Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Sp ör eh f. Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir 12. - 22. september Gardavatn& Feneyjar Haust 9 Ör fá s æt i la us Gardavatn er ótvírætt einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda líkti Goethe staðnum við himnaríki og skyldi engan undra. Í ferðinni njótum við þess að sigla á Gardavatni, heimsækjum drottningu Adríahafsins, Feneyjar og elstu borg Norður-Ítalíu,Veróna. Verð: 219.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að líklega verði ekki af beinum stuðningi ríkisins til þeirra sem verða fyrir tjóni af völdum innflutnings- banns Rússa. Vegna stærðar málsins í íslensku samfélaginu sé stakkur ríkisins til beinnar fjár- hagslegrar íhlut- unar þröngt snið- inn, færi það út í mótvægisaðgerðir. Sigmundur sagði vilja vera fyrir hendi til þess að aðstoða útflutnings- fyrirtæki í þeirri stöðu sem upp er komin. „Meðan unnið er að þessu vilja stjórnvöld gera hvað þau geta til að aðstoða þá sem verða fyrir áhrifum af þessari ákvörðun.“ Í því samhengi bendir Sigmundur á að neikvæðra áhrifa bannsins geti einn- ig gætt hjá almenningi, sérstaklega í ákveðnum byggðarlögum. Þá vísar Sigmundur í eftirleitan utanríkisráðherra til Evrópusam- bandsins um að lækka tolla á sjáv- arafurðir frá Íslandi. Aðspurður um hvort breytingar á veiðigjöldum hafi verið á borðinu í þessu samhengi segir Sigmundur það ekki hafa verið sérstaklega rætt. „Hins vegar má það vera ljóst að það koma lítil veiðigjöld fyrir fisk ef menn sjá ekki hag af því að veiða hann og ef verðið lækkar mikið verður erfiðara að greiða veiðigjöld- in.“ Þátttakan rædd í ríkisstjórn Sigmundur sagði þátttöku Ís- lands í efnahagsþvingunum Evrópu- sambandsins og Bandaríkjanna hafa verið rædda í ríkisstjórn á sínum tíma. Þátttakan hafi byggst á EES- samningnum og verið sambærileg við tugi reglugerða sem hafi verið samþykktar til að innleiða viðskipta- þvinganir á grundvelli samningsins síðustu 20 ára. Þegar Evrópusambandið fram- lengdi þvinganirnar í ár hafi málið ekki verið rætt sérstaklega. Slíkar framlengingar gangi yfirleitt í gegn sjálfkrafa. Bitnar harðar á Íslandi Sigmundur sagðist hafa bent á það í máli sínu við Medvedev að þátttaka Íslands í þvingunarað- gerðum ESB og Bandaríkjanna hafi haft hverfandi áhrif á efnahagslíf Rússlands. Áhrifin af innflutnings- banni Rússa hér verði mun alvar- legri. „Stór hluti útflutningsvöru Ís- lands er matvæli og Rússland er hlutfallslega stór markaður,“ sagði Sigmundur. Hann sagði Medvedev hafa í því sambandi bent á að Rúss- land hafi ekki verið fyrra til að beita viðskiptaþvingunum. Segir stjórnvöld munu veita aðstoða eftir getu  Breyting á veiðigjöldum ekki verið rædd í ríkisstjórn Dmitrí Medvedev Morgunblaðið/Golli Samtal Sigmundur Davíð Gunn- laugsson ræddi við Medvedev. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Reikna má með að verðmæti loðnu- afurða á vertíðinni í vetur geti dregist saman vegna viðskiptabanns Rússa á sjávarafurðir frá Íslandi. Verði við- skiptabannið ekki framlengt fram yfir 31. janúar 2016 gæti loðnuvertíðin þó bjargast að hluta því hún stendur frá janúar og fram í mars. Teitur Gylfa- son, sölustjóri hjá Iceland Seafood, segir líklegt að meira af aflanum fari í bræðslu og minna í vinnslu til mann- eldis, sem skapar verðmætari afurðir. „Loðnuhrognin hafa farið í miklum mæli inn á Rússland og þeir hafa staðið undir verðhækkunum sem hafa orðið á þeim undanfarin ár. Nú verður minna framleitt af hrognunum og því hætta á að verð á þeim muni lækka,“ bætir Teitur við. Á árunum 2012-2013 voru 13.000 tonn loðnu- hrogna send út frá Íslandi og þar af tók Rússlandsmarkaður í heild um 5.000 tonn. „Þannig að loðnuhrogn, sem hafa verið að andvirði 5-6 millj- arðar, munu óhjákvæmilega lækka með töpuðum markaði,“ segir Teitur. Telur hann einnig ljóst að missir yrði á sölu loðnu, allt að 20.000 tonn- um, að verðmæti um tveir milljarðar. Leitar ekki annað en í bræðslu Hermann Stefánsson, fram- kvæmdastjóri hjá Iceland Pelagic, telur ekki að aðrir markaðir loðnunn- ar, þ.e. Asía eða Úkraína, muni taka við því magni loðnu sem stendur eftir vegna viðskiptabannsins. „Úkraína hefur ekki verið með síðan í fyrra vegna erfiðleikanna þar og fyrst Rússland dettur út þá getur þessi fiskur ekki leitað annað en í bræðslu. Til Asíu selst svo einnig annar hluti vörunnar en til Rússlands, þeir kaupa hrygnuna en Rússar hænginn.