Morgunblaðið - 10.09.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Árni Páll Árnason freistar þessað ljúka pólitískri eyðimerk-
urgöngu sinni með því að leiða
heimsbyggðina upp á Vatnajökul.
Í umræðum um
stefnuræðu for-
sætisráðherra var
hann staddur þar
ásamt sjö millj-
örðum manna.
Ræðan hófst áþessum orð-
um: „Mig langar í upphafi að
heilsa ykkur sem heima sitjið og
biðja ykkur um að koma með mér
í stutt ferðalag, loka augunum og
við ímyndum okkur að við séum
komin upp á Vatnajökul í sól og
blíðu og víðernin blasi við. Ímynd-
um okkur nú að það sé fleira fólk
á Vatnajökli, það sé fullt af fólki á
Vatnajökli, samt ekki troðnara en
svo að við getum rétt út hend-
urnar. Við sjáum mannmergðina.
Ímyndum okkur nú að við séumkomin til London. Þar er bara
ekki hræða á götunum og ekki
hræða í neðanjarðarlestunum
vegna þess að allt fólkið er uppi á
Vatnajökli. Við komum til Sýr-
lands. Þar er enginn, engin átök,
ekki neitt, allt fólkið uppi á
Vatnajökli. Kína — tómt. Indland
— tómt. Þegar við opnum augun,
ætlum við þá að reyna að halda
því fram í fullri alvöru að heim-
urinn sé svo stór að við getum
ekki haft áhrif á hann til breyt-
inga og mannfjöldinn svo mikill
að við skiljum ekki hver hann er?
Nei, það er ekki þannig.“
Hver ætlar svo að halda þvífram að boðskapur Samfylk-
ingarinnar höfði ekki til almenn-
ings?
Dettur nokkrum manni í hugað sá jarðarbúi sé til sem
ekki vill fylgja formanninum upp
á Vatnajökul?
Árni Páll
Árnason
Árni Páll Árnason
á Vatnajökli
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.9., kl. 18.00
Reykjavík 12 rigning
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 16 alskýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 18 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskírt
Lúxemborg 17 léttskýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 13 skýjað
London 18 heiðskírt
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 17 skýjað
Vín 13 skúrir
Moskva 12 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 22 heiðskírt
Aþena 23 léttskýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 27 alskýjað
New York 30 skýjað
Chicago 21 alskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:36 20:14
ÍSAFJÖRÐUR 6:37 20:24
SIGLUFJÖRÐUR 6:20 20:07
DJÚPIVOGUR 6:05 19:45
Hellulína tvö, 13 kílómetra langur jarðstrengur
Landsnets milli Hellu og Hvolsvallar, er nú
kominn í rekstur. Hann leysir af hólmi nærri
70 ára gamla loftlínu og eykur bæði flutnings-
getu og afhendingaröryggi raforku á svæðinu.
Jarðstrengurinn milli Hellu og Hvolsvallar
var spennusettur þann 4. september sl. og ann-
aðist fyrirtækið Þjótandi lagningu hans. Vinn-
an hófst í maímánuði og gengu framkvæmdir
mjög vel. Strengurinn er gerður fyrir 66 kV
spennu og var hann framleiddur af alþjóðlega
kapalfyrirtækinu nkt cables. Fyrirtækið sá
jafnframt um flutning strengsins til landsins og
eftirlit með lagningu hans, tengingum og próf-
unum en Orkuvirki var undirverktaki nkt hér-
lendis.
Með tilkomu jarðstrengsins hefur gamla loft-
línan, sem var reist árið 1948, lokið hlutverki
sínu. Hún er með elstu línum í raforkukerfinu
og er stefnt að því að fjarlægja hana í vetur.
Jarðstrengur kominn í rekstur
Leysir af hólmi nærri 70 ára gamla loftlínu
Framkvæmdir gengu vel við jarðstrenginn
Hellulína Vinna við jarðstrenginn var á áætlun.
Áshildur Braga-
dóttir hefur verið
valin úr hópi 39
umsækjenda til að
taka við stöðu for-
stöðumanns
Höfuðborgar-
stofu. Stofan rek-
ur fjölþætta upp-
lýsingamiðlun
fyrir ferðamenn í
Reykjavík og sér
um framkvæmd stórra borgarhátíða
ásamt samráði og ráðgjöf við skipu-
leggjendur annarra viðburða í borg-
inni.
Áshildur Bragadóttir er viðskipta-
fræðingur með MSc í Stjórnun og
stefnumótun frá Háskóla Íslands.
Frá árinu 2012 hefur hún gegnt stöðu
framkvæmdastjóra Markaðsstofu
Kópavogs. Hún hefur víðtæka stjórn-
unarreynslu bæði frá stórum og
smáum fyrirtækjum og stofnunum,
en hún gegndi m.a. áður störfum sem
samskipta- og markaðsstjóri við-
skipta- og hagfræðideildar Háskóla
Íslands, sérfræðingur og deild-
arstjóri hjá Landsbankanum.
Áshildur tekur við stjórn Höfuð-
borgarstofu 16. september nk. þegar
Einar Bárðarson hættir.
Áshildur
Bragadóttir
Áshildur
ráðin
Tekur við stjórn
Höfuðborgarstofu
Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566
Opið:
Þri. - föst. 10-18
laugardaga 11-16
- eitt vinsælasta
barnafatamerkið
í Skandinavíu í dag...
facebook.com/biumbiumstore
Instagram: @biumbiumstore
MarMar
COPENHAGEN