Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
SVIÐSLJÓS
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hvatti í gær ríki Evrópusam-
bandsins til að ganga lengra en gert
er ráð fyrir í nýrri tillögu fram-
kvæmdastjórnar ESB þar sem hún
leggur til sameiginlega stefnu í mál-
efnum hælisleitenda með það að
markmiði að skikka ríki til að taka
við ákveðnum fjölda flóttamanna.
Merkel sagði að bindandi kvóti án
fastrar hámarkstölu væri eina leiðin
til að skipta byrðunum með sann-
gjörnum hætti. Nokkur ESB-ríki í
austanverðri Evrópu eru hins vegar
andvíg bindandi flóttamannakvóta.
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnarinnar, kynnti í
gær tillögu hennar og þar er gert ráð
fyrir því að 22 aðildarríki Evrópu-
sambandsins taki við alls 120.000
flóttamönnum sem eru núna í Grikk-
landi, Ungverjalandi og á Ítalíu.
Hann hvatti einnig ríkin til að sam-
þykkja aðra tillögu, sem var lögð
fram í maí, um að þau tækju við
40.000 hælisleitendum á Ítalíu og í
Grikklandi. Sum ríkjanna hafa tekið
við tiltölulega fáum flóttamönnum og
markmiðið með tillögunni er að fá
þau til að taka þátt í því að leysa
mesta flóttamannavanda í Evrópu
frá síðari heimsstyrjöldinni.
Juncker sagði að Evrópusam-
bandið gæti ekki veitt öllum flótta-
mönnum heimsins hæli en bætti við
að ef ríkin samþykktu að taka við
160.000 flóttamönnum samsvaraði
það 0,11% af íbúafjölda allra ESB-
ríkjanna. „Í Líbanon er flóttafólkið
um 25% af íbúafjöldanum,“ sagði
Juncker og skírskotaði til þess að um
1,1 milljón flóttamanna frá Sýrlandi
er nú í Líbanon. Tæpar tvær millj-
ónir sýrlenskra flóttamanna eru í
Tyrklandi og um 630.000 í Jórdaníu.
Innanríkisráðherrar ESB-
ríkjanna ræða tillögu framkvæmda-
stjórnarinnar á fundi í Brussel á
mánudaginn kemur.
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa sagt
að búist sé við um 800.000 hælisum-
sóknum þar í ár og segja að Þjóð-
verjar geti tekið við um hálfri milljón
flóttamanna á ári næstu árin. Merkel
sagði að ESB-ríkin þyrftu að ná
samkomulagi til langs tíma um
hvernig skipta ætti byrðunum með
sanngjörnum hætti. „Við þurfum
bindandi samkomulag um bindandi
skiptingu flóttamanna milli aðildar-
ríkja í samræmi við sanngjarnar for-
sendur. Við getum ekki aðeins
ákveðið hámarksfjölda og sagt að við
kærum okkur ekki um neitt umfram
hann.“
Spáir flóttamannastraumi
í „mörg ár“
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB og fyrrverandi forsætisráð-
herra Póllands, sagði í fyrradag að
búast mætti við því að flóttamanna-
straumurinn til Evrópu héldi áfram
„í mörg ár“. Hann hvatti til harðra
aðgerða gegn smyglurum, sem hafa
flóttafólkið að féþúfu, og lýsti þeim
sem „morðingjum“. Tusk skírskotaði
til þess að talið er að um 2.850 flótta-
menn hafi drukknað á leiðinni yfir
Miðjarðarhafið það sem af er árinu
og dæmi eru um að tugir flótta-
manna hafi kafnað í flutningabílum á
leiðinni til vestanverðrar Evrópu.
Stjórnvöld í Póllandi, Slóvakíu,
Tékklandi og Rúmeníu hafa lagst
gegn bindandi flóttamannakvóta.
Forsætisráðherra Tékklands, Bo-
huslav Sobotka, lét í ljós efasemdir
um tillögu framkvæmdastjórnarinn-
ar í gær. „Ég er ekki sannfærður um
að Evrópusambandið þurfi nýja
áætlun um hvernig leysa eigi flótta-
mannavandann,“ sagði hann. Stjórn
Slóvakíu hefur sagt að hún vilji að-
eins taka við kristnu flóttafólki.
Fréttaveitan Reuters sagði þó í
gær að svo virtist sem andstaðan við
tillöguna hefði minnkað vegna mikils
þrýstings frá stjórnvöldum í Þýska-
landi, Frakklandi og á Ítalíu. „Þegar
Merkel þarf eitthvað, og þegar hún
beitir sér af skynsemi, þá kemur
skriður á málin,“ hafði fréttaveitan
eftir stjórnarerindreka frá fyrrver-
andi kommúnistaríki í Austur-Evr-
ópu.
Stjórn Póllands hafði sagt að hún
vildi taka við 2.000 flóttamönnum en
Ewa Kopacz, forsætisráðherra
landsins, segir nú að Pólverjar geti
lagt meira af mörkum. Samkvæmt
nýju tillögunni frá framkvæmda-
stjórninni á Pólland að taka við nær
9.300 flóttamönnum.
