Morgunblaðið - 15.08.2015, Side 16

Morgunblaðið - 15.08.2015, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 fiskafurðir frá Íslandi vegna auk- innar framleiðslu. Sósíalistaflokkur- inn var leynt og ljóst í nánum tengslum við sovésku kommúnista- stjórnina og það hefur án vafa haft áhrif á afstöðu Rússlands til við- skipta við Íslands. Vorið 1946 tók- ust samningar um að Rússar keyptu héðan 15 þúsund tonn af frystum fiski og talsvert af saltsíld og lýsi. Greitt var fyrir vörurnar í Bandaríkjadollurunum. Frá Rúss- landi keyptu Íslendingar timbur og kol. Þjóðviljinn, málgagn Sósíalista- flokksins, kallaði samninginn við Rússa „merkasta atburð í við- skiptasögu Íslands“. Stjórnarþátttöku Sósíal- istaflokksins lauk síðar þetta sama ár og Íslendingar ákváðu tveimur árum seinna að þiggja Marshall- aðstoð Bandaríkjamanna og skip- uðu sér í sveit vestrænna ríkja í kalda stríðinu. Þá breyttust viðhorf Rússa. Þeir vildu ekki halda við- skiptunum áfram. Guðni veltir því fyrir sér hvort kannski megi kalla það viðskiptaþvingun á sinn hátt. Samfelld viðskipti frá 1953 Afstaða Rússa til viðskipta við Ísland gerbreyttist fimm árum seinna. Þá áttu Íslendingar í land- helgisdeilu við Breta, sem leiddi til þess að löndunarbann var sett á ís- lenska togara í Bretlandi. Alvarlegt ástand var þá að skapast í íslensku efnahagslífi. „Ráðamenn í Moskvu vildu byggja upp þá mynd af sér að þeir væru vinir Íslands í raun,“ segir Guðni. Pólitísk sjónarmið hafi vafalaust ráðið miklu þegar samið var um kaup Rússa á miklu magni af fiskafurðum frá Íslandi á þessum tíma. Ekki var greitt fyrir í doll- urum eins og fyrr heldur var um vöruskipti að ræða; fengu Íslend- ingar olíu og bensín, sement og járn. Samningurinn sem var gerður í ágúst 1953 markaði upphaf við- skipta sem ekki áttu eftir að rofna fyrr en nú með ákvörðun Rússa að setja viðskiptabann á Ísland vegna stuðnings ríkisstjórnarinnar við takmarkaðar viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna og Vestur- Evrópuríkja. Höfðu í hótunum Íslensk stjórnvöld stóðu þétt við hlið bandamanna sinna í Atlants- hafsbandalaginu á tíma kalda stríðsins. Stjórnvöld hér tóku jafn- an undir ályktanir þar sem ýmsar aðgerðir Rússa í Austur-Evrópu og víðar, mannréttindabrot og út- þenslustefna, voru fordæmdar. En þetta hafði ekki áhrif á viðskipti þjóðanna. Þeim var haldið áfram þrátt fyrir mikinn pólitískan ágreining. Í byrjun áttunda áratugarins, þegar vinstristjórn áformaði upp- sögn varnarsamningsins við Banda- ríkin, voru uppi sögusagnir um að Rússar væru að tjaldabaki að beita stjórnina þrýstingi um að hraða málinu með því að gefa í skyn að ella gætu viðskipti landanna verið í hættu. Birtust m.a. um þetta fréttir í erlendum fjölmiðlum og hér í Morgunblaðinu. Þessu var þó harð- lega mótmælt af ráðherrum í ríkis- stjórninni. Guðni segir að gögn sýni ótvírætt að ráðamenn í Moskvu hafi í byrjun tíunda áratugarsins haft í óbeinum hótunum við Íslendinga um fram- hald viðskipta eftir að Íslendingar lýstu yfir stuðningi við sjálfstæðis- baráttu Eystrasaltsríkjanna sem innlimuð höfðu verið í Sovétríkin með hervaldi í lok seinni heims- styrjaldar. Var sendiherra Íslands í Moskvu m.a. kallaður í utanríkis- ráðuneytið þar í janúar 1991 þar sem hann fékk að heyra að Íslend- ingar gætu átt von á „harkalegum gagnaðgerðum“ sem gætu haft áhrif á samskipti þjóðanna. Ekkert varð af þessu, enda hrundi þetta mikla stórveldi sama ár. „Athyglisvert er að í ársbyrjun 1991 sátu íslenskir embættismenn við samningaborð við Rússa í Moskvu á sama tíma og þáverandi utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, var í Eystrasalts- löndunum og fordæmdi ofbeldi sem rússneskar sérsveitir beittu í land- inu,“ segir Guðni. „Íslendingar hefðu þá getað sagt að þeir ættu ekki í viðskiptum við þá sem kúg- uðu smáþjóðir. Það gerðu þeir ekki. Kremlverjar hefðu getað tilkynnt að þeir myndu ekki semja um frek- ari viðskipti nema Íslendingar hættu stuðningi við aðskiln- aðarsinna í Eystrasaltslöndunum. En til þess kom ekki.