Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 27

Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Noma í Kaupmannahöfn í hópi viðskiptavina „Um leið og Íslendingar fóru að neyta hvíta saltsins tapaðist talsvert af steinefnum og næringarefnum sem voru í þaranum. Þetta salt sel ég bæði í sælkeraverslunum, sérverslunum og til veitingahúsa. Líklega er ekki nema um 20 prósent af veltunni hjá mér sala í smásölu- verslanir og mun meira í svoköll- uðum túristaverslunum. Það hefur svo þróast í þá átt á síðustu árum að um tíu prósent af minni fram- leiðslu er selt til útflutnings. Af því er mikið sem fer inn á veitingahús og til víngerðar – og reyndar líka hér heima – og þá á hótel og bak- arí og fleira. Ég sel á veitingahús um öll Norðurlönd og til gaman má geta þess að í Hvítbók bestu veitingahúsa á Norðurlöndum, sem gefin var út í fyrra, erum við að selja til tíu af þrjátíu bestu stöðunum á þeim lista. Það er þá einkum krydd, brenndi þarinn, söl, þurrkað lyng, fjörugrös, þari og fleira. Ég hef selt töluvert til þess fræga veitinga- staðar í Kaupmannahöfn sem heit- ir Noma, sem hefur verið valinn besti veitingastaður heims í nokkur skipti. Þaðan hafa vörurnar mínar spurst dálítið út, enda er þar mikil miðstöð matargerðarlistar og margir veitingamenn sem koma þar við. Noma hefur keypt mest af sölvum, en einnig beltisþara og fjallagrös. Ég sel líka blóðberg nokkuð víða og svo hefur brugghús í Danmörku keypt af mér ætihvannarfræ. Ég hef óskaplega gaman af því að versla við þessi veitingahús, því það er mikið að gerast og á mörgum stöð- um eru afar frjósamir matreiðslu- menn sífellt að þróa sig áfram með bragð. Ég er í ágætu sambandi við þessa íslensku matreiðslumenn sem ég er í viðskiptum við og þeir leita mikið til mín ef það er eitthvað sem þá vantar eða vilja prófa. Þar má nefna þurrkuð bláber, þarasaltið, ætihvannarrót, -blöð og -fræ – og hráefni úr birki. Það sem ég er að fást við núna er mjög spennandi – ég er að vinna með þörung sem vex hér við Ísland sem er með keim eins og hvítur jarðsveppur (truffla). Ég hafði frétt af því að einhverjir norrænir matreiðslumenn höfðu snuðrað þetta upp og fór að grúska í þessu. Þessi vara er enn á þró- unarstigi og því ekki tilbúin,“ segir Eyjólfur sem greinilega er spenntur fyrir framvindu þessa máls. Eftirsótt þurrkað lyng og lauf „Kokkarnir eru rosalega hrifnir af þessu,“ segir Eyjólfur og sýnir blaðamanni ofan í sekk fullan af þurrkuðum jurtum. „Hluti af þeim berjum sem ég kaupi eru óhreinsuð og þegar við hreinsum berin tek ég lyngið og laufið frá, sem kemur með berjunum og þurrka það. Þessu fylgir ýmislegt eins og grænjaxlar og ýmis annar gróður. Yfirleitt sel ég þetta bara beint til kokkanna svona þurrk- að. En svo set ég saman við þetta krækiberjahrat og salt og úr þessu verður til krydd sem ég pakka inn í sælkerapakkningu.“ Eyjólfur er sem fyrr segir líf- fræðingur að mennt og segist alltaf hafa haft áhuga á náttúr- unni og því sem er í umhverfinu í kringum hann. „Ég hef tínt sveppi, fjallagrös og ýmislegt í gegnum tíðina til eigin nota. Í klaustri zen-búddista í Kaliforníu, sem ég tilheyri, kynntist ég svo þessari þaranotkun. Zen-búddisminn sem ég fylgi á rætur sínar í Japan og þar tíðkast mjög notkun á þessum sjávargróðri,“ segir Eyjólfur um upphaf þess að hann fór að gefa þaranum gaum. Þetta á mjög vel við mínar lífsskoðanir, að nytja það sem náttúran býður upp á og í raun hefur zen-búddisminn hjálpað mér við að skýra þær hugmyndir sem ég fæ varðandi nýtingu á afurðum náttúrunnar – yfirvega þær og koma í verk. Hugurinn róast og maður á auðveldara með að vera í sjálfum sér við hugleiðslu.“ Starfsstöð fatlaðra á Selfossi sér um pakkningu Öllu tei og kryddi, sem er í litlu gjafapakkningunum hjá Íslenskri hollustu, er að sögn Eyjólfs pakkað í starfsstöð fatlaðra á Selfossi. „Ég held að við höfum átt í því samstarfi í ein 6–8 ár og það hefur gengið mjög vel. Mér finnst mjög ánægju- legt að geta átt í þessu samstarfi og lagt mitt af mörkum. Annars erum við sjálf með tvær starfsstöðvar; í annarri fer fram móttaka og vinnsla á ákveðnum krydd- og tejurtum, þurrkun og pakkning á ákveðnum vörum, en í hinni er berjamóttaka og vinnsla – sultu- og saftgerðin. Ég kaupi mikið af aðalbláberjum, bláberjum, hrútaberjum og kræki- berjum. Í fyrra til dæmis keypti ég alls 12 tonn af berjum. Við erum að vinna úr