Bændablaðið - 27.08.2015, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
„Það var virkilega ánægjulegt að
fá þennan titil, þarna voru mjög
margir góðir handverksmenn með
fallegt handverk. Ég er því himin-
lifandi með þessa viðurkenningu
og hún gefur mér byr undir báða
vængi að halda ótrauð áfram með
mín verk,“ segir Þórdís Jónsdóttir,
sem valin var Handverksmaður
ársins 2015 á Handverkshátíð á
Hrafnagili sem haldin var um liðna
helgi.
Þórdís hefur undanfarin ár hand-
bróderað púða og myndir og sótt
innblástur í gömul mynstur og hand-
bragð.
Í umsögn dómnefndar segir að
fágað og listrænt handverk Þórdísar
og samspil forms og lita hafi heillað
dómnefndarmenn.
„Fullkomið vald á viðfangsefninu
birtist með skýrum og fjölbreyttum
hætti.“
Áhugi á handverki frá barnæsku
Þórdís hefur alla tíð haft áhuga á
handverki og segir að hún hafi nánast
drukkið það í sig með móðurmjólk-
inni, en foreldrar hennar voru liðtækir
handverksmenn.
„Þau voru bæði að sinna hand-
verki eftir því sem færi gafst frá dag-
legum önnum á stóru heimili,“ segir
hún. Strax á æskuárum hafi hún því
lært ýmislegt sem því viðkemur og
ekki síst að bera virðingu fyrir góðu
handverki.
Fyrir allmörgum árum var Þórdís
í samstarfi við mágkonu sína, en í
sameiningu ráku þær Saumasmiðjuna
og saumuðu barnaföt. Þórdís sá þá
m.a. um að bródera mynstur í fötin.
„Þetta var mjög skemmtilegur tími
og það gekk vel hjá okkur. Fötin voru
vinsæl, við lögðum áherslu á að hafa
þau vönduð og falleg. Eins og gengur
snerum við okkur svo að öðru, fórum
hvor í sína áttina og fundum annan
starfsvettvang, en það er aldrei að
vita nema við tökum þráðinn upp að
nýju síðar,“ segir Þórdís.
Eins og hjá afa og ömmu
Hún tók síðan fljótlega til við að
hanna og bródera í púða.
„Þetta eru púðar af því tagi sem
margir kannast við af heimilum
ömmu sinnar og afa, þeir voru mjög
algengir fyrir þó nokkuð mörgum
áratugum og þóttu þá mikil stofu-
prýði. Jafnvel hefur maður heyrt
sögur af því að þegar komu gestir,
einkum börn, hafi púðunum verið
snúið við til að hlífa þeim. Ég heyri
þetta reyndar enn, fólk hefur haft á
orði við mig að það myndi alls ekki
tíma að hafa púða af þessu tagi uppi
við í stofunni sinni.
Ég hef þá stundum bent á að fólk
kaupir skó fyrir tugi þúsunda og notar
þá. Það sama ætti að gilda um púða
í stofunni heima, þeir eru ekki bara
til skrauts, þá má nota,“ segir Þórdís
og bendir á að púðarnir eigi langa líf-
daga, mun lengur en t.d. skófatnaður.
„Þetta eru viðbrögð sem ég fæ
stundum, en vissulega eru viðhorf
manna misjöfn og smekkur með
ólíkum hætti. Það er allt í lagi með
það og raunar bara fínt að allir séu
ekki eins.“
Hugarfarið breyttist eftir hrun
Boltinn fór að rúlla hjá Þórdísi hvað
púðasauminn varðar í kringum árið
2007. Hún lagði til nokkra af púðum
sínum á setustofu veitingastaðarins
Friðrik V. þegar hann var opnaður
í Kaupvangsstræti, Gilinu á sínum
tíma.
„Þeir vöktu strax athygli og fólk
fór að spyrjast fyrir um hvort ég gæti
útvegað því púða. Ég tók sérstaklega
eftir því að á árunum eftir hrun virtist
viðhorf fólks breytast. Fólk þekkti
púða af þessu tagi frá heimilum sem
voru því kær, t.d. hjá afa og ömmu,
og það var eins og menn vildu að
einhverju leyti endurvekja þá góðu
og ljúfu stemningu sem þar var,“
segir Þórdís.
„Það var eins og fólk vildi í aukn-
um mæli halda á lofti því gamla og
góða, hafa hlýlegt í kringum sig. Ég
tók vel eftir því hvernig hugarfarið
breyttist í þá veru.“
Vinsælar tækifærisgjafir
Hún sækir innblástur í gömlu púð-
ana, leitar fanga hvað mynstur varð-
ar í gamlar bækur og einnig er slík
mynstur að finna á netinu.
„En svo tekur sköpunargleðin
völdin, ég útfæri mynstrin og mynd-
irnar eftir mínu höfði, þannig að mín
verk eru mitt hugarfóstur frá grunni,
þó svo að ég styðjist við eldri verk
og mynstur.“
Þórdís vinnur við púðagerðina
heima við og býður þeim sem áhuga
hafa að koma og skoða, en einnig
heldur hún úti síðu á Facebook, hand-
bróderaðir púðar, þar sem áhugasam-
ir geta fylgst með hennar verkum.
