Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Síða 38
M
arkaðir austan hafs og vestan
hafa verið í frjálsu falli í lið-
inni viku. Þetta hljómar
óhugnanlega en ýmsir gætu
bent á að hin litríka lýsing
hljómaði einnig kunnuglega.
Hún hefur oft áður verið brúkuð af dramadrottn-
ingum markaðanna.
Hvað er nýtt núna?
Sjálfsagt er að gá að sér í hvert sinn sem efnahags-
legir skjálftar af stærri gerðinni mælast. Það fer eld-
fjallaþjóð nærri um. En þó eru engin efni til að
hrökkva af hjörum í hvert sinn.
Iðulega valda gerviástæður slíkum kippum. Tölvur
annast nú orðið drjúgan hluta af daglegum alþjóð-
legum viðskiptum á mörkuðum. Og þótt þær séu stór-
ar og öflugar og hlaðnar vísdómi eftir margra ára
mötun og svo „greindar“ að þær vinna Garry Kasp-
arov í skák, segir það ekki alla söguna.
Skák er reikningsdæmi sem á betur við tölvutilveru
en um margt annað.
Gervigreind tölvanna á erfiðara þegar hún þarf að
eiga við atriði sem ekki lúta fyrirsjáanlegum og rök-
réttum vilja. Tölvuviðskiptin geta svo magnað frávikin
og ýtt undir taugaveiklun jafnt í tölvuheimum sem í
mannabyggðum. Tölvurnar eru þó með sama hætti
fljótar að rétta vitlausan kúrs af. Góðkynja skjálftar
líða því fljótt frá. En það er ekki alveg auðvelt að sjá í
hendi sér hvort skjálftinn sé góðkynja eða ekki. Mestu
skiptir í því sambandi hvort kaldur raunveruleikinn sé
að berja dyra, eða hvort gamalkunnur gegnumtrekk-
ur valdi óþægilegum hvellum. Sé það raunveruleikinn
sem er að rumska og ræskja sig er vissara að taka það
alvarlega. Sé það á hinn bóginn aðeins gegnumtrekk-
ur sem gerir vart við sig er rétt að hafa sig hægan.
Loka þeim glufum sem trekknum valda og halda að
öðru leyti ró sinni.
Gefa því smá gaum
Stundum eru aðvörunarmerkin hvorki skjálfti né
skellir heldur háttvísari og hlédrægari fréttir eða
fyrirboðar. En það geta verið jafnalvarleg afglöp að
átta sig ekki á þeim í tæka tíð.
Þegar góðskáldið hélt helst að kallað hefði verið til
þess og hlustaði um stund, bætti við birtuna og kallaði
loks fram, þá var það kvöldgolan sem veitti því svarið,
eins og menn muna. Og það voru engin smá tíðindi á
ferð. Lífið sjálft hafði þar kvatt dyra og nú var það
farið.
Skáldið hafði brugðist eðlilega við þessu kurteislega
kalli. Það hafði hugleitt hver það væri sem knúði svo
varfærnislega dyra. Skáldið bætti skilyrðin til að
skyggnast um gáttir og kallaði loks fram. Og þótt
þetta væri allt saman eðlilegt og rétt, varð það samt
sem áður rangt, af því of seint var sinnt kalli.
Svo var það fyrir átta árum
Áður en heimurinn varð fyrir sínum efnahagsáföllum
síðast bárust margvísleg merki. Heilbrigð skynsemi
var ónáðuð hvað eftir annað með athugasemdum og
klípum. Það vita menn núna. En hún var ekki á vakt-
inni. Og þegar hún loksins mætti og hafði orð á því
sem hún hafði heyrt, þá vildi enginn hlusta á hana.
Heilbrigð skynsemi varð fyrsti gleðispillirinn sem út-
kastararnir vísuðu á dyr.
Ísland hefur sennilega farið betur út úr sínum og al-
heimsins ógöngum en margur annar. Rétt var brugð-
ist við á þeim örfáu dögum þegar það skipti mestu
máli.
Það hjálpaði hins vegar heiminum sem heild í þess-
um áföllum, að hann var ekki allur undir. Þannig fóru
þessi áföll öll að mestu framhjá Kína. Svo heppilega
vildi til, að þetta annað mesta efnahagsveldi veraldar
og það fjölmennasta var á öðrum snúningi á þessum
tíma en þróaði heimurinn var. Kína var á umbreyting-
arskeiði og hinn mikli markaður þar var að opnast að
hluta til að fjöldinn mikli tók því fagnandi og af bjart-
sýni. Hann mætti til leiks á hárréttu augnabliki fyrir
hinn haltrandi hluta heimsins.
Hagvöxtur í Kína var með miklum ólíkindum ár eft-
ir ár. Það á við þótt viðurkennt sé að önnur lögmál
* Seðlabankar Evrópulanda ogBandaríkjanna hafa misserumsaman prentað fjármuni í stórum stíl
og öllum er ljóst að slíkum efnahags-
legum galdrabrögðum eru sett mörk
og er fyrir löngu komið að þeim.
Reykjavíkurbréf 21.08.15
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2015