Bændablaðið - 27.08.2015, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Hér verður fram haldið umræðu
um nokkur atriði í könnun á
íslensku forystufé sem byrjað var
að kynna í síðasta blaði.
Út frá fornum sögum virðist
ekki ástæða til að efast um að þetta
fé kemur til landsins með land-
námsmönnum eins og annað búfé.
Fyrstu lögbækur vitna sterkt um
gríðarmikið notagildi þess í fjár-
búskap strax á fyrstu öldum. Engar
heimildir gera hins vegar mögulegt
að meta hlutdeild þessa fjár í sauð-
fjárfjölda í landinu.
Áður hefur verið sleginn vari
um að nota upplýsingar úr bókinni
Forystufé of bókstaflega til að meta
dreifingu þess um landið. Hún og
aðrar heimildir sem mögulegt er að
styðjast við benda samt til að dreifing
forystufjár hafi verið ákaflega breyti-
leg eftir landsvæðum. Búseta þess
stóð föstustum fótum á Norðurlandi
og Austurlandi að hluta en var áreið-
anlega takmörkuð í öðrum landshlut-
um. Áreiðanlega hafa samt einhverjir
flutningar átt sér stað með prestum
sem oft fluttu bústofn sinn og hyski
á milli landshluta. Þekkt er dæmi um
flutning til Barðastrandar snemma á
síðustu öld úr Svarfaðardal á slíku
fé og fékk einhverja takmarkaða
útbreiðslu í aðrar sveitir þar vestra.
Ekki hef ég samt fundið dæmi um
flutning á þannig fé af þessu svæði
á fjárskiptaárunum og það mun nán-
ast hafa útrýmst við riðuniðurskurð
á Barðaströnd á níunda áratug síð-
ustu aldar. Víða í skrifum Halldórs
Pálssonar kemur fram að forystufé
sé ekki að finna á Vestfjörðum. Þó
að ég hafi fundið dæmi þess í göml-
um fjárbókum þá eru það alla jafn-
an einstakar kindur sem ekki gerðu
neina framræktun mögulega.
Forystufé var skotið undan
niðurskurði
Fjárskiptin um miðja síðustu öld
útrýmdu öllu fé utan Vestfjarða á
svæðinu frá Mýrdalssandi vestur og
norður að Jökulsá á Fjöllum. Vitað
er að forystufé var skotið undan
niðurskurði en þær kindur virðast
hafa lent í höndum aðila sem ekki
hafa borið gæfu til að standa nógu
skipulega að framhaldsræktun
þess. Mest af nýja fénu var sótt til
Vestfjarða. Í Suður-Þingeyjarsýslu,
Eyjafjörð, Skagafjörð austan vatna,
útsveitir á svæðinu milli Blöndu og
Héraðsvatna og Árnessýslu kom að
misjöfnum hluta þó fé sem rakti upp-
runa sinn í Norður-Þingeyjarsýslu og
fluttist þannig á þessi svæði forystufé
að nýju.
Fyrstu skrefin í frekari útbreiðslu
á önnur svæði eru stigin þegar
sæðingar hefjast frá Laugardælum
síðla á sjötta áratugnum. Öll þau ár
sem þær sæðingar voru stundaðar
voru forystuhrútar í notkun þar og
lögðu þeir grunn að uppbyggingu
forystufjárstofns á ýmsum búum á
Vesturlandi og Norðurlandi vestra.
Mér hefur samt ekki tekist að rekja
ættir til þessara hrúta fyrir neitt núlif-
andi fé. Lengi var að vísu til stofn
með traustar ætternisupplýsingar af
þessum meiði á Hesti, þó að ráða-
mönnum þar hafi tekist að útrýma
honum þar á bæ. Í uppsveitum
Borgarfjarðar eru samt kindur sem
áreiðanlega mun með tímanum taka
að rekja í þetta fé sem var á Hesti.
Ákvæði um forystukyn sett í
búfjárræktarlög
Næsti sögulegi atburður í verndun
og útbreiðslu forystufjár verður
þegar Sigurður Björgvinsson bóndi
á Neistastöðum kemur á Alþingi sem
varamaður og flytur þar tillögu um að
setja í búfjárræktarlög ákvæði um að
sæðingastöðvarnar skuli ætíð bjóða
til notkunar hrúta af forystufjárkyni.
Í framhaldi af því hafa frá því um
1980 ætíð verið til boða slíkir hrútar
þar. Þeir hafa orðið mjög mótandi um
ræktun þessa fjár í landinu síðustu
áratugina.
Allt forystufé í landinu
rekur uppruna sinn í Norður-
Þingeyjarsýslu
Ljóst er að allt forystufé í landinu
í dag rekur uppruna sinn í Norður-
Þingeyjarsýslu þar sem miðpunkt-
urinn er í Núpasveit og Öxarfirði
auk þess sem áhrif sveitanna við
Þistilfjörð eru mikil. Smá áhrifa gætir
líka frá fé úr Bakkafirði, Vopnafirði
og Hólsfjöllum. Upprunasvæðið er
því lítið og utan þess er ekki að finna
neitt forystufé af öðrum ættargrunni.
