Bændablaðið - 27.08.2015, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
gasorkuver framleiðir 77 þúsund
kWh á ári að meðaltali. Bændur í
flestum löndum Evrópusambandsins
fá styrki fyrir að framleiða sk.
umhverfisvænt rafmagn og er áætl-
aður uppgreiðslutími á fjárfestingu
sem þessari einungis um fimm ár.
Heimsendingarþjónusta á léttvíni
Það eru ekki bara tæki, tól og
kynbótagripir á Libramont heldur
einnig fjölmargir bændur sem eru í
heimavinnslu og sölu beint frá býli.
Betrand Guindeuil er einmitt einn
þeirra en hann er ungur vínbóndi
með tiltölulega litla framleiðslu í
Villenave de Rions-héraði suðaustan
við Bordeaux í Frakklandi.
Í hörðum heimi samkeppninn-
ar í léttvínssölu hefur hann fundið
snjalla leið til þess að koma sinni
vöru á markað en hann býður upp
á heimsendingarþjónustu um allt
meginland Evrópu, þ.e. sé yfirhöf-
uð heimilt að selja léttvín utan sér-
stakra áfengisverslana. Áhugaverð
leið við markaðssetningu á vörum
beint frá býli.
Ókeypis mold fyrir bændur
Allt er nú til kann einhver að
segja en í Belgíu veitir fyrirtækið
GrondDepot afar sérstaka þjónustu
sem felst í því að bændur geta haft
samband og fengið ókeypis jarðveg
frá fyrirtækinu til þess að jafna út
land sitt! GrondDepot kemur þá
á svæðið með jarðveginn, fyllir
í lautir og dældir og jafnar sjálft
út og gerir tilbúið fyrir sáningu.
Virkar einkar undarleg ókeypis
þjónusta en tilfellið er að í Belgíu
eru margir verktakar í vandræðum
með uppmokstur frá t.d. vegstæðum
og byggingareitum. Þann jarðveg
sem kemur upp þarf að losna við
með ærnum tilkostnaði og því varð
til þessi skemmtilega þjónusta sem
bændur geta notfært sér. Til þess að
koma til greina sem móttakandi á
jarðvegi þarf bóndinn þó að tryggja
að geta tekið við að lágmarki 100
rúmmetrum jarðvegs og að hafa fyr-
irfram heimild sveitarfélags síns
fyrir verkinu.
Nýr mjaltaþjónn GEA
Stórfyrirtækið GEA sýndi á sýn-
ingunni nýjan mjaltaþjón sinn, en
einn slíkur verður einmitt tekinn
í notkun hér á landi í ár. Hönnun
og útlit mjaltaþjónsins er nokk-
uð breytt frá því sem áður var, en
mjaltaþjónninn var áður seldur
undir merkjum Westfalia Surge.
Eftir að GEA tók yfir WestfaliaSur-
ge hefur mikið vatn runnið til sjávar
og nú virðist sem fyrirtækið sé í
raun í fyrsta skipti komið með lausn
sem gæti hentað fyrir flesta kúa-
bændur.
Í samtölum við söluaðila Lely
og DeLaval kom fram að GEA er
nú að leggja afar mikla áherslu á
markaðssetningu mjaltaþjónsins
víða í Evrópu og hafa náð allgóð-
um árangri enda bjóða þeir þennan
mjaltaþjón á töluvert lægra verði en
samkeppnisaðilarnir hafa boðið sína
mjaltaþjóna til þessa.
Nýtir spænið betur
Á Libramont sýningunni er meira
um hestavörur og búnað fyrir
hesthús en á mörgum öðrum land-
búnaðarsýningum. Ótal sölubásar
voru með reiðfatnað og reiðtygi en
einnig margir aðrir aðilar með sýn-
ingarbása fyrir margs konar búnað
eins og hestakerrur, reiðkerrur og
svo að sjálfsögðu alls-konar hjálp-
artæki og tól fyrir hesthús- og/eða
reiðhallareigandann. Einn slíkra
aðilar var fyrirtækið EquiTech en
það selur margskonar sérhæfð tæki
fyrir framangreinda aðila eins og
jöfnunarbúnað fyrir reiðhallargólf,
hrossataðssugur, innréttingar fyrir
keppnisvelli, hlaupabretti og svo
m.a. frekar undarlegt tæki sem
er sérhannað til þess að nýta sem
mest af spæni og sagi og hægt er.
Tækið virkar þannig að þegar stía
er mokuð, er taðið sett ofan í þar
til gerðan hristara, sem sigtar frá
sag og spæni en skíturinn sjálfur fer
beint ofan í hjólbörur.
Snorri Sigurðsson
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
sns@seges.dk
Hér sést Jan Palmaers fyrir framan gerjunartank fyrirtækisins Biolectric, en
það er sérhæft í framleiðslu á hauggasorkuverum fyrir kúabú sem framleiða
í kringum 600 þúsund lítra.
Á sýningunni var fyrirtækið Nord Attelage með ótal léttikerrur fyrir hestamenn
til sölu, bæði keppniskerrur og einnig kerrur fyrir skemmtireið. Þessar kerrur
eru til í öllum stærðum og gerðum og einnig fyrir minni hestakyn eins og
íslenska hestinn.
Fyrirtækið GrondDepot er með
sérstaka þjónustu því það sér um
að keyra út jarðveg til bænda, án
endurgjalds!
Betrand Guindeuil var á sýningunni að kynna áhugaverða þjónustu sem var
léttvínssala beint frá býli með heimsendingarþjónustu!
Sem dæmi er
hægt að setja
tvær tveggja
metra grindur á
VIG stálstaura og
setja loku sem
hægt er að læsa, eða setja eina fjögurra metra grind á
tréstaura með VIG-lömum sem ætlaðar eru í þá.
Létthlið er hag-
kvæm og góð
lausn en hliðunum
er hægt að raða
saman að vild.
Létthliðin eru
seld í einingum
þannig að það
er hægt að raða
saman hliði sem
hentar mismunandi
aðstæðum, hvort
heldur á að girða af
sumarhús eða tún.
VIG framleiðir tvær
gerðir af léttgrindum, bæði með stand andi pílárum úr röri og
með gegnheilum teinum. Létthlið er afar hagkvæmur kostur.
Vélsmiðja Ingvars Guðna
Vélsmiðja Ingvars Guðna
Tanga · 801 Selfoss
Sími 486 1810 · Fax 486 1820
www.vig.is · vig@vig.is
Íslensk framleiðsla - fæst um allt land