Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landsvirkjun hefur næga raforku til
að standa við samninga við United
Silicon um afhendingu raforku til kís-
ilvers fyrirtækisins í Helguvík. Er þá
miðað við hvað kerfi fyrirtækisins
ræður almennt við. Allir viðskiptavin-
ir Landsvirkjunar fá afhent forgangs-
rafmagn en Magnús Þór Gylfason, yf-
irmaður samskiptasviðs, bendir um
leið á að ákveðinn sveigjanleiki sé til
staðar til að minnka afhendingu, svo
sem vegna slakrar vatnsstöðu eins og
raunin hefur verið síðustu ár.
Fyrsti bræðsluofn United Silicon
verður ræstur í maí. Hann þarf raf-
orku sem svarar til 35 megawatta
afls, samkvæmt raforkusölusamningi
sem Landsvirkjun gerði við fyrirtæk-
ið á síðasta ári. Landsvirkjun virkjar
ekki sérstaklega vegna þessa verk-
efnis. United Silicon vill kaupa raf-
magn fyrir fleiri ofna en bíður eftir að
Landsvirkjun hafi meiri orku til að
selja. Fleiri væntanlegir viðskiptavin-
ir eru í sömu stöðu.
Magnús Þór svarar spurningu
Morgunblaðsins um það hvaðan ork-
an fyrir fyrsta ofn United Silicon eigi
að koma á þá leið að Landsvirkjun
eigi óselt rafmagn til reiðu í raforku-
kerfi sínu. Svo hafi verið í umtalsverð-
an tíma. Bendir hann á að á undan-
förnum sextán árum hafi einungis
einu sinni verið gripið til skerðinga á
ótryggðri orku samkvæmt samning-
um við stóriðjufyrirtæki og aðra við-
skiptavini, þrátt fyrir að samningar
Landsvirkjunar veiti fyrirtækinu
mun rýmri heimildir. Viðskiptavinir
hafi notið góðrar vatnsstöðu.
Skerðingar innan væntinga
Vegna slakrar stöðu í vatnsbúskap
Landsvirkjunar í haust hefur við-
skiptavinum verið tilkynnt að til
skerðinga gæti komið 1. október og
þær staðið í vetur. Magnús bendir á
að þær skerðingar sem nú gæti þurft
að grípa til séu vel innan væntinga
allra viðskiptavina fyrirtækisins.
Í upplýsingum frá honum kemur
fram að dregið verði úr afhendingu í
samræmi við samninga og innan
samningsmarka við alla viðskiptavini.
Þar þurfi að gæta ákveðins jafnræðis,
óháð því hvenær fyrirtækin urðu við-
skiptavinir Landsvirkjunar.
Eiga næga orku
fyrir kísilverið
Eiga nægt óselt rafmagn í kerfinu til að
afhenda United Silicon fyrir fyrsta ofninn
Þrátt fyrir vindinn og grámyglulegu haustdagana í
Reykjavík sækja ástfangnir ferðamenn borgina heim.
Klæddir þykkum úlpum og búnir bakpokum arka þeir
upp Laugaveginn og skoða í búðarglugga. Þetta par
heldur ástúðlega um hvort annað og lætur sig ef til vill
dreyma, er það horfir á auglýsingaskiltið.
Morgunblaðið/Golli
Reykjavíkurástin smitar ferðamennina
Fjölbreytilegt mannlíf á Laugavegi að hausti til
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þau yfirvöld í Evrópu sem vinna að
landamæraeftirliti hafa áhyggjur af
afleiðingum flóttamannavandans fyr-
ir Schengen-samstarfið. Allir sem til
máls tóku á stjórnarfundi Frontex,
landamæraeftirlitsstofnunar Evrópu,
í gær töldu nauðsynlegt að grípa
strax til aðgerða.
Mikil umræða hefur verið um af-
leiðingar þess fyrir Schengen-
samstarfið ef ekki tekst að leysa
flóttamannavandann mikla. Ágrein-
ingur hefur verið innan ESB um
kvóta flóttamanna. Þannig lýsti
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, því yfir fyrr í vikunni að ef ekki
næðist samkomulag innan Evrópu-
sambandsins um að skipta ákveðnum
fjölda flóttamanna niður á aðild-
arríkin gengi Schengen-samstarfið
ekki lengur upp og myndi hrynja. Það
þýddi að tekið yrði upp eftirlit að nýju
við öll landamæri ESB-ríkja.
