Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 11
Æfing Strákarnir æfa þrisvar til fjórum sinnum í viku, stundum oftar, þegar eitthvað er framundan.
Smutty sem er með lagahöfund og
textagerðarmann á sínum snærum,
Tim Scott McConnell eða Ledfoot,
en hann er gothic-blues-gítarleikari
sem hefur m.a unnið með Bruce
Springsteen og fleirum. Hann mun
vinna með strákunum í Lucy in
Blue. Hann hefur aðgang að bestu
stúdíónum og strákarnir hafa þegar
sent honum nokkur lög.
Segjum ekki já við öllu
Fjórmenningarnir eru að sjálf-
sögðu spenntir fyrir því sem bíður
þeirra, en þeir eru samt alveg ró-
legir og með fæturna á jörðinni.
Samningurinn er til eins árs og þeir
eru ekkert stressaðir yfir því að
það eigi að móta þá eftir einhverju
öðru en þeir kæra sig um.
„Við ætlum ekkert að segja já
við öllu, en við erum til í að skoða
allar hugmyndir sem koma frá
Smutty. Þetta er mjög sanngjarn
samningur og við getum sagt okkur
frá honum þegar við viljum. Smutty
vill að við höldum okkur við ræt-
urnar í tónlistinni, en hann sér um
að koma okkur áfram,“ segja þeir
félagar sem æfa þrisvar til fjórum
sinnum í viku, oftar þegar tónleikar
eru framundan.
„Núna erum við fyrst og
fremst að semja, enda viljum við að
vera með lágmark tíu heildstæð lög
þegar við förum út.“
Framsækið sýrurokk
Allt hófst þetta fyrir tæpum
tveimur árum þegar Arnaldur og
Matti kynntust í Menntaskólanum
við Hamrahlíð, og Matti kynnti
Arnald fyrir Steina sem þá var í
annarri hljómsveit.
„Við þrír byrjuðum að
„djamma“ saman og svo bættist
Kolli fljótlega í hópinn en Matti
hafði séð hann á off-venue giggi á
Airwawes 2014. Við tókum þátt í
Músíktilraunum í fyrra eftir að hafa
æft saman í aðeins fjóra mánuði, og
lentum í öðru sæti. Eftir það fór
boltinn að rúlla og við spiluðum á
Airwaves síðast liðið haust, á
Blúshátíðinni í fyrrasumar og við
komum fram á Eistnaflugi nýlega.“
Þeir segja tónlistina hafa
þróast töluvert á þessum tíma sem
liðinn er frá því þeir stofnuðu band-
ið.
„Stíllinn hefur fyrst og fremst
þróast en við erum enn í sama hug-
arfarinu. Við byrjuðum á að vera
með löng ambíent djömm, spiluðum
að fingrum fram en mótuðum það
svo inn í eitthvað hnitmiðaðra. Ætli
það sé ekki hægt að segja að núna
sé þetta framsækið sýrurokk.“
Hljómsveitarmeðlimir eru allir
á menntaskólaaldri, Steinþór er ný
útskrifaður frá MH og hefur nám í
FÍH í haust, Arnaldur er á þriðja
ári í MH en Kolli á öðru ári og báð-
ir á fjórða ári í FÍH, en Matti er á
þriðja ári í FSU á Selfossi.
Lucy in Blue ætlar að senda
frá sér sína fyrstu plötu fljótlega,
þeir eru búnir að taka upp nokkur
lög, en ætla sér að breyta og bæta
áður en að útgáfunni kemur.
Söngur Steinþór syngur hér en hann og Arnaldur skiptast á að sjá um söng.
Fyrir þá sem vilja heyra og sjá
Lucy in Blue spila, þá koma þeir
fram í dag kl. 16 í Hveragerði á
Blómstrandi dögum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015
Caddy City er enn einfaldari og hagkvæmari útfærsla af Volkswagen Caddy, sniðin að
þörfum þeirra sem vilja traustan vinnufélaga til að létta sér lífið við dagleg störf. City
er viðbót í sendibílalínu Volkswagen Caddy.
Volkswagen Caddy hefur árum saman verið mest seldi atvinnubíllinn á Íslandi. Með
tilkomu City er enn auðveldara að bætast í hóp hæstánægðra Volkswagen eigenda.
Caddy City kostar aðeins frá
2.630.000 kr.
(2.120.968 kr. án vsk)
Caddy með nýju sniði
Atvinnubílar
Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Vinsælasti atvinnubíllá Íslandi síðastliðin ár!
www.volkswagen.is
Bókamarkaður Bókabæjanna aust-
anfjalls hefur staðið með miklum
blóma í Leikhúsinu í Hveragerði
um helgar í sumar og markaðnum
lýkur með glæsibrag nú um
helgina. Höfuðþema síðustu helg-
arinnar verður „Núlifandi skáld á
Suðurlandi.“
Verða bækur skáldanna áber-
andi síðustu markaðsdagana og
efnt til ljóðadagskrár í Leikhúsinu
í dag laugardag kl. 15-16 með
skáldum af svæðinu. Á morgun,
sunnudag, verður eldfjörugt bóka-
uppboð klukkan 14 sem Ölfusingar
stýra af röggsemi. Þar verða boðn-
ir upp merkir bókagripir allt frá
18. öld en einnig nýlegar bækur á
hóflegu verði. Meðal annars verða
boðnar upp eftirsóttar og fágætar
bækur eins og Saga Hrauns-
hverfis, Einræður Steinólfs, Lúsa-
Sólveig og einstök myndabók um
Ólympíuleika Hitlers. En einnig al-
gengari gripir á frábæru verði svo
sem Þúsund ára sveitaþorp, Að
breyta fjalli, Snaran eftir Jak-
obínu, Mullersæfingar og árituð
ævisaga Ingólfs á Hellu og fleira
og fleira. Þá eru ótaldir hinir dýru
kjörgripir uppboðsins þar sem
hæst ber tvö erlend átjándu aldar
rit, annarsvegar Ferðabók Egg-
erts og Bjarna á þýsku í samtíma
forlagsbandi og fágætt sagn-
fræðiverk um dönsku Jómfrúreyj-
arnar.
Eftirtalin tíu skáld taka þátt í
dagskránni í dag laugardag:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir,
Kristian Guttesen, Kristján Run-
ólfsson, Norma E. Samúelsdóttir,
Pétur Önundur Andrésson, Sigríð-
ur Jónsdóttir, SJÓN, Steinunn P.
Hafstað, Þorsteinn Antonsson, Þór
Stefánsson og Þórður Helgason.
Markaðurinn er opinn kl 12 til
18 í dag og á morgun. Dagskrá
laugardags hefst kl. 15 og sunnu-
dags kl. 14.
Bókamarkaður Bókabæjanna austanfjalls
Upplestur skálda og
fjörugt bókauppboð
Ljósmyndir/Egill Bjarnason
Stemning Gott andrúmsloft var á bókauppboðinu fyrr í sumar.
Uppboð Bjarni Harðarson vert á Sunnlenska bókakaffinu stjórnaði uppboð-
inu röggsamlega og allt fór vel fram. Skemmtanagildið ekki langt undan.