Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 1
16. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 27. ágúst ▯ Blað nr. 449 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000
Íslenskir bændur:
Framleiða um 30 þúsund tonn af kjöti á ári
− hlutfallslega er mest selt af alifuglakjöti, en síðan kemur kinda- og svínakjöt, en samdráttur var í sölu á nauta- og hrossakjöti
Samkvæmt tölum Búnaðarstofu
BÍ sem birtar eru á bls. 16 í
Bændablaðinu í dag, þá var kjöt-
framleiðslan á Íslandi frá ágúst
2014 til júlíloka 2015 samtals rúm-
lega 29.497 tonn. Var það aukning
upp á 1,3% á milli ára, eða svipað
og söluaukningin milli ára.
Mest var framleitt af kindakjöti,
eða rétt rúm 10 þúsund tonn, en
þar á eftir kom alifuglakjöt, 8.368
tonn. Svínakjöt var síðan í þriðja
sæti með tæplega 6.622 tonn. Eins
voru framleidd tæplega 3.340 tonn
af nautakjöti og tæplega 1.086 tonn
af hrossakjöti.
Meðaltalsaukning á þessu 12
mánaða framleiðslutímabili upp
á 1,3% var haldið uppi af aukinni
framleiðslu á alifuglakjöti upp
á 5,5% og aukinni framleiðslu á
kinda- og svínakjöti upp á tæplega
2% í hvorri grein. Athygli vekur að á
sama tíma varð verulegur samdráttur
í hrossakjötsframleiðslunni eða sem
nemur -12,2% og í nautakjötsfram-
leiðslunni upp á -6,1%.
Verkfall skekkti myndina
Ef tekin er staðan síðustu þrjá mánuði
var samdrátturinn í hrossa- og nauta-
kjötsframleiðslunni mun meiri, eða
-31,2% í hrossakjötinu og -11,3%
í nautakjötinu. Það skýrist væntan-
lega að einhverju leyti af verkfalli
dýralækna.
Virðist verkfallið einnig hafa
haft einhver áhrif á samdrátt í sölu
á nautakjöti á sama tímabili upp á
-15,1%, á hrossakjöti upp á -2,8%
og á alifuglakjöti upp á -2,3%. Á
þessu þriggja mánaða tímabili varð
aftur á móti umtalsverð söluaukning
á svínakjöti sem nam 12,3% og á
kindakjöti upp á 6,6%. Þess ber þó að
geta að salan á kindakjöti sýnir tölur
yfir sölu afurðastöðva til kjötvinnsla
og verslana, en ekki endanlega sölu
til neytenda.
Um 1,2% aukning í kjötsölunni
Heildarsalan á kjöti á innanlands-
markaði á tólf mánaða tímabili frá
byrjun ágúst 2014 til loka júlí 2015,
nam rúmum 24.518 tonnum. Er það
söluaukning upp á 1,2% á milli ára.
Er það tæpum 5.000 tonnum
minna en heildarframleiðslan á sama
tíma, en hluti af þeirri framleiðslu var
seldur til útflutnings.
Mest var selt af alifuglakjöti,
eða rúmlega 7.976 tonn. Þá komu
sauðfjárafurðir með 6.784 tonn og
svínakjötssalan nam rúmlega 5.891
tonni. Nautakjötssalan nam rúmu
3.321 tonni og seld voru rúm 545
tonn af hrossakjöti.
Hlutfallslega er mest selt af
alifuglakjöti og er hlutdeildin þar
32,5%. Sauðfjárafurðir standa fyrir
27,7%, svínakjöt fyrir 24% og
nautakjöt er með 13,5% hlutdeild.
Hrossakjötið rekur svo lestina með
2,2% markaðshlutdeild. /HKr.
Mynd / HKr.
14, 24–2520 26