Ungverski forsætisráðherrann
Viktor Orban hefur lagst gegn bind-
andi flóttamannakvóta þótt í tillög-
unni sé gert ráð fyrir því að ESB-
ríkin taki við tugum þúsunda flótta-
manna sem eru núna í Ung-
verjalandi. Orban segir að með
tillögunni sé ekki tekið á rót flótta-
mannavandans og hún verði til þess
að enn fleiri flóttamenn freisti þess
að komast til Evrópu.
Skortur á ungu starfsfólki
Fréttaskýrandi The Washington
Post, Rick Noack, segir að ein af
ástæðum þess að Þjóðverjar séu vilj-
ugri til að taka við flóttamönnum en
margar aðrar þjóðir í Evrópu sé sú
að þeir geri sér sífellt betur grein
fyrir því að þeir þurfi á innflytjend-
um að halda vegna fyrirsjáanlegrar
fólksfækkunar í Þýskalandi og
hækkandi hlutfalls aldraðra. Hann
bendir á að hagstofa Þýskalands
spáir því að íbúum landsins fækki úr
81 milljón í um 68-73 milljónir fyrir
árið 2060. Á hvern Þjóðverja á eftir-
launaaldri eru núna þrír á starfsaldri
og gert er ráð fyrir að hlutfallið
lækki í einn á móti tveimur á næstu
45 árum, samkvæmt spá fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins.
Mikill skortur er nú þegar á ungu
og faglærðu starfsfólki í Þýskalandi
og fyrirtæki landsins hafa ekki getað
ráðið í hundruð þúsunda starfa af
þeim sökum, að sögn The Was-
hington Post. „Flestir flóttamenn-
irnir eru ungir, vel menntaðir og
mjög áhugasamur um að fá vinnu,“
hefur blaðið eftir Dieter Zetsche,
forstjóra Daimler.
Vill bindandi kvóta án hámarks
Ein af ástæðum þess að Þjóðverjar eru viljugri til að taka við flóttafólki en margar aðrar ESB-þjóðir
er skortur á vinnuafli og hækkandi hlutfall aldraðra Þýskaland talið þurfa á innflytjendum að halda
AFP
Fólk á flótta Lögreglumaður ræðir við flóttamenn í ungverskum bæ við landamærin að Serbíu. Rúmlega 160.000
flóttamenn hafa komið til Ungverjalands það sem af er árinu, þar af 2.706 á einum sólarhring fyrr í vikunni.
Flóttamannakvóti
» 22 lönd eiga að taka við
120.000 flóttamönnum sem
eru í Grikklandi, Ungverjalandi
og á Ítalíu, skv. nýju tillögunni:
Austurríki: 3.640
Belgía: 4.564
Búlgaría: 1.600
Eistland: 373
Finnland: 2.398
Frakkland: 24.031
Holland: 7.214
Lettland: 526
Litháen: 780
Lúxemborg: 440
Malta: 133
Króatía: 1.064
Kýpur: 274
Portúgal: 3.074
Pólland: 9.287
Rúmenía: 4.646
Slóvakía: 1.502
Slóvenía: 631
Spánn: 14.931
Svíþjóð: 4.469
Tékkland: 2.978
Þýskaland: 31.443
» Samkvæmt sáttmálum Evr-
ópusambandsins þurfa Bret-
land, Írland og Danmörk ekki
að taka þátt í kvótakerfinu.
Ítölskum skák-
manni hefur ver-
ið vikið frá
keppni vegna
svindls sem fólst
í því að hann not-
aði myndavél og
morsmerkja-
sendingar til að
hafa betur gegn
andstæðingum sínum á einu af virt-
ustu skákmótum Ítalíu.
Skipuleggjendur mótsins fór að
gruna að brögð væru í tafli þegar
skákmaðurinn Arcangelo Ricciardi,
sem er í 51.366. sæti yfir bestu
skákmenn heims, fór að leggja mun
sterkari andstæðinga að velli á
mótinu. Ricciardi er sagður hafa
blikkað augunum á mjög óvenju-
legan hátt á meðan hann var með
báðar hendur í handarkrikum, að
sögn fréttavefjar BBC.
Skákmaðurinn var beðinn um að
ganga í gegnum málmleitartæki
sem nam hálsfesti undir skyrtunni.
Í ljós kom að hún var með örsmáa
myndavél sem var tengd litlu boxi
undir handarkrikanum.
Mótshaldarar halda því fram að
Ricciardi hafi notað myndavélina til
að senda leikina til annars manns
sem var með skákforrit í gangi. Sá
er grunaður um að hafa sent Ricci-
ardi leiki með morsmerkjum, að
sögn fréttavefjarins.
ÍTALÍA
Skákmanni vikið frá keppni fyrir brögð
í tafli með morsmerkjum og myndavél
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar