Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 24
Ég vil þakka Gunnari Stefánssyni, Hjálmari Styrkárssyni og fleirum fyrir að leiðrétta orðuvísu þjóð- skáldsins og þýðingasnillingsins Steingríms Thorsteinssonar. En þeir sem búa afskekkt, utan net- heima og fjarri bókasöfnum, eiga erfiðara með upplýsingaöflun en all- ur fjöldinn. Hefði þó getað hringt í vísnafróðleiksfólk en í heyskap- arönnum fórst það fyrir og bið ég lesendur Morgunblaðsins velvirð- ingar á því. Afi minn, Indriði Þórkelsson á Ytra-Fjalli í Aðaldal, orti daginn sem andlátsfregn Steingríms spurð- ist norður 23. ágúst 1913: Andaðan Steingrím segir okkur síminn. Sá var til loka bragðmjúkur og glíminn. En hann sem tilbað hjartans unga þráin, hann var nú reyndar fyrir löngu dáinn! Ýmsum bregst hugsun, enn þó ræði og skrifi, allmörgum tekst að deyja þó þeir lifi. Honum tókst líka, – það sem auðnast eigi nema útvöldum fám – að lifa þó hann deyi. Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Að lifa þó að hann deyi Í Morgunblaðinu 5. ágúst sl. birtist blaða- greinin „Uppgangur anarkista áhyggju- efni“ eftir Guðmund Jónas Kristjánsson. Ég hvet öll þau, sem að misstu af þessari grein að fletta henni upp. Málið er alvarlegt Það er rétt að það er áhyggjuefni að um eða yfir 1/3 kjósenda samkvæmt skoðanakönn- unum skuli velja Pírata. Þeir hafa varla birt neitt, hvað þá um raun- hæfar aðgerðir í aðalmálefnum þjóðarinnar, nema þá að í stefnu- festu sinni hefur flokkurinn lýst því yfir að stefna hans gagnvart ESB sé engin og aðrir verði að sjá um málið. Hann hefur hins vegar verið áhugasamur um birtingu stolinna gagna í útlöndum og helst að hýsa þjófana án þess að gera grein fyrir því hvernig það gagnist Íslandi. Það er ótrúlegt að hugs- andi fólk vilji treysta slíkum fyrir lífi sínu og fjöreggjum þjóðarinnar og að landinu verði stjórnað af stjórnleysingjum „og það þrátt fyrir ýmis furðuáform þeirra svo sem að íslamsvæða Ísland ásamt öðrum vinstrisinnum“, eins og Guðmundur sagði. Heimilislausir Mörg okkar sem kusum yfirleitt eða alltaf Sjálfstæðisflokkinn höf- um verið hálfheimilislaus síðan Davíð Oddsson hætti sem foringi. Þvert ofan í góð ráð Davíðs og mörgum stuðnings- mönnum flokksins til mikils ama þá studdi flokkurinn Icesave- samningana sam- kvæmt þá ísköldu mati hans að sögn, sem kjósendur hins vegar höfnuðu með yf- irgnæfandi meirihluta og er ekki gleymt. Flokkurinn hefur misst hið pólitíska nef og þá breiðu skír- skotun sem hann hafði sem flokkur allra stétta og sem sverð og skjöldur borgaralegra viðhorfa og er nú einkum séður, e.t.v. að ein- hverju leyti rétt- eða ranglátlega, en engu að síður gjarnan séður sem þröngur stuðningsflokkur við banka og fjármagnseigendur og einnig við vafasamt og óvinsælt kvótasett fiskveiði- stjórnunarfyrirkomulag, jafnvel þótt vinstriflokkarnir eigi e.t.v. stærstan hlut í því máli. Þá hefur hann ekki enn skrúfað ofan af gjörðum vinstristjórnarinnar sál- ugu, en viðheldur stórríkisrekstri þvert á gefin fyrirheit. Á rangri braut Við erum mörg sem