Bændablaðið - 27.08.2015, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Bændablaðið
Kemur næst úr 10. september
Landbúnaðarsýningin Libramont
2015, sem haldin er árlega
fjóra daga seinnipartinn í júlí
í Libramont-Chevgny í Suður-
Belgíu, var afar vel sótt í ár. Alls
voru gestir sýningarinnar um
220 þúsund talsins og þar af m.a.
hópur ungra íslenskra bænda,
en dvöl á sýningunni var hluti af
ferðalagi þeirra um Evrópu.
Líkt og undanfarin ár var sýn-
ingin afar fjölbreytt og margt áhuga-
vert að sjá og skoða enda voru um
800 sýnendur á Libramont í ár með
yfir 5 þúsund tegundir tækja og tóla
auk 3.500 kynbótagripa.
Allt fyrir alla
Það má heita að á sýningunni séu
öll helstu landbúnaðartæki sem
völ er á og öll helstu og þekkt-
ustu vörumerkin bæði í dráttarvél-
um, heyvinnuvélum eða öðru því
sem bændur nota við sín daglegu
störf. Vissulega verða ekki miklar
breytingar á þessum vélum og tækj-
um ár frá ári en alltaf er þó eitthvað
nýtt sem kemur og alltaf er einhver
framþróun sem betur fer. Þeir sem
hafa farið oft á landbúnaðarsýningar
sjá því alltaf eitthvað nýtt og áhuga-
vert í hvert skipti og var sýningin í
ár engin undantekning.
Hauggasorkuver fyrir minni búin
Þegar rætt er um rekstur á
hauggasorkuverum erlendis hafa
sjónir manna oftast beinst að stærri
kúabúunum, þar sem hingað til
hefur ekki þótt hagkvæmt að vinna
gas úr tiltölulega litlu magni af skít.
Nú kann að verða breyting á þessu
en fyrirtækið Biolectric kynnti á
sýningunni heildarlausn fyrir kúabú
í hauggasframleiðslu. Kúabóndi
getur sem sagt í dag keypt heildar-
lausn, bæði gerjunartank og allt
stýrikerfið fyrir gerjunina ásamt
öllu orkuframleiðslukerfinu.
Kerfið virkaði afar áhugavert og
í fyrsta skipti sem undirritaður, sem
hefur allnokkra reynslu af landbún-
aðarsýningum, rekur augun í heild-
stæða lausn sem virðist geta hentað
fyrir a.m.k. einhver íslensk kúabú.
Jan Palmaers, sem er einn af
eigendum fyrirtækisins, sagði að
kerfið væri hannað fyrir 600 þús-
und lítra mjólkurframleiðslueiningu
eða 55–60 kýr. Þær þyrftu einnig
að vera í fjósi þar sem eru lokaðir
flórar vegna þess að orkuvinnsla
á skít frá opnum haughúsum væri
mun erfiðari.
Aðspurður um muninn þá sagði
Jan að væru kýr á rimlum þá þyrfti
u.þ.b. 200 þúsund lítra mjólkurfram-
leiðslu í viðbót svo mykjan væri
nógu orkurík og gasframleiðslan
væri sambærileg en skýringin felst
í uppgufuninni frá haughúsum og
orkutapi þar með.
Minnsta staðlaða einingin frá
Biolectric kostar uppsett, á megin-
landi Evrópu, 95 þúsund evrur
eða um 14 milljónir króna og slíkt
Utan úr heimi
Libramont 2015
-
Myndir / SS
Gæði - Reynsla - Þjónusta
Bestun Birtingahús
Borgartúni 22 Rvk. - Dugguvogi 4 Rvk. - Dalshrauni 11 Hafnarfirði - Gleráreyrum 2 Ak.
Sími: 588-8000 www.slippfelagid.is
Opnunartími: Virka daga: 08.00 – 18.00 Laugardaga: 10.00 – 14.00
Veljum íslenskt
Bændur athugið
Hjá Slippfélaginu færðu gæða málningu
fyrir íslenskar aðstæður
Hafið samband og fáið faglega ráðgjöf
Sendum hvert á land sem er
Styrkir til rannsókna
og þróunarverkefna í
nautgriparækt
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir umsókn-
um um styrki til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt
samkvæmt verklagsreglum Bændasamtaka Íslands um ráðstöfun
fjár til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt, sbr. aug-
lýsingu nr. 702/2014.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
- Yfirlit um tilgang og markmið verkefnisins
- Listi yfir alla sem eiga aðild að verkefninu
- Tímaáætlun verkefnisins
- Fjárhagsáætlun verkefnisins
- Hvernig verkefnið nýtist nautgriparæktinni
- Hvar og hvernig niðurstöður verða kynntar
Umsóknarfrestur er til 1. október
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á fl.is.
Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að
finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: umsókn um þróunarfé.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins;
thorhildur@fl.is
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta