Morgunblaðið - 15.08.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.08.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 Mallorca 10. og 17. september VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444 Verð frá 154.900 kr.* *Á mann m.v. 2 í íbúð með hálfu fæði á Sa Coma Platja 17.sept. í 13 nætur Fararstjóri er Rebekka Kristjánsdóttir Gott Fólk 60+ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. an í júní samkvæmt tölum frá Land- spítala. Þar af eru flestir í Fíh, eða 265 talsins. Ólafur veit ekki til þess hvort að hjúkrunarfræðingar ætli að draga uppsagnirnar til baka, enda komi það ekki inn á borð félagsins. Anna Sigrún Baldursdóttir, að- stoðarmaður forstjóra Landspítala, segir að ekkert liggi fyrir um það hvort hjúkrunarfræðingar ætli að draga uppsagnir til baka, enda myndi slíkt ekki berast strax inn á borð forstjóra. Hún segir þessi mál líklega skýrast betur eftir helgina. Samningur BHM út ágúst 2017 „Þarna eru stigin skref til að meta menntun til launa sem er og hefur verið aðalkrafa BHM,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. Hún er ánægð með að úrskurður gerðardóms gildi aðeins til tveggja ára, en samningur BHM við íslenska ríkið framlengist frá 1. mars 2015 til 31. ágúst 2017. Forystumenn aðildarfélaga BHM lágu yfir úrskurðinum og kynntu sér hann þegar Morgunblaðið náði tali af Þórunni en þrjár launahækkanir koma til á samningstímanum. Sú fyrsta er afturvirk frá 1. mars sl. og hljóðar upp á 7,2 prósenta hækkun. 5,5 prósenta hækkun kemur til þann 1. júní 2016. 1,65 prósenta hækkun kemur til viðbótar sama dag, en hækkunin er ætluð til útfærslu menntunarákvæða. Þá fær hver starfsmaður í fullu starfi í apríl 2017 eingreiðslu að fjár- hæð 63 þúsund kr. „Þetta er skref í rétta átt“  Gerðardómur kvað upp úrskurð í kjaradeilu BHM og Fíh  Óvissa með uppsagnirnar á Landspítala  Hjúkrunarfræðingar fá tæplega 25 prósenta hækkun og gildir samningur þeirra út mars árið 2019 Morgunblaðið/Eggert Kjör Fulltrúar Fíh og BHM voru viðstaddir uppkvaðningu úrskurðarins. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, stendur fyrir aftan. Kjarasamningar » Fjölmennasti launaflokkur hjúkrunarfræðinga fær hækk- un upp á 24,9 prósent. » Skref stigin til að meta menntun til launa, segir Þór- unn Sveinbjarnardóttir, for- maður BHM. » 265 hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp síðan í júní. SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Gerðardómur kvað upp úrskurð í kjaradeilu íslenska ríkisins og Bandalags háskólamanna (BHM) annars vegar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) hins vegar. Enn var legið yfir úrskurðinum og breytingum á launatöflum þegar Morgunblaðið náði tali af forystu- mönnum BHM og Fíh í gær en af hljóðinu í þeim að dæma eru fé- lagsmenn nokkuð jákvæðir í garð úrskurðarins og nýrra kjarasamn- inga. „Útkoman er betri en margir bjuggust við. Þetta er meira en ríkið bauð okkur svo þetta er skref í rétta átt,“ segir Ólafur G. Skúlason, for- maður Fíh. Kjarasamningur hjúkr- unarfræðinga gildir frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Úrskurður gerð- ardóms verður kynntur félagsmönn- um á þriðjudagskvöld. Tæplega 25 prósenta hækkun Ólafur segir að þegar allar launa- hækkanirnar hafi skilað sér, þann 1. júní 2018, hafa dagvinnulaun hjúkr- unarfræðinga hækkað um 23,9 pró- sent hjá launaflokki 3-1, um 28,5 prósent hjá launaflokki 22-8 og um 24,9 prósent hjá algengasta launa- flokki hjúkrunarfræðinga, flokki 7-5. Þetta er um það bil 33 prósenta hækkun frá því sem ríkið bauð, sem var 18,6 prósenta launahækkun í launaflokki 7-5. Beinar launahækkanir til Fíh eru 7,7 prósent afturvirkt frá 1. maí 2015, 6,5 prósenta hækkun þann 1. júní 2016, 4,5 prósenta hækkun þann 1. júní 2017 og 3 prósenta hækkun þann 1. júní 2018. Loks kemur til eingreiðsla að fjárhæð 70 þúsund kr. þann 1. febrúar 2019. Alls hafa 318 einstaklingar sagt starfi sínu lausu hjá Landspítala síð- Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir óskandi að niðurstaða gerðardóms leiði til sátta og að þeir sem sagt hafa upp kjósi að starfa áfram á Landspítala. „Það er auðvitað undir hverjum starfsmanni komið að meta hvort þessi niðurstaða sé þannig að uppsagnir verði dregnar til baka. Við vonumst svo sannarlega til þess að þessi niðurstaða leiði til sátta í þessum erfiðu deilum, enda hefur starfsemin látið undan síðustu miss- eri og biðlistar vaxið,“ segir Páll og bætir við að gríðar mikilvægt sé að komast til að sinna biðlistunum sem og öðrum mikilvægum verkefnum. „Og til þess að svo megi verða þurfum við á öllu okkar frábæra fólki að halda,“ segir hann. Mestan hluta yfirstandandi árs hafi spítalinn starfað í skugga kjara- deilna og hefur það haft veruleg áhrif á starfsemina og