Einn þáttur í því að meta hve vel
hafi tekist til um varðveislu stofns-
ins er að skoða þróun í skyldleika-
rækt í stofninum. Til þess að það sé
mögulegt verður að safna ætternis-
upplýsingum. Þar reyndist þrítugan
hamarinn að klífa eins og Sigríður
hafði áður reynt í sinni rannsókn. Að
vísu tókst að bæta við umtalsverðum
upplýsingum í þeim efnum en samt
eru þessar ætternisupplýsingar því
miður alltof gloppóttar. Um 40%
af forystufénu er að vísu tilkomið
við sæðingar og þar eru faðernið á
hreinu. Ættir hrútanna á stöðvun-
um verða hins vegar ekki raktar á
nokkurn hliðstæðan hátt og fyrir aðra
stöðvarhrúta. Til skamms tíma hefur
það fremur heyrt til undantekninga
að forystufé væri skráð í skýrslu-
haldinu, en í þeim tilvikum bætist
við sú brotalöm að mjög algengt er
ef faðerni er af heimastofni að þeir
hafi ekki verið skráðir vegna fátækt-
ar þeirra með afkvæmafjölda. Þó að
þessar kindur sé yfirleitt eftirminn-
anlegar þá virtist minna manna um
ættir þeirra vera ótrúlega svikult. Við
bætist að talsvert af forystufé síðustu
áratuga er komið á viðkomandi bú
við kaup. Oftar en ekki gleymist að
afla ætternisupplýsinga með gripnum
og ákaflega seinlegt og oft ómögulegt
reyndist að stagla í slík göt. Ávallt
hefur eitthvað verið um flutning á
þessu fé á gráu svæði, einkum áður
en leyfi til flutninga urðu almennari
á síðustu árum. Fyrir kom að neitað
væri að veita þessar upplýsingar af
þeirri ástæðu þó að slíkur tepruskapur
heyrði samt frekar til undantekninga
í þessum málum.
Brýnt að tryggja skráningu
Eitt brýnasta mál í sambandi við
viðhald og verndun stofnsins á kom-
andi árum er að tryggja að allt for-
ystufé í landinu verði skráð í skýrslu-
haldinu. Það er lykilatriði í sambandi
við að fylgjast með þróun stofnsins.
Það ætti að hjálpa í þessum efnum
að ákveðið hefur verið að stofninn
verði í framtíðinni þar sérmerktur út
frá grunni þessara upplýsinga. Þegar
kemur að útreikningum á afurðum
búsins verður þessu fé haldið utan
þeirra kappleikja á komandi árum.
Hér verður ekki fjallað neitt um
niðurstöður útreikninga á skyldleika-
rækt í stofninum að öðru leyti en að
segja að ný skyldleikarækt og árleg
aukning í skyldleikarækt hefur góðu
heilli verið langt innan þeirra marka
sem ástæða er til að hafa áhyggjur af.
Forystufjáreigendur í Norður-
Þingeyjarsýslu þar sem kjarni ræktun-
arstarfsins er hafa verið með fádæm-
um lagnir við framkvæmd sinnar
ræktunar. Þeir nota sjálfir sæðingar
mjög lítið en nota marga hrúta, en
mjög takmarkað hvern og einn, til
endurnýjunar á stofninum og sækja
þá í þær hjarðir innan svæðisins sem
eru hvað fjarskyldastar. Eina rækt-
unarlega slysið sem orðið hefur er á
ábyrgð okkar sem staðið höfum að
hrútavali á stöðvarnar en þar gerðust-
um við sekir um alltof mikla notkun
á Blesa 98-884 og sonum hans. Þetta
voru hrein mistök þar sem ekki var
þar að sækja neina sérstaka eiginleika
umfram aðra forystuhrúta sem voru í
boði á þeim tíma. Allt bendir til að sú
regla sem unnið hefur verið eftir nú
um áratug að velja hrúta á stöðvarnar
til tveggja ára notkunar, einn vetur á
hvorri stöð, skili okkur góðum árangri
í viðhaldi stofnsins.
Eitt atriði enn í sambandi við
verndum stofnsins er hvernig hann
dreifist milli búa. Á mynd er sýnt
hvernig stærðardreifing þeirra
rúmlega 400 hjarða af forystufé er.
