Bændablaðið - 27.08.2015, Síða 32

Bændablaðið - 27.08.2015, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015 Margar eru gerðir garða og hug- tökin ýmisleg. Matjurtagarða, kryddgarða og [lyfjaj-]urtagarða er ekki þörf á að útskýra nánar. Þann hóp skipa líka „lauk- garðarnir“ sem húsfreyjur á sögusvæði Laxdælu, og ef til vill víðar, höfðu yfir að ráða á öld Íslendingasagna. Í kringum bæi og hús í þorpum landsins voru „blómagarðar“ afgirtir skikar undir gafli íbúðarhúsa þar sem íbúar, les húsmóðirin eða amman, ræktuðu blóm og kannski nokkra runna, jafnvel tré s.s. birki, gulvíði eða reynivið sem fengin voru úr nálægu skóglendi. Þetta er mér í barns- minni, þó er ég ekki ýkja roskinn! Lóð eða garður Eftir að farið var að skipuleggja byggingalóðir í bæjum á þann hátt sem nú tíðkast kom „garðurinn“ til sögunnar. Þ.e. að það svæði sem ekki fór undir byggingar á hinni afmörkuðu lóð var rammað inn með limgerði eða einhvers konar grindverki og kallað „garður“. En reyndar var það svo, að alveg fram á áttunda áratuginn hélt lóðin oft áfram að vera bara „lóð“, og svo er það víða enn í þéttbýli víðs vegar um landið. Þar hafa húseigendur lítið sinnt um að koma lóðinni í það stand að kallast geti garður. Og jafn- vel eru margar fjölbýlishúsalóðir á höfuðborgarsvæðinu ennþá „bara lóðir“. Lóð verður ekki að garði við það eitt að ýtt sé út og sléttað yfir raskið sem verður við bygginga- framkvæmdirnar og síðan tyrft yfir með þökum af aflögðu túni. Lóðin verður ekki að garði fyrr en lögð hefur verið alúð í að rækta hana upp og velja í hana gróður sem verndar hana fyrir veðrum og vindi. Þegar í lóðina er komin lifandi mold, iðandi ánamaðkar og fuglasöngur getum við fyrst kallað hana garð. Heimilisgarðar Garðar Schierbecks land- læknis (nú Víkurgarður eða Fógetagarðurinn við Aðalstræti), Árna Thorsteinsson landfógeta (nú kallaður Hressingarskálagarðurinn) við Austurstræti og Halldórs Friðrikssonar kennara þar sem Alþingishúsið stendur nú, eru líklega fyrstu „heimilisgarðarnir“ (þ.e. garðar með trjám, blómum og matjurtum) á Íslandi sem nokkur vissa er um hvernig voru. Ég undan- skil garða Björns Halldórssonar, prests í Sauðlauksdal (um 1750), og Gísla sýslumanns Magnússonar, Vísa-Gísla, á Hlíðarenda í Fljótshlíð (um 1660). Lítið er vitað um garða þeirra eða annarra (t.d. klaustra og biskupssetra) fyrir 1880, svo ekki er hægt að lýsa þeim eða staðsetja þá eftir heimildum. Bara er vitað að þeir voru til. Skrúðgarðar Fyrsti eiginlegi „skrúðgarður- inn“ á Íslandi er Skrúður á Núpi í Dýrafirði (1909), handverk klerksins og kennarans Sigtryggs Guðlaugssonar. Garður sem byggð- ur var upp sem skrúðgarður (og kennslugarður) eftir ákveðnum og fremur klassískum prinsippum sem sótt voru til suðlægari landa, en aðlöguð íslenskum aðstæðum. Lystigarðurinn á Akureyri kom litlu síðar. Nú var ísinn brotinn, en engin skriða fylgdi svosem á eftir. Hellisgerði í Hafnarfirði kom til á þriðja áratug aldarinnar sem leið. Í Reykjavík var byrj- að að móta Tjarnargarðinn (með Hljómskálagarði og Hallargarði) á fjórða áratugnum en litlu miðaði með hann þar til eftir stríðsárin. Tjarnargarðurinn varð eiginlega til fyrir þá slembilukku að mýrin var of vot fyrir byggingar og auk þess höfðu öskuhaugar Reykvíkinga verið þar um nokkurt árabil. Tjarnargarðurinn er fyrsti „almenn- ingsgarðurinn“ á Íslandi. Munurinn á almenningsgarði og skrúðgarði er að í almenningsgarðinum er lögð áhersla á rýmið og að honum sé hægt að halda við með tiltölu- lega lítilli fyrirhöfn og tilkostnaði. Erlendis eru almenningsgarðar kall- aðir „parkar“. Í skrúðgarði er meiri áhersla lögð á nándina, þrengri rými og þéttri framsetningu skrautgróð- urs af öllu tagi. Slíkir garðar æpa á mannafla ef þeir eiga að standa undir nafni. Þar þarf mikið að reyta arfa, stinga upp beð og sinna eins- tökum plöntum. Almenningsgarðar Hluti Tjarnar garðsins, Hallar- garðurinn við Fríkirkjuveg 11, er fyrsti almenningsgarðurinn sem hannaður var að akademískum „skrúðgarðaarkitekt“ eins og lands- lagsarkitektar hétu þá. Hönnuðurinn var Jón H. Björnsson, yfirleitt betur þekktur sem Jón í Alaska. Litlu síðar var Austurvöllur á Ísafirði unninn eftir hönnun hans. Báðir þessir garðar sköruðu skilgrein- garnar „almenningsgarður“ og „skrúðgarður“ því að í þeim var plöntuvalið meira í ætt við skrúð- garðahugtakið en hitt. Þeir kölluðu því á viðhald sem misbrestur vildi verða á hjá sveitarfélögum sem þurftu að dreifa þeim rýru fjárhæð- um sem ætlaðar voru til garðyrkju og garðyrkjustarfa á fleiri svæði. Sums staðar hefur verið komið upp trjásöfnum, á útlensku „arboretum“, þar sem trjám af ýmsum tegundum frá ýmsum heimshlutum er safnað saman og plantað út í fastsettum kerfum þar sem hver planta er merkt sérstaklega með greinargóðum upp- lýsingum. Af sama tagi og með líku fyrirkomulagi eru „grasagarðar“ og „rósagarðar“. Hvergi skortir þar merkingar um ætt, nafn og uppruna plantnanna sem eru sýningargripirnir í slíkum upplýsinga- og safngörðum. Skrúðgarðyrkja Annars þurfa menn að gæta sín á að hafa þessi skrautgarðahugtök of föst. Almenningsgarðar eru undartekn- ingarlaust í eigu bæjar- eða sveitar- félaga og geta í víðasta skilningi fallið undir skrúðgarðahugtakið. Hugtakið „lystigarður“ fellur ekki beinlínis að neinni annaðhvort- -eða-skilgreiningu. Lystigarðar geta ýmist verið almenningsgarðar, skrúðgarðar, einkagarðar eða garðar í eigu einhverra samtaka. Sama gildir um „yndisgarða“. Hugtakið „trjá- garður“ er líka til. Þar eru tré oftast í aðalhlutverki, en trjágarðar gætu líka alveg eins verið byggðir upp sem skrúðgarðar. Líklega veltur orðnotk- unin á vana, útfærslum, eignarhaldi og fjármögnun hverju sinni. En hvaða hugtök sem í umferð eru um skipulagða og ræktaða garða, stóra sem smáa, þá eru þeir sem stunda þá iðn að byggja þá upp og hlotið hafa til þess tilskilda menntun kallaðir skrúðgarðyrkjumenn eða jafnvel skrúðgarðyrkjufræðingar. Skrúðgarðyrkja er löggild iðngrein. Aðrir sem lokið hafa garðyrkjunámi og útskrifast með prófskírteini í plönturæktun og gróðurhúsavinnu hafa enn ekki fengið löggildingu sem iðnaðarmenn. Það er samt huggun harmi gegn að þeir mega kalla sig garðyrkjufræðinga og starfa sem garðyrkjumenn fyrir borgun. Skógargarðar Nýlega hefur eitt garðahugtak- ið enn skotið upp kollinum, það er „skógargarður“. Við þekkjum hugtök eins og „opinn skógur“ eða „útivistarskógur“. Eins eru til „yndisskógar“. Í öllum slíkum skógum er gaman að ganga um og skoða. En „skógargarður“ er af nokkru öðru tagi. Þar er allnokkru bætt við skógræktina og útfærslan meira í átt til skrúðgarðyrkjunnar. Og skógargarður þarf ekki að vera víðáttumikill til að skógarupp- lifunin sé sterk. Skógargarður er útivistargarður þar sem fylgt hefur verið lögmálum skóglendis og skógarþróunar. Í útfærslunni skipta náttúrulögmálin og landslag mestu máli, en mannshugurinn hjálpar til og hefur hönd í bagga. Erlendis er skógargörðum fyrst og fremst komið upp í náttúrulegum skógum þar sem gróðri er stýrt með úrvali og skipulagi sem miðar að því að til framtíðar verði allur skógurinn aðgengilegur til íveru og útivistar. Önnur aðferð er að byrja á því að velja land sem hentar til trjáræktar, gróðursetja þar fyrst tré sem þurfa nokkurn tíma til að ná það góðum aldri og hæð að undir þeim og í kringum þau sé kominn nokkur skógarkarakter. Oftast tekur þessi upphafsþáttur um 15 til 20 ár. Þegar svipmótið er fengið hefst garðyrkjan. Stígakerfi er ákveðið. Nokkra grisjun þarf yfirleitt að gera og velja síðan inn undirgróð- ur sem fellur vel að þörfunum og myndar neðra trjálagið í skóginum. Og á þessu stigi þarf líka að huga að lággróðrinum, s.s. grastegund- um, blómplöntum, byrkningum og mosum sem mynda neðsta gróður- lagið. Á öllum stigum þarf að sjá til þess að allur gróður myndi heilbrigða og eðlilega heild. Plöntur sem virka framandi í þessu samhengi eða þríf- ast illa þarf að fjarlægja um leið og ljóst er að þær stinga í stúf við það sem ætlað var. Framandi plöntur í þessu samhengi eru garðaafbrigði með skellóttum blöðum, plöntur með fylltum blómum og aðrir dæmigerð- ir garðablendingar. Ofkrýndar rósir eins og t.d. 'Hansa‘ eða 'Skotta‘, 'Harison‘s Yellow‘ o.s.frv. eiga ekk- ert erindi í skógargarða. Ekki held- ur randagras, brúskur (Hosta) með marglitum blöðum ellegar aðrar þess háttar plöntur. Skriðular plöntur sem erfitt er að hafa stjórn á, geta skapað vandamál hafi þær engar náttúrulegar takmarkanir sem hefta óstýrilæti þeirra. Klettabelti, lækjarfarvegir og gil, jafnvel skurðir, geta sett þeim tilhlýðilegar skorður. Sannfærandi og náttúrulegt Fjölærar plöntur þurfa að vera sem næst sínu upprunalega og náttúru- lega formi og hæfar til að mynda samfellur og stóð með öðrum við- líka tegundum. Það er líka áríðandi að slíkum plöntum sé valinn staður sem líkastur er kjörvist þeirra í nátt- úrunni. Allar plöntutegundir þurfa að vera í nokkrum massa hver um sig, þótt þær geti skarast eðlilega og myndað samfélög. Samt er engin frá- gangssök að nota einstaka áherslu- plöntur eða plöntuhópa ef þær falla að ákveðnu svæði og undirstrika það. Í barrtrjáaumhverfi geta t.d. alparósir komið vel út án þess að virka óeðli- legar. En þá þarf að takmarka valið og velja bara tvær til þrjár tegundir, eða afbrigði, sem látnar eru mynda samfélag eða stóð þar sem nokkur eintök af hverju tagi standa saman. Slíkir hópar geta verið mismunandi stórir, en ávallt í námunda hver við annan. Ein tegund samt í hverjum hóp. Meginmálið er að plöntusamfé- lagið sé sannfærandi, svo að þeir sem um garðinn fara álíti að svona hafi þetta verið frá upphafi vega. Framtíðin – sumarbústaðalönd? Á Íslandi þarf venjulega að byrja á því að planta skóginum og bíða með frekari útplöntun þar til trén hafa myndað það skjól og þá gróð- urvist sem þarf til. En auðvitað má búa í haginn með því að laga jarðveg, forma land til betra horfs ef þurfa þykir, sjá út stígakerfi og viðhalda því. Líta á alla þætti sem þarf að ramma inn, s.s. læki, fossa, hvamma, björg, steina og önnur náttúruvætti svo að þau týnist ekki í skóginum. Rjóður og áningastaði þarf einnig að hafa í huga, og að sjálfsögðu „þjón- ustusvæði“ sem liggur vel við en er ekki áberandi. Skógargarðar falla vel að þeim aðstæðum sem flestir sumarbústaðaeigendur eru í með lóðir sínar. Eftir að búið er að koma þeim á legg, sem tekur álíka langan tíma og koma sumarbústaðarlóð í gott skikk, er eftirvinnan lítil. Að sjálfsögðu mun þar alltaf verða þörf á að leiðrétta og grípa inn í ef eitt- hvað virðist vera að fara úr böndun- um. En í stórum dráttum verða skógargarðar að mestu sjálfbærir eftir að byrjunarörðugleikarnir eru liðnir hjá. Þeir verða samt garðar sem þarf að sinna í ákveðnum takti ár hvert.. Fróðleiksbásinn Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur Garðar, hvað er hvað – hugleiðingar um hugtök Garðurinn í Höfða við Mývatn er dæmigerður trjágarður. Minnisvarði um sr. Sigtrygg og Hjaltlínu, konu hans, í Skrúð. Mörkin á Hallormsstað er trjásafn. Sigurður Blöndal við státna eik. Þótt fylltar rósir séu þokkafullar, eiga þær ekki erindi í skógargarða. Hér rósin 'Skotta‘.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.