erum held- ur ekki sammála því að Sjálfstæð- isflokkurinn styðji nú ESB, sem hefur einmitt farið með viðskipta- legum ófriði gegn okkur og að hafa samþykkt að Ísland taki þátt í viðskiptabanni þess gegn Rúss- landi þvert ofan á hagsmuni lands- ins. Hlutfallsleg áhætta og áhrif á þjóðarhag eru miklu meiri hjá Ís- landi en ESB svo að ekki er saman við að jafna og því eðlilegt að standa þar fyrir utan, aukinheldur sem Rússar hafa lengi verið vin- samleg viðskiptaþjóð okkar, ára- tuga samband sem ástæðulaust er að eyðileggja. Sjálfstæðisflokk- urinn fer með fjármálaráðuneytið og ætti frekar að hafa áhyggjur af því að 30 milljarðar á ári hverfi úr hagkerfinu ef Rússar setja á okk- ur gagnbann. Það er eins og að Icesave-matið sé aftur á ferðinni. Almennt hefur flokkurinn verið hægfara og ekki sýnt þá ákveðni og einbeitingu sem þarf til þess að taka fast á verkefnunum og að þjóna hagsmunum almennings. Það ber t.d. ekki vott um framsýni að hann skuli ekki sinna málefnum aldraðra og öryrkja vel og með því gera þá kjósendur sér fráhverfa. Þannig hefur flokkurinn pillað af sér fylgið og mælist í sögulegu lágmarki og tómarúm til hægri skapast. Óánægjan Það er ljóst að almenn óánægja er mikil og fylgi við Pírata er ein birtingarmynd þess. Það sem lík- lega ræður því er að þeir eru ann- að en hinir flokkarnir þótt það sé bara eitthvað og óskilgreint. Bull og blaður hinna stjórnarand- stöðuflokkanna hefur ekki heldur aukið traust kjósenda á störfum Alþingis, en það hefði átt að skila sér að öðru jöfnu í auknu fylgi til Sjálfstæðisflokksins, en Framsókn er með óvinsæla ráðherra á sínum vegum. Það er vitlaust gefið segir fólk og óánægjan vex. Uppbygging Það sem vantar er stefnufesta og praktískar lausnir byggðar á frelsishugsjónum til heilla fyrir borgarana. Peningarnir eiga að liggja sem mest hjá fólkinu en ekki hinu opinbera fyrir misvitra stjórnmálamenn að skammta úr hnefa að eigin geðþótta. Það þarf aukna iðnvæðingu og einfaldara og arðbærara umhverfi fyrir alla starfsemi og að sníða stakk eftir vexti. Málefnin og vonin Hægri grænir hafa haft stefnu- skrá lausna frá stofnun flokksins og er von þeirra, sem vilja heið- arlegra þjóðfélag. Hægri grænir eru í dag skuldugur lítill flokkur, sem vantar afl til að komast aftur í gang og berjast fyrir hugsjón- unum. Gamalt stuðningsfólk jafnt sem og öll þau sem vilja réttlátara og skynsamlegra Ísland þurfa að safna liði og hefna, eins og segir í fornsögunum, en eitt fyrsta verk flokksins, kæmist hann til áhrifa, væri að afnema almennu verð- trygginguna. Það er hægt að skrá sig í flokkinn og veita stefnunni lið með því að fara inn á xg.is. Margt smátt gerir að lokum eitt stórt. Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Það þarf að snúa hlutunum við. Eftir Kjartan Örn Kjartansson » Það sem vantar er stefnufesta og praktískar lausnir byggðar á frelsishug- sjónum til heilla fyrir borgarana. Kjartan Örn Kjartansson Höfundur er fv. forstjóri og Hægri grænn. Hvert viljum við stefna? 