Ekki í hans stjórnartíð
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, lagði áherslu á að Schengen-
samstarfið stæðist álagið. Það yrði
ekki fellt úr gildi í hans stjórnartíð.
Hann lét þessa getið í gær þegar
hann kynnti tillögu að áætlun um
móttöku 160 þúsund flóttamanna frá
ríkjunum sem sitja uppi með flesta
flóttamennina.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, situr í 32
manna stjórn Frontex, landamæra-
eftirlitsstofnunar Evrópu. Stjórnin
fundaði í Varsjá í Póllandi í gær.
Hann segir yfirvöld sem standa að
landamæraeftirliti víðsvegar um álf-
una hafa áhyggjur af ástandinu. Allir
sem tóku til máls hafi talið að grípa
þyrfti til aðgerða strax. Einn fulltrú-
inn hafi lýst þeirri skoðun sinni að ef
ekki tækist að ná tökum á vanda-
málinu á næstunni, gæti það þýtt
endalok Schengen í núverandi mynd.
Ólafur Helgi segir að það sé ekki
sitt sem embættismanns að spá fyrir
um þróunina á Schengen. Allar
ákvarðanir um það séu í höndum
stjórnmálamanna ESB og annarra
ríkja. Dómsmálaráðherrar ræða mál-
ið á fundi sínum í Brussel næstkom-
andi mánudag. Ólöf Nordal dóms-
málaráðherra mun mæta þangað.
Víðtækar afleiðingar
Ekki er vitað hvað tæki við ef svo
færi að Schengen-samstarfið stæðist
ekki þessa áraun. Ef gengið yrði alla
leið til baka, til þess fyrirkomulags
sem var áður en Schengen kom til,
þyrfti að taka upp vegabréfaskoðun á
landamærum allra ríkja í Evrópu en
ekki aðeins á ytri landamærum sam-
starfsins eins og nú er. Það myndi
hafa gífurleg áhrif, ekki síst á flug-
völlum. Má nærri geta hvað gerðist á
Keflavíkurflugvelli sem fjórar millj-
ónir farþega fara um á ári.
Þó má búast við því að vegabréfa-
samstarf Norðurlandanna myndi
halda en það var til áður en Schengen
kom til. Þó eru fleiri útfærslur hugs-
anlegar, eins og að herða eftirlit með
íbúum utan Schengen-svæðisins.
Grípa þarf strax til aðgerða
Yfirvöld sem vinna að landamæraeftirliti í Evrópu hafa áhyggjur af Schengen-samstarfinu
Forseti framkvæmdastjórnar ESB telur að samstarfið standist áraun vegna straums flóttafólks
Eftirlit Búast má við lengri bið-
röðum ef Schengen leysist upp.
Stjórnmálamanna
að taka ákvarðanir
um Schengen-
samstarfið
Ólafur Helgi Kjartansson
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Héraðsdómur Austurlands hefur úr-
skurðað hollenskt par í tveggja
vikna gæsluvarðhald vegna rann-
sóknar á umfangsmiklu fíkniefna-
smygli. Parið var handtekið eftir að
verulegt magn fíkniefna fannst í hús-
bíl þess um borð í farþegaferjunni
Norrænu, sem kom til hafnar á
Seyðisfirði á þriðjudag.
Heimildir herma að um hvítt efni
sé að ræða og að talið sé að sam-
anlögð þyngd þess sé um áttatíu kíló.
Rannsóknin er á forræði lögreglunn-
ar á Austurlandi, sem hefur hvorki
viljað gefa upplýsingar um heildar-
magnið né um hvers konar efni sé að
ræða, en efnið á enn eftir að fara í
greiningu. Norræna kom til Seyðis-
fjarðar á þriðjudag eftir að hafa siglt
frá Hirtshals í Danmörku, með við-
komu í Færeyjum.
Lögregluyfirvöld segja að magnið
sé verulegt og að ljóst þyki að þetta
sé einn mesti fíkniefnafundur hér-
lendis. Parið, sem að sögn lögreglu
er á fimmtugsaldri, var flutt til
Reykjavíkur í gær.
Í samstarfi við færeysk yfirvöld
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglu var málið unnið í samstarfi lög-
reglustjórans á Austurlandi, emb-
ættis Tollstjóra, lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og færeyskra
tollayfirvalda. Þá segir enn fremur
að rannsókn málsins sé á frumstigi.
Verulegt magn fíkniefna
fannst í húsbíl á Seyðisfirði
Hollenskt par úrskurðað í tveggja vikna gæsluvarðhald