Morgunblaðið - 10.09.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Við höfum fengið viðurkenninguna
Fyrirmyndarfyrirtæki Kringlunnar 2015
Af því tilefni bjóðum við ykkur
20% AFSLÁTT
AF ÖLLUM GALLABUXUM
FIMMTUDAG TIL MÁNUDAGS
GALLABUXNA
DAGAR
Vertu vinur okkar á facebook
Verð frá 6.392,-
Fylgi Pírata féll um tvö prósentu-
stig í fylgiskönnun MMR sem var
birt í gær á mmr.is. Píratar mæld-
ust með 33,2% fylgi og eru enn
stærsti stjórnmálaflokkur landsins.
Á sama tíma bætti Sjálfstæðisflokk-
urinn við sig tveimur prósentustig-
um og mælist nú með 25,3% fylgi.
Björt framtíð skreið yfir fimm
prósenta múrinn í könnuninni og
mælist nú með 5,8%. Í síðustu könn-
un mældist Björt framtíð með 4,4%
fylgi og hefði það verið niðurstaða
þingkosninga, hefði flokkurinn
ekki fengið þingmann kjörinn.
Samfylkingin bætti við sig einu
prósenti og mælist nú með 10,6%,
Vinstri grænir mælast með 9,6 fylgi
og Framsóknarflokkurinn með
11,4% fylgi. Fylgi ríkisstjórn-
arinnar jókst um rúmlega eitt pró-
sent milli kannana og er nú 34,4%,
en síðasta fylgiskönnun MMR var
fyrir mánuði.
Píratar
missa tvö
prósent
Björt framtíð
mælist með 5,8%
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn bætir
við sig fylgi frá síðustu könnun.
Tréð sem talið er vera hæsta tré
landsins nálgast nú 27 metrana.
Tréð er sitkagreni sem gróðursett
var á Kirkjubæjarklaustri árið
1949.
Ýmsir hafa slegið máli á þetta tré
undanfarin ár og mældist það 26,1
metri á hæð um miðjan ágúst á síð-
asta ári. Skógarvörðurinn á Suður-
landi var á ferðinni á Kirkjubæjar-
klaustri í vikunni og mældi hæð
trésins, sem reyndist vera orðið um
27 metra hátt eftir gott vaxtar-
sumar. Skekkjumörk eru meiri á
þessari mælingu en á mælingu síð-
asta árs sem var gerð með nákvæm-
ara tæki, samkvæmt því sem greint
er frá á heimasíðu Skógræktar-
innar. Fleiri tré í skóginum voru
mæld og reyndust a.m.k. tvö sitka-
greni til viðbótar vera komin yfir
25 metra hæð og fjöldi trjáa yfir 20
metra hæð.
Eitt af gildari sitkagrenitrjánum
á Kirkjubæjarklaustri var einnig
mælt. Var það ríflega 25 metrar á
hæð og 65 sentimetrar í þvermál í
brjósthæð.
Hátt í tonn kolefnis
Gera má ráð fyrir að slíkt tré
innihaldi vel á þriðja rúmmetra við-
ar og að í því sé bundið hátt í tonn
kolefnis (C). Þá hefur það bundið á
þriðja tonn af koltvísýringi (CO2),
segir á skogur.is
Hæsta tré landsins að
nálgast 27 metra hæð
Ljósmynd/Hreinn Óskarsson
Vöxtur Séð yfir skóginn á Kirkjubæjarklaustri og sjá má hæsta tré landsins
skaga upp úr lundinum ofan við gamla sláturhúsið á Klaustri.
Á þessum árstíma eru bændur að
reka fé af fjalli og þegar komið er í
byggð má búast við umferðartöfum
á vegum, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Suðurlandi. Þannig
auglýsir Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur á heimasíðu sinni að tafir
verði á umferð á þjóðvegi nr. 32,
Þjórsárdalsvegi, fimmtudaginn 10.
september, föstudaginn 11. sept-
ember og á þjóðvegi nr. 30, Skeiða-
og Hrunamannavegi, laugardaginn
12. september vegna fjárrekstra.
Hjáleiðir eru færar.
Sama á við um fjárrekstur af
Hrunamannaafrétti en safnið kemur
fram í dag, fimmtudag 10. sept-
ember, og má þá búast við umferð-
artöfum á Skeiða og Hruna-
mannavegi ofan Flúða (30) frá
Tungufellsvegi að Kirkjuskarði. Féð
er síðan rekið um Kirkjuskarð eftir
Hrunavegi (344) að Hrunaréttum
þar sem réttað verður á föstudag 11.
september kl. 10:00.
Tafir vegna
fjárreksturs
á Suðurlandi