24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 Hannes Hlífar Stefánsson vann annan sigur sinn á stuttum tíma er hann varð efstur ásamt Þjóverj- anum Michael Prusikin á opnu al- þjóðlegu móti sem fram fór í fjalla- þorpinu Bayerisch-Eisenstein í Þýskalandi og lauk um síðustu helgi. Hannes hlaut 7½ vinning af níu mögulegum og tapaði ekki skák. Með þessum sigri komst Hannes aft- ur upp í 2.600 elo-stig og hækkar talsvert á heimslistanum en til þess að komast í hóp 100 stigahæstu skákmanna heims er viðmiðið í dag í kringum 2.650 elo stig. Alls tóku 96 skákmenn þátt í mótinu í Þýska- landi. Nokkrir af sterkustu skákmönn- um þjóðarinnar hafa víða teflt und- anfarið og kjörið er að fylgjast með taflmennsku þeirra í beinum útsend- ingum á hinum vinsæla vef Chess- bomb en þar eru skákirnar jafn- harðan sundurgreindar með öflugustu skákreiknum. Íslandsmeistarinn Héðinn Stein- grímsson hefur setið að tafli á opnu skákmóti i í Washington í Banda- ríkjunum þar sem 56 skákmenn hófu þátttöku og var Héðinn sá fimmti stigahæsti í hópnum. Fyrirfram var Gata Kamsky, einn öflugasti skák- maður Bandaríkjanna um áratuga skeið, talinn sigurstranglegastur og það gekk eftir; fyrir lokaumferðina var hann efstur ásamt Indverjanum Arun Prasad, báðir með 6½ vinning. Héðinn var í 9.-14. sæti með 5 vinn- inga. Í Riga í Lettlandi sitja þessa dag- ana að tafli Hjörvar Steinn Grét- arsson, Guðmundur Kjartansson og Oliver Aron Jóhannesson. Þetta er opið mót með 191 keppanda sem skipulagt er af tækniháskólanum þar í borg. Eftir sex umferðir er Hjörvar með 4 vinninga, Guð- mundur með 3½ vinning og Oliver er með 2 vinninga. Viðureign Olivers í Arons fyrstu umferð við frægasta keppanda mótsins, Alexei Shirov frá Litháen, vakti mikla athygli fyrir fjöruga og skemmtilega baráttu þar sem Oliver Aron átti í fullu tré við Shirov en missti af jafntefli þegar hann lék sín- um eina ónákvæma leik í skákinni: Riga 2015; 1. umferð: Alexei Shirov – Oliver Aron Jó- hannesson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Df3 Enska árásin hefst með 7. Dd2 en Shirov sneiðir hjá troðnum slóðum. 7. … b5 8. Rxc6 Dxc6 9. 0-0-0 b4 10. Rd5!? Djarfar ákvarðanir haf löngum verið aðalsmerki Shirovs. Þessi mannsfórn leiðir til mikilla svipt- inga. 10. … exd5 11. exd5 Db7 12. Bd4 d6 13. Bd3 Re7 14. Hhe1 Bd7 15. Dg3 Dc7 16. He4 f6 17. Hde1 Bb5 18. Bxb5+ axb5 19. Hxe7+ Bxe7 20. Dxg7 Hf8 21. Bxf6 Hxf6 22. Dxf6 b3! Skemmtilegur leikur sem setur Shirov í mikinn vanda. 23. c3 Hxa2 24. He3 Ha1+ 25. Kd2 Ha2 26. Dh8+ Kd7 27. Dxh7 Hxb2+ 28. Kc1 Hc2+ 29. Kb1 Dd8 30. Df5+ Kc7 31. Df7 Kb6!? Hann gat einnig leikið 31. … Kd7 og þá á hvítur varla neitt annað en jafntefli með 32. Df5+ Kc7 33. Df7 o.s.frv. 32. Dxe7 Dxe7 33. Hxe7 Hxf2 34. Hg7 Kc5 35. h4 Kc4 Þetta hróksendatafl er jafntefli með bestu taflmennsku en aðgæslu er þörf. 36. Hc7+ Kd3 37. g4 Hf4 38. Kb2 Hxg4 39. Kxb3 Ke4 40. c4 Hg3+ 41. Kb4 bxc4 42. Kxc4 Svartur þarf enn að leysa nokkur vandamál til að halda jöfnu. 42. … Hg4?? Tapleikurinn. Í varnarstöðu vinna hrókarnir yfirleitt best á stóru svæði. Jafntefli var að hafa með 42. … Hg1! t.d. 43. +He7 Kf4 44. Kb4 Hc1 o.s.frv. 43. He7+ Kf5+ 44. Kb5 Kf6 45. He6+ Kf7 46. Hh6 Ke7 47. Hh7+ – og svartur gafst upp. Hannes Hlífar sigraði á opna mótinu í Bay- erisch-Eisenstein Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Félag eldri borgara í Reykjavík Mánudaginn 10. ágúst var spilað- ur tvímenningur á 14 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Björn Árnason – Auðunn R. Guðmss. 408 Guðlaugur Nielsen – Pétur Antonss. 395 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 364 Jón Sigvaldason – Katarínus Jónss. 329 A/V Guðm. Sigursteinss.– Björn Péturss. 391 Jóhann Benediktss. – Björn Arnarson 385 Friðrik Jóns. – Jóhannes Guðmannss. 375 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 366 Í skóginum leynast margvísleg tré, stór og smá. Ólíkar teg- undir með misjafnt vaxtarlag og fjöl- breyttum greinum. Öll eru þau þó sprott- in úr sama jarðveg- inum. Sum blómgast vel, eru tignarleg, berast á, halda lífi og bera mikinn og góðan ávöxt. Á meðan önnur ná sér aldr- ei alveg almennilega á strik, hrörna fljótt, visna og deyja. Ástæðuna þekkjum við ekki. Varla er við trén sjálf að sak- ast? Ástæðan er ráðgáta sem okk- ur er ekki gefið að skilja né út- skýra með nokkru móti, þótt við sannarlega vildum. Við setjum okkur í stellingar, gerumst spek- ingsleg, höldum ráðstefnur og teljum okkur á stundum færast nær svarinu. Við erum sem blaktandi strá Við erum líkt og greinar trjánna. Einungis sem blaktandi strá, sem reyna að laufgast, ná áttum og sanna okkur í lífsins stormi og ölduróti. En okkur tekst það ekki alltaf og kannski því miður sjaldnast þrátt fyrir einlægar tilraunir og einbeitt- an vilja. vernig sem allt velkist í henni veröld og okkur gengur og líður hverju sinni – munum þá bara að dæma ekki trén í skóginum. Þau eru bara eins og þau eru. Þau þarf að rækta og að þeim að hlúa. Þau þarfnast umhyggju eins og við. Að á þau sé hlustað og mið tekið af þörfum þeirra. Þau þurfa að læra að lifa saman, vera vinir og standa saman, þótt ólík séu. Þurfum á hvert öðru að halda Trén í skóginum þurfa hvert á öðru að halda til að komast af og líða vel og til að mynda skjólgóðan skóg sem ver fyrir óþægilegu og óæskilegu áreiti. Tölum því saman og knúsumst þótt ólík séum og ósammála um margt. Við erum nefnilega öll á sömu leið með svipaðar þarfir og þurfum hvert á öðru að halda. Verum jákvæð, uppörvandi og hvetjandi. Leitumst við að laða það besta fram í eigin fari og þeirra sem við umgöngumst, eru okkur samferða og við eigum sam- skipti við á ævinnar göngu á leið- inni heim. Ræktum garðinn okkar og njót- um þess að ganga um hann og vera í honum. Gleymum bara fyrir alla muni ekki að reyta arfann. Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Dæmum ekki trén ískóginum. Þau eru bara eins og þau eru. Þau þarf að rækta og að þeim að hlúa. Þau þarfn- ast umhyggju eins og við. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Greinar trjánna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.