starfsandann. Vonandi leiðir þessi niðurstaða til sátta „Ég get eiginlega ekki svarað því. Hver og einn ákveður það sjálfur, út frá eigin forsendum,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Fíh, spurður hvort úrskurður gerð- ardóms og nýr kjarasamningnur hjúkrunarfræðinga og ríkis dugi til þess að halda hjúkrunarfræðingum á Land- spítala. „Þannig að ég geri ráð fyrir því að hjúkr- unarfræðingar máti sig núna inn í þennan samning og sjái til hvort þetta sé nægilegt til að þeir dragi uppsagn- irnar til baka,“ segir hann. Ólafur segir það helst hafa komið á óvart hversu lang- ur samningurinn er en bendir þó á að í samningnum séu endurskoðunar- ákvæði sem geri hjúkrunarfræðingum kleift að segja upp samningnum komi til endurskoðunar á samningum á almennum vinnumarkaði. Ákveði sjálf hvort af uppsögnunum verði Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, gagnrýnir að ekkert endurskoðunarákvæði sé í samningnum hjá BHM eftir úrskurð gerðardóms. „Eitt af því sem okkur finnst bagalegt við úrskurðinn er, að ólíkt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, þá er ekkert endurskoðunarákvæði í okkar samningi,“ segir Þórunn. Samningur BHM er styttri en hjá hjúkrunarfræð- ingum, sem kann að vera skýringin á þessu að sögn Þór- unnar, „en það verður ekki fram hjá því litið að flestir, ef ekki allir, samningar sem hafa verið gerðir á vinnumarkaði á þessu ári hafa slík ákvæði. Það er ekki gott til þess að vita ef eini kjarasamningurinn án endurskoðunarákvæðis er lögþvingaður,“ segir Þórunn. Ekkert endurskoðunarákvæði hjá BHM Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er niðurstaða Gæðaráðs háskóla á Íslandi sú að takmarkað traust sé borið til þess að Háskól- inn á Bifröst geti tryggt að próf- gráður sem skólinn veitir standist gæðakröfur. Allir aðrir háskólar á Íslandi hafa verið metnir svo að gæðaráðið beri traust til þess að þeir geti tryggt gæði prófgráða. Í handbók um gæðamat háskóla segir að slík einkunn sé ekki fall- einkunn, en einkunnin hafi í för með sér að gæðaráðið geri at- hugasemdir við gæði prófgráða frá viðkomandi háskóla og að ýmsar umbætur þurfi að gera til þess að skólinn geti tryggt að prófgráður þeirra standist gæðakröfur. Bifröst mun gera verulegar athugasemdir Vilhjálmur Egilsson, rektor há- skólans á Bifröst, segir að skýrslu- drögin, þar sem niðurstöðurnar koma fram, séu trúnaðarmál og að um alvarlegt trúnaðarbrot sé að ræða. Skýrsludrögin séu í umsagn- arferli hjá Háskólanum á Bifröst, sem mun gera verulegar athuga- semdir við þau, en hann geti ekki tjáð sig efnislega um málið að svo stöddu. Vilhjálmur er spurður hvort það sé eðlilegt að opinberu fjármagni sé varið í skóla sem get- ur ekki tryggt gæði prófgráða sinna. „Við erum með samning við ríkið um framlag þess til skólans með sambærilegum hætti og Há- skólinn í Reykjavík en við erum einnig með skólagjöld. Að sjálf- sögðu erum við að reyna að tryggja gæði námsins sem best við getum og leggjum metnað okkar í það. Annað förum við ekki fram á,“ seg- ir Vilhjálmur og bætir við að samn- ingurinn sé til endurskoðunar á næsta ári. Úttekt eftir nýju gæðakerfi Þetta er í fyrsta skipti sem út- tekt undir nýju gæðakerfi, sem var tekið í gildi í upphafi árs 2011, fer fram en Háskólinn á Bifröst er síð- asti skólinn í ferlinu. Gefnar eru einkunnir fyrir tvo þætti; annars vegar gæði prófgráða og hins vegar gæði námsupplifunar. Úttektirnar fara fram á fimm ára fresti og eru framkvæmdar af umræddu gæða- ráði sem er skipað sex erlendum sérfræðingum. Einkunnaskalinn spannar fjórar einkunnir; fullt traust, traust, takmarkað traust og ekkert traust. Nú í fyrstu úttektarlotunni er ekki notast við einkunnina fullt traust og er því traust hæsta ein- kunn. Allir skólar hafa hingað til fengið traust fyrir bæði gæði próf- gráða og gæði námsupplifunar að undanskildum Háskólanum á Hól- um sem hlaut takmarkað traust fyrir gæði námsupplifunar. Gera athugasemdir við gæði prófgráða á Bifröst  Gæðaráð háskóla ber takmarkað traust til Bifrastar Morgunblaðið/Árni Sæberg Bifröst Prófgráður sem skólinn veitir njóta takmarkaðs trausts. Strandveiðum 2015 er lokið á þremur svæðum af fjórum og var gærdag- urinn síðasti dagur strandveiða þar á þessu ári. Bátar sem róa á þessum svæðum máttu því veiða sjö daga í ágústmánuði. Aðeins á svæði D, frá Hornafirði til Borgarness, hefur viðmiðunarafla ekki verið náð og geta þeir haldið áfram veiðum. Alls hafa 630 bátar stundað þennan veiðiskap í ár, en útgefin leyfi eru 648. Flestir, eða 227, hafa sótt á A-svæði, frá Arnarstapa til Súðavíkur, 141 á B-svæði, frá Norðurfirði til Grenivíkur og 147 á C-svæði frá Húsavík til Djúpavogs og 115 á D-svæði. Strandveiðum lokið á þremur svæðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.