“ Mjög alvarlegt ástand „Þetta er miklu meira en mjög al- varlegt, þetta er algjör katastrófa fyrir íslenskan uppsjávariðnað og þar af leiðandi íslensku þjóðina,“ segir Hermann og bætir við að þegar og ef þessum þvingunum yrði aflétt þá sé ekki sjálfgefið að gengið verði að þessum markaði vísum á ný. „Neysl- an gæti hafa dregist saman eða aðrir birgjar búnir að taka okkar stöðu á markaðnum.“ Morgunblaðið/Þórður Löndun Nokkur grænlensk skip hafa landað í Hafnarfirði í vikunni, meðal annars makríl. „Þetta er algjör katastrófa“ fyrir uppsjávariðnaðinn  Rússland stærsti markaðurinn fyrir loðnu og loðnuhrogn Skúli Halldórsson sh@mbl.is Í kjölfar viðskiptabanns Rússa á hendur Íslendingum hefur ítrekað verið bent á aðra markaði sem mögulegir séu fyrir íslenskar sjáv- arafurðir, þar á meðal Nígeríu. Víkingur Þórir Víkingsson, fram- kvæmdastjóri Haustaks á Reykja- nesi, sem flytur út þurrkaðan fisk til Nígeríu, segir ástandið vera slæmt þar úti. „Eftir kosningarnar í Nígeríu þá tók ný ríkisstjórn við taumunum og það er ekki búið að skipa í ýmis embætti í nefndum og sjávarútvegs- ráðuneytinu,“ segir Víkingur. Útflutningur í hægagangi „Þetta hefur haft töluverðan rugl- ing í för með sér og það er til dæmis búið að stöðva þær bankaábyrgðir sem við vorum vanir að fá frá þeim. Nú eru þeir bara með pening ef þeir fá innflutningsleyfi á annað borð.“ Víkingur segir að útflutningurinn sé því í ákveðnum hægagangi á meðan á þessu stendur. „Þetta er nú ekki alveg stopp en þetta gengur vissulega hægar,“ segir hann en bætir við að hann vonist til að ástandið leysist á haustmánuðum. „Ég reikna með að þetta breytist í október eða nóvember. Þá fer þetta að skýrast með þessar banka- ábyrgðir og hægt verður að opna þær á ný.“ Slæm áhrif lækkandi olíuverðs Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum, segir lok- un markaðarins eiga sér skýringar í hríðfallandi olíuverði. „Þetta snýst um gjaldeyrisskort þar í landi. Níutíu prósent af út- flutningsverðmæti landsins kemur frá olíu. Hún féll um helming í verði og í kjölfarið er gjaldeyrisvaraforði nígeríska seðlabankans aðeins næg- ur fyrir þriggja mánaða matarinn- flutningi til landsins,“ segir Sigur- geir. „Þeir hafa gripið til þess ráðs að banna innflutning tiltekinna vöru- flokka, þar á meðal fisks. Nú er því verið að þrýsta á þá um að fara aðr- ar leiðir, til dæmis að leggja tak- markanir jafnt yfir alla heildina frekar en að banna algjörlega þessa ákveðnu flokka.“ Leiðin til Nígeríu ekki greiðfær  Gjaldeyrisskortur veldur vandræðum „Þetta er nýr markaður og það tekur töluverðan tíma að vinna sig inn á nýja markaði,“ segir Jóhannes Már Jóhannesson, sölustjóri hjá About fish, en þeir hafa í rúm tvö ár selt makríl til Kína. „Eftir að við gerðum frí- verslunarsamning við Kína þá átti skrifræðið að einfaldast en það hefur einhverra hluta vegna ekki náð að skila sér í gegnum stjórnkerfið í Kína og okkar kaupendur hafa lent í vandræð- um með að afgreiða vöruna inn í landið,“ segir hann og því sé ekki verið að flytja út eins mikið og þeir helst vildu. Markaðurinn með makríl í Kína mun því ekki taka við sér á örskotsstundu, segir Jóhannes. Skriffinnskan tefur söluna MAKRÍLLINN TIL KÍNA Sigurður Ingi Jó- hannsson, sjávar- útvegs- og land- búnaðarráð- herra, segir að skoða þurfi með hvaða hætti við- skiptabann Rússa „hafi áhrif á ein- staka byggðir, einstök fyrirtæki og á þjóðarbúið í heild sinni, því það er margt sem bendir til að þetta geti haft veruleg áhrif á það“. Þetta kom fram í viðtali mbl.is við ráðherrann að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Undanþegin banni Grænland og Færeyjar eru undanþegin viðskiptabanni Rússa, þar sem þau hafa ekki tekið þátt í viðskiptaþvingunum gegn þeim. Þórir Hrafnsson upplýsingafulltrúi segir í samtali við Morgunblaðið að skip grænlenskra útgerða ættu því að geta landað afla hér á landi og flutt hann til Rússlands. „Ef flaggið er grænlenskt þá er það það sem skiptir máli.“ Vill skoða áhrif á byggðir og fyrirtæki Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.