. Koma
þeir þar fast á hæla danskra kollega
sinna en mikil og góð samvinna hefur
verið á milli þessara frændþjóða í
minkaræktinni. Það hefur skilað sér
í stærri dýrum og betri feldgæðum.
Tvö einangrunarbú fyrir
innflutning
Í norðvesturumdæmi eru starfrækt tvö
einangrunarbú fyrir innflutta minka.
Í maí og í desember voru fluttir inn
annars vegar 1.140 högnar og hins
vegar 1.240 minkar af báðum kynjum
frá dönskum ræktunarbúum. Dýrin
voru flutt með flugi til Keflavíkur og
flutt í einangrunarstöð í Skagafirði.
Lögum samkvæmt voru dýrin í ein-
angrun í rúma 6 mánuði og var ein-
angrun aflétt að loknum rannsóknum
af fyrri innflutningshópnum í nóv-
ember.
Samkvæmt reglugerð um vel-
ferð minka skulu bændur láta prófa
að minnsta kosti 10% paraðra læða
á hverju búi fyrir A-sjúkdómnum
plasmacytosis. Allar blóðprufur sem
teknar voru á minkabúum landsins á
síðasta ári reyndust neikvæðar.
Tíðni algengustu sjúkdóma var
svipuð og undanfarin ár. Í byrjun
október vaknaði grunur á einum bæ
í norðvesturumdæmi um tilfelli af
B-sjúkdómnum lungnafári sem bakt-
erían Pseudomonas aeruginosa veldur.
Ekki náðist að staðfesta bakteríuna
og því voru engin staðfest tilfelli af
lungnafári á árinu.
Ný reglugerð um aðbúnað og
velferð minka tók gildi rétt fyrir árs-
lok 2014. Engar ábendingar bárust
Matvælastofnun á árinu sem sneru að
aðbúnaði og velferð minka.
Ekkert refabú starfrækt
Sem fyrr er ekkert refabú starfrækt á
landinu, einu refirnir sem haldnir eru
innan girðinga, svo vitað sé, er refapar
í Húsdýragarðinum í Reykjavík.
Eitt stórt kanínubú
Tæplega 300 kanínur eru haldnar
sem hluti af búfénaði á Íslandi við
lok árs 2014. Eitt stórt holdakanínu-
bú er á landinu og nokkuð er um að
einstaklingar haldi nokkrar kanínur,
ýmist af angóru-, holda- eða feldkyni,
sem gæludýr eða til heimanotkun-
ar. Slátrun á holdakanínum hófst á
Hvammstanga haustið 2014 og hefur
sala afurða gengið vel. /HKr.
Fréttir
Kartöflurækt á Norðurlandi:
Gerist ekkert undir
grösunum í sólarleysi
Staðan í loðdýraræktinni á Íslandi er nokkuð góð:
Yfir 43 þúsund minkalæður og rúmlega
8 þúsund högnar á 28 búum
„Þetta var nú frekar dapurt,
bæði lítið og lélegt,“ segir Bergvin
Jóhannsson, kartöflubóndi á
Áshóli í Grýtubakkahreppi. Hann
hefur aðeins litið undir grösin og
segir að mun minna sé undir en
vant er.
Bergvin segir að þetta sumar sé
gjörólíkt því sem var í fyrra, það var
einstaklega gott og allt snemma á
ferðinni. „Ég kíkti undir grösin hjá
mér þegar aðeins var liðið á ágúst-
mánuð, en það er um þremur vikum
seinna en ég er vanur.“ Óvenju kalt
og blautt hefur verið í nánast allt
sumar.
„Þetta getur farið á hvorn veg
sem er,“ segir Bergvin, en verði
sólríkir dagar nú síðsumars gæti
spretta tekið við sér. Aftur á móti
megi ekki búast við góðri uppskeru
verði tíð með sama hætti og verið
hefur. „Það gerist ekkert undir grös-
unum ef það er sólarlaust, það er
alger forsenda þess að spretta taki
við sér að sólin fari að láta sjá sig.
Ef okkur verður ekki að þeirri ósk
má búast við að uppskeran í haust
verði fremur léleg,“ segir Bergvin.
/MÞÞ
Kínverjar hafa verið mjög umsvifamiklir kaupendur á skinnamarkaði á
undanförnum árum. Þessi mynd var tekin í uppboðshúsi Kobenhagen Fur
í Danmörku þar sem Kínverjar eru jafnan mjög áberandi.
Hér bíður stór skinnasending lestunar í loðskinnauppboðshúsi Kopenhagen
Fur, en fyrirtækið er jafnframt með vöruhús í Kína.
Myndir / HKr.
Kartöflur ræktaðar í Ikea-pokum
Í garði á Eyrarbakka eru
íslenskar kartöflur ræktaðar í
Ikea-pokum með góðum árangri.
Kartöflurnar voru settar niður í
vor og þegar þær verða teknar upp
í haust er sturtað úr pokunum og
kartöflurnar tíndar úr, sniðug lausn
fyrir fólk sem hefur ekki garð, býr
t.d. í blokk eða annað slíkt. /MHH
Hér eru nokkrir Ikea-pokar í garðinum á Eyrarbakka með fallegum kart-
Mynd / MHH
í vonina að úr rætist, en eftir kalt og blautt sumar er spretta hæg og því má
allt eins búast við að uppskera verði með lélegra móti í haust. Mynd / MÞÞ