“ Þegar Al- þingi samþykkti í febrúar 1992 að viðurkenna sjálfstæði Litháens kölluðu Rússar sendiherra sinn á Íslandi heim. Sneri hann ekki aftur fyrr en nokkrum mánuðum seinna. Vildu minnka viðskiptin Þegar Rússar réðust inn í Afgan- istan í desember 1979 tóku Íslend- ingar undir harða gagnrýni alþjóða- samfélagsins á þá. Í janúar 1980 samþykktu fastafulltrúar Atlants- hafsbandalagsins, þar á meðal fulltrúi Íslands, að aðildarþjóðirnar skyldu draga úr viðskiptum við Rússa til að refsa þeim fyrir innrás- ina. Ekki er að sjá að neitt hafi ver- ið gert hér á landi til að fylgja þess- ari samþykkt eftir. Reyndar virðast Bandaríkjamenn einir hafa beitt Rússa viðskiptaþvingunum vegna innrásarinnar. Hér á landi kom stundum til um- ræðu að fá mætti í öðrum löndum betri og ódýrari vörur en þær sem keyptar voru af Rússum í vöru- skiptum fyrir fiskafurðir héðan. Einkum var rætt um olíu og bensín í því sambandi. Íslensku fyrirtækin sem áttu í viðskiptum við Rússa brugðust jafnan illa við þessum um- ræðum og hefur því oft verið lýst hér í blaðinu hvernig reynt var að þagga niður í ritstjórum Morg- unblaðsins sem létu nokkuð að sér kveða í gagnrýni á viðskiptin við Rússa. Ár er liðið síðan íslensk stjórn- völd ákváðu að taka þátt í við- skiptaþvingunum Evrópusam- bandsins og fleiri ríkja gegn rússneskum yfirvöldum í mótmæla- skyni við framferði þeirra í Úkra- ínu. Þvinganirnar eru á takmörk- uðum sviðum. Þetta leiddi til þess að Rússar ákváðu að banna inn- flutning á matvælum frá viðkom- andi ríkjum. Ísland var þó í hópi nokkurra ríkja sem undanskilin voru banninu án þess að upplýst væri um ástæður þess. Eftir að viðskiptaþvinganir Vesturlanda voru ítrekaðar nú í sumar með þátttöku Íslands breyttist afstaða Rússa. Nú hafa þeir ákveðið að loka á allan innflutning á íslenskum fiskafurðum í eitt ár. Viðskiptaþvinganir eru einsdæmi  Rússar og Íslendingar aldrei áður beitt hvor aðra beinum efnahagslegum þvingunum  Hafa átt í viðskiptum í áratugi  Ýmislegt hefur þó gengið á að tjaldabaki  Rússar höfðu í hótunum árið 1991 Morgunblaðið/Eggert Rússneska sendiráðið Héðan er vandlega fylgst með umræðum á Íslandi um samskipti og viðskipti þjóðanna. FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Íslendingar og Rússar hafa ekki fyrr en nú beitt hvor aðra beinum efnahagslegum þvingunum. Við- skipti landanna hófust eftir stríð og hafa stundum haft verulega þýð- ingu fyrir fjárhags- og atvinnu- ástand hér á landi. Aðeins eru tvö ár frá því að Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti ánægju yfir því að í langri sögu samskipta ríkjanna hefðu „engin alvarleg vandamál eða ágreiningur“ komið upp. Ekki er þetta þó alls kostar rétt. Skoðana- munur var lengi hér á landi um ýmsa þætti þessara viðskipta. Ým- islegt gekk og á bak við tjöldin. Í ársbyrjun 1991 gáfu Rússar í skyn að þeir myndu slíta viðskiptunum við Ísland ef ríkisstjórnin styddi sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkj- anna. Fyrstu viðskiptin 1946 Guðni Th. Jóhannesson sagn- fræðingur segir að viðskipti Íslands og Rússlands hafi hafist stuttu eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Rúss- land var þá hluti Sovétríkjanna sem liðuðust í sundur árið 1991. Ný- sköpunarstjórnin undir forsæti Ólafs Thors, formanns Sjálfstæð- isflokksins, með Sósíalistaflokkinn innanborðs, leitaði á þessum tíma markaða fyrir frosinn fisk og fleiri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.