Morgunblaðið - 10.09.2015, Blaðsíða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég kom fyrst til Íslandsfyrir 30 árum, til að vinnaverkefni með rithöfund-inum Peter Stark sem átti
að skrifa grein um Ísland fyrir tíma-
ritið ISLANDS Magazine. Ég átti að
taka myndirnar og þetta var afar
spennandi fyrir mig því þetta var
mitt fyrsta stóra alvöru tímaritsverk-
efni. Við Peter vorum svo heppnir að
okkur til leiðsagnar um Ísland fór
ungur maður, Ólafur Baldursson,
sem nú er orðinn læknir. Við fundum
hvor annan á netheimum fyrir nokkr-
um árum. Ég á afar góðar minningar
frá þessari ævintýraferð okkar þre-
menninganna,“ segir Raymond
Gehman, bandarískur ljósmyndari,
sem kom aftur til Íslands í liðinni
viku til að halda nokkurra daga ljós-
myndanámskeið þar sem hann fór
um Ísland og lét að sjálfsögðu ekki
hjá líða fara með nemendur sína að
hitta aftur Vatnajökul, sem hann
kynntist á ógleymanlegan hátt í fyrri
Íslandsferð sinni fyrir þremur ára-
tugum.
„Ég vissi ekkert um Ísland þeg-
ar ég kom hingað árið 1985. Eina sem
ég vissi var að við áttum að fara upp á
jökul sem heitir Vatnajökul og að þar
átti ég að taka myndir. Mér var sagt
að við yrðum á jöklinum í nokkra
daga og að ég yrði að koma mér í gott
líkamlegt form til að geta það. En ég
var engan veginn búinn undir þessa
göngu upp á jökulinn, hún var svaka-
lega erfið. En Óli var í fantaformi,
enda kornungur og hraustur,“ segir
hann og hlær.
„Við þurftum að fara á skíðum
hluta leiðarinnar og ég datt ofan í
jökulsprungu, en skíðið bjargaði mér.
Þegar upp á jökulinn var komið höfð-
um við náttstað í pínulitlum fjalla-
kofa. Peter var með viskí og við þrír
áttum góðar stundir í kofanum, þetta
var rosalegt ævintýri,“ segir hann og
hlær.
„Við fórum um stórfenglegt
svæði uppi á jöklinum, meðal annar á
hinn magnaða Bensíntunnutind í
Kverkfjöllum og einnig í íshelli í
Hveradal sem er í 1700 metra hæð,“
segir Raymond og bætir við að ferðin
þegar þeir óku frá jöklinum til Ak-
ureyrar hafi ekki síður verið eft-
irminnileg, þegar þeir óku heilan dag
í endalausri auðn.
„Við fórum líka til Víkur í Mýr-
dal og á fleiri staði, en Vatnajökuls-
ævintýrið var klárlega hátindur Ís-
landsferðarinnar.“
Mikið á sig lagt fyrir mynd
Þremur árum eftir Íslands-
ævintýrið hóf Raymond störf sem
ljósmyndari hjá hinu virta tímariti
National Geographic og starfaði þar í
25 ár. Hann hefur í þrígang fengið
verðlaun fyrir ljósmyndir sínar sem
birst hafa á forsíðu tímaritsins.
„Það hefur verið eitt allsherjar
ævintýri að vinna fyrir National
Geographic og alveg frá því ég hóf
störf þar þá vissi ég að köllun mín
væri að mynda undur náttúrunnar.
Ég hef ferðast um víða veröld til að
ljósmynda fyrir þetta magnaða tíma-
rit, ég hef myndað mikið í kalda
norðrinu í Kanada, en líka í regn-
skógunum, í Suður-Ameríku, í Kína,
á norðurheimskautasvæðinu og ótal
fleiri stöðum. Ég hef lagt mikið á mig
til að ná góðum myndum, ferðast
dögum saman á hestum um óbyggðir
og verið í heila viku í helli ofan í jörð-
inni, svo fátt eitt sé nefnt.“
Návígi við reiðan skógarbjörn
Eðli málsins samkvæmt lenti
Raymond í hinum ýmsu ævintýrum á
þessum aldarfjórðungsferli hjá Nat-
ional Geographic.
„Svæðið í norð-vestri í Kanada
varð mín sérgrein og þangað fór ég
margsinnis og dvaldi vikum saman
úti i villtri náttúru við frumstæðar að-
stæðu. Eitt sinn komst ég í návígi við
risastóran skógarbjörn þegar ég var í
bátsferð með frumbyggja í heila viku.