þessu krækiberjasafa, bláberjasaft og svo gerum við mikið af sultum. Svo seljum við fersk ber á haustin og frosin ber allan ársins hring. Það gengur svo sem ágætlega núna að fá ber, enda hef ég verið að byggja upp sambönd í nokkurn tíma. Eins og fyrr segir er ég í raun með yfir 70 manns sem tína fyrir mig berin – á öllu landinu sem betur fer því á undanförnum árum hefur þessum gæðum verið mjög misskipt vegna tíðarfarsins. Í fyrra var ágætt norðaustanlands og austanlands, en mjög lítið á síðustu tveimur árum til dæmis á Vestfjörðum þar sem ég er víða með tínslufólk. Sunnanlands hefur verið líka mjög lélegt, en þó reyndar var aðeins að hafa þar í fyrra. Þetta er svo flutt hratt og vel með Landflutningum til mín og fer þá ýmist í kæli eða frysti.“ Jurtaæta sem drekkur ekki kaffi Eyjólfur er jurtaæta til fjölda margra ára. Hann segir að hann drekki heldur ekki kaffi og hafi ekki gert í 25 ár. Hann notar hins vegar villtu jurtirnar til að vega upp á móti þessu. „Ég var búinn að vera að prófa mig áfram með ýmsar jurtateblöndur og þekki þá möguleika mjög vel. Núna er ég kominn með þrjár blöndur í sölu sem allar eru tilkomnar þannig að mér hefur þótt þær falla best að mínum smekk og ég hef viljað drekka sjálf- ur,“ segir Eyjólfur og tekur dæmi af blöndu sem inniheldur fjallagrös, birki og ætihvönn í grunninn. „Ég bætti svo við hana mjaðjurt – en passa að hafa hana bara í bakgrunni. Þú finnur ekki beint fyrir bragðinu, því ef hún verður of ráðandi hefur bragðið tilhneigingu til að verða of væmið. Svo eru í þessu brenndar byggflögur sem ég fæ frá Vallanesi á Héraði, en þær gefa góða fyllingu. Hér áður fyrr var bygg gjarnan notað í stað kaffis og til að drýgja það þegar skortur var, til dæmis á stríðstímum.“ Einnig með bað- og húðvörur Auk þess að framleiða vörur fyrir bragðlaukana og magann er Eyjólfur með svolítið af bað- og húðvörum. „Ég er til dæmis með baðsalt, þar sem ég blanda saman jarðsalti úr borholu á Reykjanesi við þara annars vegar og Hekluvikur hins vegar, en hann er mjög hreinsandi fyrir húðina. Ég hef einnig verið að fikta við að búa til krem í einhver ár – og set rauðsmára í kremið mitt. Það skilst mér að virki svo vel á þurra húð, exem og sumar tegundir af soriasis. Rauðsmárinn er sérstaklega virkur, en svo er ég með nokkrar aðrar tegundir í þessu kremi. Það hefur komið í ljós við rannsóknir á honum að hann virðist vera mun öflugri hér á landi en í löndum sunnar í Evrópu. Rannsóknarstofan Sýni hefur gert efnagreiningar og bakteríugreiningar fyrir mig til að halda gæðunum í lagi. Eins eru að verða svo miklar breytingar um kröfur á merkingum og þá fæ ég hjálp við að verða við þeim hjá slíkum sérhæfðum aðilum.“ Eyjólfur segir að hann sé aðallega að skemmta sér við þetta brölt sitt allt saman – hann auglýsi til dæmis mjög lítið og því komi velgengnin skemmtilega á óvart. „Með tíðinni hafa vörurnar spurst út og selt sig dálítið sjálfar á eigin verðleikum. Ég hefði kannski þurft að fara í einhverja markaðsherferð, en það kann ég bara ekki og veit ekki hvernig ég ætti að bera mig að. Mig hefur dreymt um að fá vottun frá Vottunarstofunni Túni, um uppruna varanna; að þær séu hreinar náttúruvörur. Mér skilst að slík vottun þekkist í sjávarútvegin- um; að þannig sé hægt að votta villtar afurðir. Ég þarf einhvers konar viður- kenningu á því að vörurnar eru að öllu leyti sprottnar úr villtu íslensku hráefni, auk þess sem þetta er allt handpakkað.“ /smh Þegar blaðamann bar að garði var Eyjólfur að þurrka aðalbláber sem hann var búinn að blanda saman við salt. Það fer svo í sérstakar pakkningar og seldar sem sælkerakrydd. Íslensk hollusta er með nokkrar útgáfur af sælkerakryddblöndum. Í berjavinnslunni fer fram vinnsla á nokkrum gerðum af safti, sultu og hlaupi. Vinnufatnaður 25090 Dömusandalar Litur Svart, hvítt, blátt. Str. 36-42 Verð kr. 14.990 25240 Sportskór Litur Svart, hvítt. Str. 36-42 Verð kr. 9.900 Mikið úrval af flottum gæða vinnufatnaði sem þolir þvott allt að 95° og þarf ekki að strauja. Fyrir fagfólk Pant ið vö rulis ta hjá o kkur prax is@p raxis .is Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878 Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00, lokað laugardaga. Vatteraðir jakkar 15.900 kr. Fást í 5 litum, lime, svörtu, rauðu, kongabláu og fjólubláu. Einnig til á herrana.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.