Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015
Svava Bernharðsdóttirvíóluleikari starfareinnig sem ökuleið-
sögumaður á sumrin og
keyrði þrjá hringi um land-
ið, vikulangar ferðir
hverja, eina fyrir þýsku-
mælandi og tvær þar sem
franska var töluð og svo
fór hún einnig oft í dags-
ferðir, þá aðallega fyrir þá
sem tala ensku.
„Þarna tók ég mér
smáfrí frá tónlistinni en
annars var ég að spila á
sumartónleikum í Skálholti
með Skálholtskvartettinum
svokallaða.
Ég fór á ættarmót í sum-
ar í tilefni hundrað ára af-
mælis ömmu minnar og al-
nöfnu, Svövu
Bernharðsdóttur. Afkom-
endur hennar hittust á
Kirkjubóli í Valþjófsdal í
Önundarfirði og máluðu
kirkjuna í dalnum. Frænka
mín, Björg Þórhallsdóttir,
myndlistarkona í Noregi,
málaði nýja altaristöflu og
vinkona hennar gerði
steinda glugga í kirkjuna.“
Svava mun spila í óra-
tóríunni Salómon eftir Händel á kirkjulistahátíðinni í Hallgríms-
kirkju í dag með Alþjóðlegu kammersveitinni í Haag. „Við erum
nokkrir Íslendingar sem leikum á tónleikunum en hljóðfæraleik-
ararnir og söngvarar koma hvaðanæva úr heiminum. Það verður
mjög gaman að eiga afmæli á svona flottri tónlistarhátíð. Verkið er
þrír tímar að lengd og það rúmast ekki mikið fleira á afmælisdeg-
inum, kannski afmæliskaka einhvers staðar.
Svo byrja ég að æfa með Sinfóníunni á mánudaginn eftir sumarfrí
og kennarafundur verður í Listaháskólanum og Tónlistarskóla
Kópavogs. Ég kenni einnig í sumar á Tónlistarhátíð unga fólksins.
Þar er fín þátttaka og allt mjög vel skipulagt.“
Dóttir Svövu er Rannveig Marta Sarc, en hún er að læra á fiðlu í
Juilliard í New York.
Tvífarar Við hlið Svövu er vinkona
hennar, Ásthildur Bernharðsdóttir, en
hún er einnig 55 ára í dag. Þær fæddust
báðar mánuði fyrir tímann, feður
þeirra heita báðir Bernharður Guð-
mundsson, þær eru báðar doktorar frá
bandarískum háskólum, bjuggu báðar í
Holtagerði, eru báðar í Rótarýklúbbn-
um Borgir, Kópavogi, og skildu báðar
þegar börn þeirra voru á 11. ári, en
börnin starfa bæði við tónlist.
Spilar Händel í dag
í Hallgrímskirkju
Svava Bernharðsdóttir er 55 ára
S
teinar Bragi Guðmunds-
son fæddist í Reykjavík
15.8. 1975 en ólst upp í
Kaupmannahöfn frá
þriggja ára aldri og þar
til hann varð sjö ára. Þá flutti fjöl-
skyldan til Reykjavíkur, þar sem
hann ólst upp í Árbæjarhverfinu.
Steinar Bragi var í Skóla Ísaks
Jónssonar og síðan í Árbæjarskóla
til 16 ára aldurs. Þá flutti fjöl-
skyldan í Vogana og við tók nám í
Menntaskólanum við Sund, en það-
an lauk hann stúdentsprófi.
Steinar Bragi las síðan læknis-
fræði við Háskóla Íslands til 22
ára aldurs en söðlaði þá um og las
bókmenntafræði og heimspeki þar.
Auk þess stundaði hann nám í
ítalskri sögu við Háskólann í
Bologna en sá ekki ástæðu til að
ljúka prófum.
Steinar Bragi æfði og keppti í
knattspyrnu með Fylki frá níu ára
aldri og í öllum yngri flokkum til
tvítugs. Hann þótti sérlega efnileg-
ur knattspyrnumaður og var eitt
sinn markakóngur með Fylki þó að
hann geri ekki sjálfur mikið úr því
nú til dags.
Síðar lagði Steinar Bragi stund
Steinar Bragi rithöfundur og skáld – 40 ára
Draugagangur Steinar Bragi og Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi í tilefni af útgáfu Reimleika í Reykjavík.
Hinn ljúfi róttæklingur
Rithöfundurinn Steinar Bragi er í hópi athyglisverðustu höfunda landsins.
Morgunblaðið/Ómar
Askja Lilja Finze, Mona Jólín Finze og Helena Helgadóttir gáfu Rauða kross-
inum 1.552 kr. sem þær söfnuðu með því að halda fimleikasýningu.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin
brúðkaupsgjöf.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
• Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn
velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra
• Platinumlínan okkar er mjög sterk og
þolir þvott í uppþvottavél
Spiegelau er ekki bara glas
heldur upplifun
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–18