Þessi maður kunni að lesa í hegðun
dýranna og hann var á veiðum, að
safna matarforða fyrir veturinn. Allt-
Aftur á Íslandi 30
árum eftir jöklaferð
Raymond Geham lenti í jökulsprungu og ýmsum öðrum ævintýrum þegar hann
fór upp á Vatnajökul með ungum íslenskum manni og erlendum rithöfundi fyrir
margt löngu til að taka myndir. Hann er kominn aftur til að mynda.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ljósmyndari Raymond Geham fann köllun sína þegar hann hóf störf hjá National Geographic fyrir 25 árum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Haldið verður upp á Alþjóðadag
sjálfsvígsforvarna með fjölbreyttri
dagskrá í fjórum byggðarlögum á
landinu í dag.
Í Þjóðminjasafninu í Reykjavík í
dag kl. 15.30 eru allir boðnir vel-
komnir á frumsýningu forvarnar-
myndbands Útmeð’a forvarnarátaks-
ins gegn sjálfsvígum ungra karla,
sem og á fyrirlestur.
Dagskráin í Þjóðminjasafninu
hefst með stuttum inngangi Hrann-
ars Jónssonar, formanns Geðhjálpar,
um þema dagsins. Því næst verður
forvarnarátakið Útmeð’a kynnt.
Átakið er samvinnuverkefni Geð-
hjálpar, Hjálparsíma Rauða krossins
og tólf manna hlaupahóps undir yf-
irskriftinni Útmeð’a. Með yfirskrift-
inni eru ungir karlmenn hvattir til að
setja erfiðar tilfinningar í orð til að
bæta líðan sína. Hlaupahópurinn
hljóp hringveginn með viðkomu í
Vestmannaeyjum til að safna fyrir
kostnaði við gerð myndbandsins fyrr
í sumar.
Markmiðið með gerð og dreifingu
myndbandsins er að stuðla að fækk-
un sjálfsvíga á Íslandi – einkum
meðal karla í aldurshópnum 18 til 25
ára. Sjálfsvíg eru algengasta dán-
arorsök karlmanna í þessum aldurs-
hópi á Íslandi. Í myndbandinu er
tæpt á nokkrum helstu orsökum
sjálfsvíga ungra karla og veittar upp-
lýsingar um hvar fólk í sjálfsvígs-
hugleiðingum getur leitað sér hjálp-
ar. Myndbandinu verður dreift á
netinu og styttri útgáfa sýnd í hefð-
bundnum fjölmiðlum og kvikmynda-
húsum. Stefnt er að því að fylgja
myndbandinu eftir með fyrirlestrum
í framhaldsskólum.
Segir frá eigin reynslu af því
að gera tilraun til sjálfsvígs
Eftir frumsýningu myndbandsins
mun Steindór J. Erlingsson, vís-
indasagnfræðingur, segja frá sinni
eigin reynslu af því að gera tilraun til
sjálfsvígs, fjalla um sjálfsvíg í víðu
samhengi og þær leiðir sem bættu
líðan hans. Eftir erindið munu Stein-
dór og nokkrir sérfræðingar verða til
viðtals við fjölmiðla og almenning í
hliðarsal. Þar verður boðið upp á
kaffi fyrir gesti.
Efnt verður til minningarstunda
um fórnarlömb sjálfsvíga í Dómkirkj-
unni í Reykjavík, Akureyrarkirkju, Eg-
ilsstaðakirkju og Keflavíkurkirkju kl.
20 í kvöld, með hugvekju og tónlist.
Að dagskránni standa: Þjóð-
kirkjan, embætti landlæknis, geðsvið
Landspítalans, Ný dögun, Lifa, Rauði
krossinn, Hugarafl og Geðhjálp.
Áherslan er á unga karlmenn
Mikil dagskrá á Alþjóðadegi
sjálfsvígsforvarna sem er í dag
Garpar Útmeða-hópurinn hress og kátur þegar hann kom í mark eftir að
hafa hlaupið hringveginn og út til Vestmannaeyja í sumar til að safna.
Morgunblaðið/Golli
Þunglyndi Í átakinu Útmeða eru ungir karlmenn hvattir til að setja erfiðar
tilfinningar í orð til að bæta líðan sína, en það skiptir miklu máli.