Bændablaðið - 27.08.2015, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 201542
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Öflugur 33" breyttur Toyota Hilux:
Hilux alltaf vinsæll og verður
það örugglega áfram
Í febrúar 2014 prófaði ég 38
tommu breyttan Toyota Hilux
frá Arctic Trucks. Sá bíll var
beinskiptur, með 2500 vél sem
skilar 144 hestöflum. Síðan þá
hefur mig langað að prófa sama
bíl með 3000 vélinni, sjálfskiptan
og 171 hestafls vél.
Bíllinn sem prófaður var nú er
33" breyttur hjá Toyota og er með
ýmsum aukabúnaði.
Skemmtilegur bíll
á vondum vegum
Munurinn að ferðast og sitja í
þessum tveim Toyota Hilux er
nánast enginn, en þegar kemur
að vél og skiptingu er munurinn
mikill. Snerpan í 3000 vélinni er
mikil og sjálfskiptingin er óneit-
anlega þægilegri fyrir flesta, þó
svo að ég og fleiri vilji bara bein-
skipta bíla þá eru fleiri sem kjósa
sjálfskipta bíla. Ég fann mikinn
mun á þessum 27 aukahestum frá
fyrri bílnum sem ég prófaði.
Á mikið breyttum bílum fylgir
alltaf smá hljóð í stórum og gróf-
um dekkjum, en á þessum bíl
var það hljóð alveg í lágmarki.
Á grófum malarvegi og vondum
vegslóðum er bíllinn stöðugur og
glettilega mjúkur, en þegar ekið
var eftir góðum malarvegi fann ég
aðeins fyrir leiðinda titringi þegar
farið var yfir lausa smásteina sem
lágu lausir á yfirborði vegarins.
Sennilega mætti losna við þetta
með því að minnka aðeins loft-
magn í dekkjunum.
Mikil dráttargeta
Ég ók bílnum rúma 100 km í
blönduðum akstri og var meðal-
hraði hjá mér 45 km á klst.
og eyðslan 8,9 lítrar af dísil á
hundraðið. Hilux með 3000 vél-
inni er gefin upp samkvæmt bæk-
lingi 7,7 miðað við óbreyttan bíl.
Hilux er með gormafjöðrun að
framan og fjaðrir að aftan. Þessi
fjöðrunarbúnaður hefur reynst
vel og gerir bílinn stöðugan.
Sem dæmi er veltipunktur Toyota
Hilux 48 gráðu halli, en mjög fáir
bílar þola svo mikinn halla.
Þess ber þó að geta að bíll-
inn sem ég var á er 33 tommu
breyttur, með pallhýsi og ýmsu
öðru sem þyngir hann og að ég
var alls ekki að reyna við neinn
sparakstur.
Dráttargeta er 2.500 kg með
kerru sem er útbúin með brems-
um. Pallurinn er frekar lítill (mætti
vera lengri), en málin á pallinum
eru 154,5 x 151,5 cm.
Gott verð á eigulegum bíl
Þótt Hilux sé fyrir mér mest vinnu-
bíll þá er hann vel búinn öryggis-
lega. Loftpúðar allan hringinn
inni í húsinu, stöðugleikastýring,
ABS hemlunarkerfi með rafstýrðri
hemlunardreifingu, hemlunarhjálp
sem bætir í kraftinn á hemlun þegar
er nauðhemlað. Grunnverð á sjálf-
skiptum Hilux 3000 er 7.570.000,
en með breytingum sem eru í
þessum bíl kostar hann rétt tæpar
9.000.000. Ódýrasti Toyota Hilux
bíllinn er beinskipti 2500 bíllinn
og er hann frá 5.690.000.
Hæð 1.860 mm
Breidd 1.835 mm
Lengd 5.260 mm
Þyngd 2.050 kg
Helstu mál og upplýsingar
Í lok febrúar var töluverður
viðbúnaður björgunarsveita á
Suðurlandi vegna leitar að konu
sem hafðist við í fjallaskála.