Hún segir að verk hennar séu vinsæl
til tækifærisgjafa ýmiss konar, eins
og brúðkaups- eða jólagjafa.
Jákvæð þróun í handverki
Þórdís segir að það hafi verið
einkar ánægjulegt að taka þátt í
Handverkshátíðinni, en þar hafi hún
hitt fjölmarga sem lögðu leið sína í
kynningarbás hennar.
„Ég hef aldrei sýnt púðana þar
áður, það hefur bara einhvern veginn
staðið þannig á hjá mér að ég hef
ekki séð mér fært að taka þátt. Það
var því mjög skemmtilegt að taka
þátt núna og sjá þróunina sem orðið
hefur á þessum vettvangi. Hún er
jákvæð, það er fjöldinn allur af mjög
svo frambærilegu handverksfólki að
störfum hér á landi um þessar mund-
ir,“ segir Þórdís.
Þá segir hún jákvæðar viðtökur
gesta við handverki sínu ekki hafa
spillt fyrir gleðinni. „Það er frábært
að fá svona góð viðbrögð, gefur
manni svo mikið að sjá og heyra að
fólki líki það sem ég er að fást við,
í aðdraganda svona sýningar situr
maður mikið einn við vinnu sína svo
að það er gaman að hitta allt fólkið
sem leggur leið sína á þessa sýn-
ingu og ég er afskaplega glöð eftir
helgina,“ segir Þórdís.
Í nógu að snúast
Næsta verkefni er handan hornsins,
en Þórdís mun taka þátt í sýningunni
Handverk og hönnun í Ráðhúsi
Reykjavíkur í nóvember næstkom-
andi.
„Nú fer ég á fullt við að undirbúa
þá sýningu, það þýðir ekki annað
en að bjóða upp á eitthvað nýtt og
spennandi á hverri sýningu,“ segir
hún og bætir við að ýmsar hugmynd-
ir séu á ferðinni í hennar höfði.
Auk púðanna hefur hún til að
mynda líka saumað út myndir, bæði
litlar og stórar, og einnig gert púða
með myndum sem tengjast íslenska
þjóðbúningnum. Hún sýndi nokkur
útsaumsverk sín af því tagi á glugga-
sýningu hjá Litlu saumastofunni
við Brekkugötu fyrr í sumar en hún
var sett upp í tengslum við 100 ára
afmæli kosningaréttar kvenna og bar
yfirskriftina: Skundum á kjörstað.
Seinlegt verk en ánægjulegt
Þórdís segir að mikil vinna liggi
að baki hverju og einu verki, hvort
heldur sem er púði, mynd eða annað.
„Þetta er afskaplega seinlegt og þeir
eru býsna margir klukkutímarnir sem
fara í hvert og eitt þeirra.
Ég hef stundum ætlað mér að
tímamæla eitthvert verkefni, en sú
fyrirætlan hefur alltaf farið út um
þúfur, enda er þetta ekki verk sem
maður gerir í einum rykk. En ég hef
svo gaman af þessu að ég er ekki
að horfa í tímann sem í verkið fer,
fremur ánægjuna sem ég hef út úr
því og svo líka þeir sem á endanum
eignast verkið,“ segir Þórdís og bætir
við að hún sé afskaplega lánsöm að
hafa tækifæri til að geta einbeitt sér
algjörlega að handverkinu.
„Tímakaupið er ekki hátt og
eflaust ekki hægt að lifa á þessu einu
saman. En þetta gengur upp, áhugi
á íslensku handverki hefur á liðnum
árum aukist til muna og æ fleiri hafa
á því skilning að handverksfólk þarf
að hafa laun fyrir sína vinnu.“
/MÞÞ
Þórdís Jónsdóttir handverksmaður ársins 2015 á Handverkshátíð að Hrafnagili í Eyjafirði:
Frábært að fá svona góð viðbrögð
Fágað og listrænt handverk Þórdísar og samspil forms og lita heillaði dómnefndarmenn. Hér er Þórdís við eitt af
verkum sínum sem prýðir heimilið og heldur á einum af púðum sínum. Myndir / MÞÞ
Þórdís hefur undanfarin ár handbróderað púða og myndir og sótt innblástur
í gömul mynstur og handbragð.
Íslenski þjóðbúningurinn hefur orðið Þórdísi innblástur í verkum sínum, en
hún hefur gert púða með myndum sem tengjast honum.
Valnefnd Handverkshátíðar velur árlega fallegasta sölubás ársins og
handverksmann ársins.
Handverksmaður ársins er Þórdís Jónsdóttir og verðlaun fyrir sölubás
ársins hlaut Vagg og velta. Valnefnd veitti ein aukaverðlaun í ár, Gleði og
bjartsýnisverðlaunin, en þau hlaut Hildur Harðardóttir með sölubásinn
Hildur H. List-Hönnun. Fleira vakti athygli valnefndar, s.s. bás Hjartalags,
Leðurverkstæðið Hlöðutúni og Erna Jónsdóttir leirlistamaður. Verðlauna-
gripina í ár gerði Guðrún Gísladóttir.
Viðurkenningar á Handverkshátíð