Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 31
MESSUR 31á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 Aðventkirkjan í Reykjavík | Í dag, laugardag, er biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður er Sigríður Kristjánsdóttir. Barna- og ung- lingastarf. Sameiginlegur málsverður eftir samkomu. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Í dag, laugardag, er guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending frá Reykjavíkur- söfnuði. Aðventsöfnuðurinn á Akureyri | Í dag, laugardag, er biblíurannsókn kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf. Aðventsöfnuðurinn á Suð- urnesjum | Í dag, laugardag, er biblíu- fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður er Einar Valgeir Arason. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Í dag, laugardag, er biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er Erling Snorrason. Barna- og unglinga- starf. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Í dag, laugardag, er guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er Stefán Rafn Stefánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og unglingastarf. Umræðuhóp- ur á ensku. Súpa og brauð eftir sam- komu. Arnarbæli í Ölfusi | Útimessa kl. 14. Sóknarprestur messar. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng undir stjórn Hannesar Baldurssonar. Kirkjukaffi í boði kirkju- kórs og sóknarnefnda Hveragerði- sprestakalls. Árbæjarkirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn á ágústnámskeiði kirkjunnar taka virkan þátt í guðsþjón- ustunni. Sr. Þór Hauks og sr. Petrína Jóhannesdóttir þjóna ásamt Ingunni djákna og æskulýðsfulltrúa kirkj- unnar. Á eftir verður stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna þar sem farið verður yfir námskeiðið í vetur. Áskirkja | Áskirkja er lokuð vegna sumarleyfa sóknarprests og starfs- fólks til 18. ágúst. Næsta almenna messa verður í kirkjunni sunnudaginn 23. ágúst. Sjá nánar á askirkja.is. Bessastaðakirkja | Sameiginleg messa Bessastaða- og Garðasókna kl. 11. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prédikar og þjónar fyrir altari og Bjart- ur Logi Guðnason organisti leiðir lof- gjörðina. Fermdur verður Björn Baldur Blewett. Borgarneskirkja | Messa kl. 11. Organisti er Steinunn Árnadóttir. Prestur er Þorbjörn Hlynur Árnason. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Breiðholtskirkja | Messa kl. 11. Prestur er Gísli Jónasson. Kaffisopi í safnaðarheimili á eftir. Bústaðakirkja | Messa kl. 11. Jón- as Þórir er við hljóðfærið og félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða sönginn. Messuþjónar aðstoða. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru hvött til þátt- töku í messunni og minnt er á fermingarnámskeiðið sem verður 17.- 21. ágúst kl. 9 til 11.30. Digraneskirkja | Messa kl. 11. Prestar eru Gunnar Sigurjónsson og Magnús B. Björnsson. Um tónlistar- flutning sér hljómsveitin Ávextir and- ans. Upphaf fermingarfræðslu, þar sem fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Súpa í safnaðarsal að athöfn lokinni. Eftir hádegisverð verður undirbúnings- fundur fyrir haustnámskeið sem hefst á mánudeginum með ferming- arbörnum og foreldrum þeirra. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og mánud., miðvikud. og föstud. kl. 8, laugardag kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnudags- messa. Dómkirkjan | Messa kl. 11, séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Fermingarfræðslan hefst með þessari guðsþjónustu. Eftir messu verður kynningarfundur með fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra þar sem farið verður yfir hvernig fermingarfræðslunni verður háttað í vetur. Fella- og Hólakirkja | Helgistund kl. 20. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar. Organisti er Guðný Einars- dóttir. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. Fríkirkjan Reykjavík | Fermingar- messa kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó- hannsson safnaðarprestur þjónar fyrir altari. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Fermingarbarn dagsins er Linda Rún Jónsdóttir. Glerárkirkja | Messa kl. 20. Prestur er Jón Ómar Gunnarsson. Organisti er Valmar Väljaots. Kór Glerárkirkju leiðir söng. Grafarvogskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Forsöngvari leiðir safnaðarsöng. Organisti er Há- kon Leifsson. Kaffisopi eftir messu. Grensáskirkja | Morgunverður kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til lang- veikra barna. Messuhópur þjónar. Fé- lagar úr kirkjukór Grensáskirkju syngja. Organisti er Ásta Haralds- dóttir. Prestur er Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Guðríðarkirkja í Grafarholti | Guðs- þjónusta kl. 11. Prestur er Karl V. Matthíasson. Organisti er Hrönn Helgadóttir og Kór Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari er Kristbjörn Árna- son og kirkjuvörður er Lovísa Guð- mundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. Hafnarfjarðarkirkja | Helgistund kl. 11. Sálmasöngur, ritningarlestur, hug- leiðing, bænagjörð, altarisganga. Org- anisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs. Hallgrímskirkja | Hátíðarmessa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og þjónar ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur, sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur prófasti, sr. Leonard Ashford, dr. Sigurði Árna Þórðarsyni og hópi messuþjóna. Schola cantorum syngur, stjórnandi er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Organisti er Eyþór Franzson Wechner. Ein- söngur: Oddur Arnþór Jónsson bassi. Hljóðfæraleikarar úr Alþjóðlegu bar- okksveitinni í Haag. Sögustund fyrir börnin. Háteigskirkja | Messa kl. 11. Organisti er Kári Allansson. Prestur er Árni Svanur Daníelsson. Samskot dagsins renna til félagsstarfs flótta- manna í Reykjavík. Íslenska Kristskirkjan | Samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum. Edda Matthíasdóttir Swan prédikar. Kaffi eftir stundina. Keflavíkurkirkja | Kvöldmessa kl. 20. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vilbergs- sonar organista. Prestur er Erla Guð- mundsdóttir. Langholtskirkja | Messa kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar og fé- lagar úr Kór Langholtskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóns Stef- ánssonar organista. Í messunni verða þrír piltar fermdir. Messan markar einnig nýtt upphaf fermingarfræðslu fyrir komandi vetur og er öllum ung- lingum sem ætla að sækja fermingar- fræðslu í kirkjunni og foreldrum þeirra boðið að koma til kirkju þennan dag. Eftir messuna verður stuttur foreldra- fundur þar sem farið verður yfir skipu- lag fermingarfræðslunnar í vetur. Laugarneskirkja | Sumarguðsþjón- usta kl. 17. Toshiki Toma prestur inn- flytjenda prédikar og þjónar ásamt sóknarpresti. Arngerður María tón- listarstjóri leiðir söng. Lágafellskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Organisti er Arnhildur Valgarðs- dóttir. Prestur er Skírnir Garðarsson. Lindakirkja í Kópavogi | Lofgjörðar- og fyrirbænastund kl. 20. A. Júlíus Ólafsson gefur okkur sinn vitnisburð. Séra Sveinn Alfreðsson flytur hug- vekju. Ávextir andans sjá um tónlist- ina. Boðið er upp á persónulega fyrir- bæn í lok stundarinnar. Bænastund er fyrir stundina og hefst hún kl. 19.30. Kaffi eftir stundina. Neskirkja | Messa kl. 11. Prestur er Sigurvin Lárus Jónsson. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar. Samfélag á Torg- inu í kjölfar messu. Salt kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleit- isbraut 58-60, 3. hæð. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Túlkað á ensku. Selfosskirkja | Messa kl. 11. Prest- ur er Guðbjörg Arnardóttir, organisti er Jörg E. Sondermann, Kirkjukór Sel- fosskirkju syngur. Súpa á eftir gegn vægu gjaldi. Seljakirkja | Kvöldmessa kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Altaris- ganga. Seltjarnarneskirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason sóknar- prestur þjónar. Glúmur Gylfason er organisti. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju leiða almennan safn- aðarsöng. Kaffiveitingar. Skálholtsdómkirkja | Messa kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur ann- ast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Strandarkirkja | Maríu- og upp- skerumessa kl. 14. Prestur er Baldur Kristjánsson, organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Björg Þórhallsdóttir og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngja og Elísa- bet Waage leikur á hörpu. Eftir mess- una hefjast tónleikar sömu lista- manna. Þingvallakirkja | Messa kl. 14. Séra Halldór Reynisson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjugestir leggi bifreiðum á næstu bílastæði og gangi til kirkju. Orð dagsins: Farísei og toll- heimtumaður. (Lúk. 19) Morgunblaðið/Ómar Strandarkirkja Í dag kveðjum við einstaka konu, móður mína kæra, Þorsteinu Guð- rúnu. Þegar íhugað er hennar langa og farsæla lífshlaup þá eru þrjú orð sem fyrst koma upp í hug- ann: hetjuskapur, metnaður og þrautseigja. Móðir mín, sann- arlega varst þú hetja þegar þú varðst skyndilega ekkja með þrjú börn innan við ferming- araldur og ungling í framhalds- skóla. Það var sár missir þegar eiginmaður og faðir andaðist langt um aldur fram. Ekki kom þér til hugar að leggja árar í bát, heldur skyldi barist og þá kom metnaðurinn í ljós – ekki kom til mála að gefast upp, heldur skyldum við, við systk- inin sem heima vorum, öll mennta okkur og það tókst með þrautseigju þinni og ákveðni fyrst og fremst. Ekki má gleyma hjálp ætt- ingja og vina. Ættboginn norð- an af Hornströndum stóð styrkur við bakið á öllum þeim sem áttu um sárt að binda og þar stóðu systkini og foreldrar fremst í flokki. Einnig minnist ég dyggrar hjálpar vinafólksins Birgis og Birnu sem og Freys og Soffíu. Ekki voru auraráðin mikil þína búskapartíð á fyrri árum, en þá kom nýtni þín og handlagni til skjalanna. Við saumavélina var mörg hetjudáðin drýgð og þar óx þér ekkert í augum. Þar var ekkert ómögulegt; kjóla, jakkaföt og ekta leðurjakka mætti nefna sem þú saumaðir á okkur krakkana og þú lést þig ekki muna um að sauma líka á vin- ina og vinkonurnar, svona í leiðinni, að sjálfsögðu meðfram annarri vinnu, að ég ekki nefni, heimilisstörfum. Ég man þegar þú fórst í bæ- Þorsteina Guðrún Sigurðardóttir ✝ Þorsteina Guð-rún Sigurðar- dóttir fæddist 22. febrúar 1924. Hún lést 22. júlí 2015. Útför hennar fór fram 7. ágúst 2015. inn og skoðaðir föt t.d. í Karnabæ – fórst svo heim, sneiðst og saumað- ir sams konar föt á okkur systkinin eftir minni – oft bara flottari. Við bólstruðum líka sófasettið og sætin í bílnum. Sauma- skapnum hélst þú svo áfram fram á elliár, en þá komu listrænu hæfileikarnir í ljós þó svo að við hefðum svo sem alla tíð vitað af þeim. Þá voru prjónaðir og hekl- aðir dýrindisdúkar og fleiri hannyrðir fékkst þú við. Einnig voru málaðar myndir og unnið í leir. Nú var nógur tími. Ekki það að þú hafir ekki gefið þér tíma áður fyrr. Ég man þegar við sátum öll fjölskyldan saman við eldhús- borðið og máluðum vatnslita- myndir á kvöldin og hver skyldi hafa átt uppástunguna? Það væri hægt að skrifa upp svo langa skrá þess sem þú af- rekaðir á þinni löngu ævi að ég efast um að blaðið í dag myndi duga til þess svo ég læt þetta duga sem örlítið sýnishorn. Að byggja sumarbústað er til dæmis kapítuli út af fyrir sig. Broshýr móti bjartri sól breiðir faðm sinn Álftafjörður. Við þín fornu feðraból finn ég yndi, hvíld og skjól. Svipur þinn af hæð og hól heillar mig svo fagurgjörður. Broshýr móti bjartri sól. breiðir faðm sinn Álftafjörður. (Guðmundur Guðmundsson.) Æskustöðvanna í Súðavík minntist þú ávallt með hlýju og margar voru sögurnar sem ég fékk að heyra um fjörðinn þinn Álftafjörð, þannig að þegar ég kom þangað fyrst sex ára gam- all þekkti ég þorpið orðið mæta vel og jafnvel ættingjana líka. Á ástríka foreldra sem þú nefndir oft „bestu foreldra í heimi“ minntist þú oft og til okkar barnanna þinna skilaðir þú þeim arfi sem þú fékkst í vöggugjöf, að allt er mögulegt – allt er hægt að læra. Ég þakka þér, móðir mín, fyrir að hafa veitt mér það veganesti sem mér hefur dugað best í lífinu og veit að þá mæli ég fyrir munn okkar allra systkinanna, barnanna þinna. Blessuð sé minning þín, móðir mín. Þinn sonur, Jón. Elsku Steina amma. Það er alltaf sárt þegar ein- hver sem stendur manni nærri og hefur alla tíð verið innan handar frá því maður man eftir sér er allt í einu fallin frá. Þú áttir langt líf og fæddist löngu fyrir allt sem þekkist nú í dag. Bjóst meira segja í bragga á lífsleiðinni, en því höfum við krakkarnir í dag lítinn skilning á. Þú varst alltaf mjög góð við okkur systkinin og við getum ímyndað okkur að það hafi ver- ið ágætis vinna að hafa tölu á öllum þeim barna- og barna- barnabörnum sem eiga rætur sínar að rekja til þín. Þú mundir samt alltaf allt sem gerst hafði, nöfn og afmæli allra. Og þótt allir segi það um ömmur sínar erum við vissir um að amma Steina okkar var með bestu pönnukökur sem nokkur hefur bakað. Við eigum góðar minningar úr æsku frá því að leika okkur hjá þér í stofunni og virða fyrir okkur allar myndirnar og allt sem þú gerðir. Það er alveg á hreinu hvaðan listrænu hæfi- leikarnir runnu okkur í garð. Það verður gott að geta farið í Steinó og fundið þar fyrir ná- vist þinni. Takk fyrir allt, elsku amma. Björgvin og Daníel Sigurðarsynir. HINSTA KVEÐJA Dáðrík gæðakona í dagsins önn- um dýrust var þín gleði í móðurást. Þú varst ein af ættjarðar óska- dætrum sönnum, er aldrei köllun sinni og starfi brást. (Höf. Ingibjörg Sigurðardóttir.) Með virðingu og þökk, Sigríður Stefánsdóttir. ✝ Joyce van derWerff Gud- mundsson fæddist 25. september 1952 í Horn í Hollandi. Joyce lést á heimili sínu 12. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Johanna Kool, f. 1925, og Marinó Guðmunds- son, f. 1927. Þau eru bæði látin. Joyce átti fimm systkini, Jóhann, f. 1947, Dagnýr Mar- inó, f. 1949, Wilma, f. 1955, Páll, f. 1957, og Hrafnkell, f. 1962. Joyce ólst upp í Hollandi. Hún giftist 1974 Berhard van der Werff. Þau eignuðust tvö börn, Susönnu og Peter Poul. Joyce var kenn- ari og kenndi mestan hluta starfsævinnar börnum sem áttu erfitt með nám eða voru fötluð. Henni líkaði þetta starf mjög vel. Hún kom oft til Íslands, sér- staklega á yngri árum og þótti vænt um fjölskylduna hér. Hún var alltaf í góðu sambandi við ættingjana. Fyrir fimm árum greindist hún með illkynja sjúkdóm. Útför hennar hefur farið fram. Ég vil minnast systur minnar Joyce, sem lést á heimili sínu 12. júlí síðastliðinn. Sem lítil börn vorum við talsvert saman. Veröld okkar var garður ömmu okkar og afa á Kirkjuveg- inum á Selfossi. Hún var fimm árum yngri en ég. Þegar hún minntist æskunnar á Selfossi sagði hún oft: Það var alltaf sólskin og lykt af heyi. Heimur okkar þar var ekki stór. Leikvöllurinn á Heiðarvegin- um var okkar veröld. Soðinn fiskur í hádeginu hjá ömmu og þar var skyldumæting. Ég man þegar hún var tveggja ára gömul skírð í Stokkseyrarkirkju. Hún gekk sjálf inn í kirkjuna. Skoðaði allt þar inni eins og börn á þeim aldri gera. Síðan kallaði presturinn á hana og sagði að hún ætti að koma núna, hann ætlaði að skíra hana. Hún gekk þá beint til hans og þau drifu þetta af. Joyce þótti alltaf mjög vænt um gamla bæinn okkar við Ölf- usá. Alltaf þegar hún kom til landsins varð að fara austur. Þar átti hún góða trygga vini. Hún ólst upp í Hollandi en kom mörg sumur á unglingsárum og var hjá ömmu og afa á Selfossi. Joyce giftist Berhard van der Werff 1974 og bjuggu þau alla tíð í Huizen. Eignuðust tvö börn, Susanne og Peter Poul. Joyce varð kennari og kenndi í mörg ár börnum sem áttu félagslega erfitt. Systir mín hélt góðu sam- bandi við íslensku fjölskylduna. Margir úr fjölskyldunni okkar hér fóru til hennar og voru þar einhvern tíma. Fyrir fimm árum veiktist hún af illkynja sjúkdómi, fór í stórar aðgerðir og lyfjameðferðir. Stundum komu góðir tímar en líka erfiðir. Tveim vikum fyrir andát hennar töluðum við saman í síma. Sagðist hún vera tilbúin fyrir næsta skref. Hún barðist eins og hetja. Ég vil þakka henni vináttu og elskulegheit við mig og mitt fólk. Það má ekki gleyma góðu fólki sem við kynnumst á lífs- leiðinni. Ben og börnum sendi ég samúðarkveðju. Ég veit að Guð verður þreyttu barni sínu góður. Hvíl í friði, kæra systir. Jóhann Marinósson. Joyce van der Werff Gudmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.