Ástæða leitarinnar var að ekkert
merki hafði komið frá sendi sem
hún hafði meðferðis.
Konan fannst og var talið að
tækið hefði bilað, en svo var ekki því
ástæðan var að tækið var innandyra
í fjallaskála og einnig röng áskrift
fyrir íslenskar aðstæður.
Tækið sem hér um ræðir heitir
SPOT og hefur verið umdeilt meðal
manna um ágæti þess. Fyrir SPOT
eru tvær áskriftarleiðir. Annars vegar
að tækið sé alltaf í gangi og sendir
staðsetningarhnit einu sinni á sólar-
hring. Hin áskriftin er sú öruggari,
að mínu mati, og sú áskrift sem allir
eiga að nota hér á Íslandi, sem er
að skrifa leiðina (ferlar leiðina) sem
farin er og gefur upp staðsetningu á
10–30 mín. fresti.
Getur verið erfitt að ná sambandi
norðan við há fjöll
Ókostur fyrir Ísland er að gervi-
hnettirnir, sem tækið tengist, eru
svo sunnarlega að þeir eru í u.þ.b.
7 gráðum upp til suðurs og geta því
fjöll og dalir hindrað tengingu og
þar af leiðandi merki frá tækinu.
SPOT er þannig uppbyggt að ef ekki
næst að senda á réttum tíma gerist
það sjálfkrafa þegar samband næst.
Sem dæmi að ef verið er að ferð-
ast eftir veginum um norðanverðan
Arnarfjörð á Vestfjörðum skyggja
fjöllin á sendingu, en nyrst í hverjum
dal og firði er samband og þá send-
ir tækið. Á SPOT tækjum er takki
sem merktur er 911, en sé honum
haldið niðri í nokkrar sek. þá er búið
að senda út neyðarboð eftir aðstoð.
Handhafi SPOT sem hefur borg-
að áskrift er einnig búinn að borga
tryggingu um að björgunarleiðangur-
inn sem kallað er eftir þarf ekki að
hafa áhyggjur af kostnaði vegna
þyrlu eða björgunarsveit því þeir
(þyrlan eða björgunarsveitin) getur
sótt kostnaðinn í tryggingarfélag
SPOT.
Hægt að sjá heima í tölvunni hvar
SPOT-tækið er statt
Margsinnis hef ég ferðast með mönn-
um sem eiga svona tæki og verið með
í láni tæki sjálfur. Hvert tæki er með
netfang (netslóð) sem hægt er að deila
til vina og kunningja, það eina sem
þarf að passa er að hafa tækið efst
í bakpoka eða tösku þannig að sem
minnst skyggi á sendingar og mót-
tökuskilyrði fyrir tækið. SPOT getur
ekki náð sambandi við gervihnetti
sína inni í húsum og fjallakofum og
því gott að skilja tækið eftir í gangi
úti í u.þ.b. 15 mín. (reyna að hafa fría
sjónlínu til suðurs þessar 15 mín.)
þegar komið er á áfangastað.
SPOT ætti að henta vel fyrir
smalamennsku, rjúpnaveiðar, vél-
sleðaferðir og fleira, en sama hversu
tæknin er góð þá er ekkert sem kemur
í staðinn fyrir ferðaáætlun fyrir ferð.
Hægt er að fræðast meira um SPOT
á vefsíðunni: www.findmespot.com.
SPOT er eitt besta öryggistæki sem völ er á
Hjörtur L. Jónsson
Ekki fer mikið fyrir SPOT-tækinu.
Breyttur Hilux á 33 tommu dekkjum. Myndir / HLJ
Á mikið niðurgröfnum vegslóða var ég ánægður með hæðina undir bílinn.
dekkjum og plássið virðist lítið,
rákust dekkin aldrei í brettin þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Ekkert of mikið af tökkum, en allt sem þarf er þarna á þægilegum stöðum.