Stöplaritið sýnir fjölda í hverjum
stærðarflokki en heila línan hve
stóran hluta stofnsins sé að finna í
hjörðum af viðkomandi stærð eða
minni. Þar má sjá að 57% búanna með
forystufé hafa eina eða tvær kindur
en á þessum meirihluta búanna er að
finna innan við 25% stofnsins. Þegar
stofninn er talinn á þennan hátt næst
helmingur fjárins þegar komið er í bú
með fimm kindur en þá eru komin til
sögunnar yfir 80% allra búa með slíkt
fé. Stærsta forystufjárhjörðin taldi
20 slíkar kindur. Nú veit ég að í dag
hafa einhverjar af stærstu hjörðun-
um fjölgað þessu fé þannig að þær
finnast nú stærri. Því miður hefur
það líka gerst að hið minnsta tvær
af stærstu hjörðum voru á búum þar
sem fjárbúskapur er nú aflagður. Þessi
mikla dreifing stofnsins á fjölda búa
er tvímælalaust mikill styrkur fyrir
verndun og viðhald hans.
Viðhald og verndun stofnsins
hefur tekist með afbrigðum vel
Það sem hér er sagt sýnir að viðhald
og verndun stofnsins hefur tekist með
afbrigðum vel. Þekki ég í raun ekki
annað dæmi í heiminum um slíkan
árangur í jafn litlum stofni. Einu áföll-
in sem benda má á verða að skrifast á
reikning okkar sem einhverja ábyrgð
áttum að bera.
Á mikilvægustu forystufjáreig-
inleikunum höfum við engar bein-
ar mælingar og því ekki tilefni til
umræðu. Útlitseiginleika, liti og
horn má hins vegar skoða nánar.
Forystuféð er að meginstofni hyrnt.
Í stofninum á norðausturhorninu er
hins vegar að finna gamlar línur af
kollóttu og hnýflóttu fé (raunveru-
lega hnýfilhyrnt en ekki blendings-
hnýflar), sem væri skaði að hyrfi úr
stofninum. Ferhyrnt fé er hins vegar
áreiðanlega aðskotahlutur í þessu fé
og mætti hverfa það litla sem slíka
blöndun er enn að finna. Annað fé
í landinu getur borið þunga þeirrar
ræktunar. Hjá forystufé er verið að
leita að vitsmunum en ekki þungum
haus.
Hefur ætíð skorið sig úr öðru fé
vegna lita
Forystufé hefur ætíð skorið sig úr
öðru fé vegna lita. Að grunni til er það
með aðra liti en hvítan. Hvort hvítur
litur hjá því sé ekki alfarið kominn
inní stofninn með innblöndum skal
ósagt látið. Það örfá hvíta fé sem fram
kom í könnuninni reyndist stundum
við nánari skoðun tvílitt og bar þann
sérstaka lit sem þeir frændur Leifur
02-900 og Jóakim 08-863 erfðu til
afkomenda sinna.
Samanburður lita við könnun
Lárusar bendir ekki til stórfelldra
breytinga á undanförnum tveim ára-
tugum. Breytingin sem gerst hefur er
samt að hlutlausi erfðavísirinn hefur
sótt á og þá á kostnað annarra erfða-
vísa. Frá því að könnunin var gerð
hafa sæðingastöðvarnar hins vegar
brugðið við til varnar bæði gols-
ótta og gráa litnum. Samkvæmt bók
Ásgeirs má álykta að golsótti liturinn
hafi áður verið mun útbreiddar hjá
forystufé en var orðið. Tvíliturinn
vinnur einnig heldur á. Má segja að
móhosótt eða móarnhöfðótt séu að
verða einkennislitir hjá forystufé á
síðustu árum. Mórauði liturinn er
áfram frekar í sókn gagnvart þeim
svarta. Svarbotnóttur eða einlitur
svartur hrútur ætti því nú að vera á
óskalista sæðingastöðvanna fyrir nýja
stöðvarhrúta.
Erfðir á litarmunstrum hjá tvílitu
fé hafa aldrei verið gerðar hér á landi.
Kemur þar margt til en fyrst og fremst
vöntun á gögnum. Skipulegar paranir
til að rannsaka slíkt hafa ekki verið
gerðar og einnig gera breytileg nöfn
litarmunstra eftir landsvæðum málið
ekki einfaldara. Hvort hjá forystufé
geti verið að finna einhver önnur lita-
munstur en hjá öðru fé verður því ekki
dæmt um. Hin sérstaki eyglótti litur
sem Leifur 02-900 og afkomendur
hans hafa erft hafa vakið grunsemdir
hjá mér um að ekki megi útiloka slíkt.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Íslenska forystuféð − seinni hluti
Jón Viðar Jónmundsson
Ráðunautur hjá RML
jvj@bondi.is
Stöplaritið sýnir fjölda búa með tilgreindan forystufjárfjölda í hjörðinni frá einni kind
í 20. Heila línan sýnir hins vegar hve stór hluti alls forystufjárstofnsins í landinu
eina eða tvær forystukindur en innan við fjórðung af forystufénu er hins vegar að
Þessi sögufræga mynd er tekin á Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi 1965. Haraldur Sveinsson heldur stoltur í forystuána sína sem rekur ættir að Arnarvatni í