Morgunblaðið - 10.09.2015, Qupperneq 11
Raymond heldur námskeið, sem eru öllum opin, á hverju ári á ólíkum stöð-
um í heiminum. Yfirskrift þeirra er: „How to see and shoot like a National
Geographic Photographer.“
„Ég ferðast með námskeiðshópnum í nokkra daga hverju sinni, ýmist á
hestbaki í Banff þjóðgarðinum í Kanada, á Indlandi, Toscana á Ítalíu, há-
lendi Bólivíu eða á Íslandi, sem ég geri núna í fyrsta sinn. Þessi námskeið
eru fyrir fólk sem er statt á misjöfnum stað í ljósmyndun, bæði byrjendur
og lengra komna. Við erum með Power point kynningu í byrjun og svo leið-
um við fólk inn á listrænu hliðina í ljósmyndun, en ég legg mikla áherslu á
listræna þáttinn og fer yfir það hvað það er sem gerir ljósmynd að lista-
verki.“
Þar sem Raymond leggur áherslu á landslagsljósmyndun á námskeið-
unum, að fanga undur náttúrunnar, segir hann það hafa blasað við að
koma til Íslands með námskeið.
„Á Íslandi er endalaus efniviður fyrir ljósmyndara í undrum náttúrunna.
Við fórum um Reykjanes, á Nesjavelli, Þingvelli, Gullfoss og Geysi, til Víkur
í Mýrdal, í Skaftafell, upplifðum andstæður svörtu sandanna og Vatnajök-
uls, fórum að Jökulsárlóni og enduðum á Höfn í
Hornafirði. Mig langar að koma aftur á næstu ári
með námskeið til Íslands, helst um vetrartím-
ann.“
Á nýliðnu námskeiðinu á Íslandi segist Ray-
mond hafa verið með nýjan flöt, þar sem kom-
ið var sérstaklega inn á sálfræði ljósmynd-
unar, en kona Raymonds, Constance Avery-
Clark er sálfræðingur og sá um þann þátt.
„Við spyrjum og leitum svara, til dæmis:
Hvað er það í ljósmynd sem verður til þess
að fólk bregst við henni? Hvað gerir ljós-
mynd áhrifaríka?“
Nánar á heimasíðu Raymonds:
www.raymondgehman.com
Námskeið á Íslandi
og um víða veröld
OPIÐ FYRIR ALLA
af þegar hann benti mér á dýr sem ég
gæti náð góðri ljósmynd af, þá skaut
hann dýrið um leið og ég var búinn að
mynda. Hann fláði skrokkana og tók
með sér heim, enda nýtir þetta fólk
allt af skepnunni og kjötið grafa þeir í
jörð, þar sem það geymist í frosti. Við
lok ferðarinnar þegar hann var ekki
með riffilinn með sér, komumst við í
tæri við skógarbjörninn. Hann var
svakalegur, klærnar á honum voru
eins og silfurhnífar. Við fórum ótrú-
lega nálægt honum og ég náði stór-
kostlegum ljósmyndum, þar sem
björninn var reiður, á hlaupum,“ seg-
ir Raymond og bætir við að fátt finn-
ist honum betra en að vera úti í nátt-
úrunni.
Kynnir þeim töfrana
Undanfarin fimm ár hefur Ray-
mond kennt ljósmyndun í Bandaríkj-
unum. „Ég kenni átta mánuði á ári og
ég er búinn að hafa gríðarlegan fjölda
nemenda á þessum tíma, ætli ég sé
ekki með um 1500 nöfn á netfanga-
listanum mínum. Þetta fólk kemur
allsstaðar að úr Bandaríkjunum. Mér
finnst mjög skemmtilegt að kenna
byrjendum í ljósmyndun, opna þeim
þennan stórkostlega heim sem ljós-
myndun er. Það er gefandi að kynna
þeim töfrana,“ segir Raymond sem
heldur áfram að ferðast og taka ljós-
myndir á námskeiðunum sem hann
býður upp á, hvort sem þau er á Ís-
landi, Indlandi, Kanada, Ítalíu eða
Bolívíu. Þar deilir hann reynslu sinni
af því að hafa tekið myndir um víða
veröld árum saman við ólíklegustu
aðstæður.
„Ég legg mikið upp úr því að
hafa fáa einstaklinga í einu á hverju
námskeiði, af því ég vil eyða eins
miklum tíma með hverjum og einum
og hægt er.“
Jasper þjóðgarðurinn Í Alberta í Kanada. Ein frægasta mynd Raymonds.
Ferðin góða Óli 21 árs á Vatnajökli með Raymond fyrir 30 árum.
Mackenzie-áin Skógarbjörninn sem Raymond myndaði í bátsferð með frumbyggja í Kanada árið 1998 var reiður.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - fös: 12-16.
MC Planet - 3322 frönsk hönnun
„Ég varð heldur betur kát-
ur þegar ég komst að því að
Raymond væri að koma til
Íslands til að halda nám-
skeið í ljósmyndun og
kynna fólk fyrir íslenskri
náttúru,“ segir Ólafur Bald-
ursson læknir sem lenti í
óvæntu ævintýri fyrir þrjá-
tíu árum þegar hann var
leiðsögumaður Raymonds
og Peters Stark í ferð um
Íslands.
„Þetta var ógleymanleg
ferð sem ég fór með þeim
og ofsalega gaman að hitta
Raymond aftur eftir öll
þessi ár. Hann er sami
gaurinn og hann var, þögull
en með mikið og gott skop-
skyn. Raymond er snill-
ingur, hann hefur ótrúlegt
auga fyrir landslagi. Ég var
bara strákur þegar þetta
var, 21 árs björgunarsveitamaður og vann við að afgreiða í Skátabúð-
inni. Ég var alveg reynslulaus í fararstjórn en var með góða reynslu í
björgun. Og til merkis um það hvað tímarnir hafa breyst, þá kom
þetta óvænta leiðsögumannshlutverk mitt þannig til að það hringdi
einhver í mig og sagði að það vantaði mann til að fara á Vatnajökul
með tvo útlendinga, hvort ég væri ekki til í að gera það. Ég sló til, og
sé ekki eftir því. Ég hafði reyndar aldrei keyrt jeppa, en við fórum á
Bronco og festum hann á leiðinni frá Vatnajökli til Akureyrar og
mátti litlu muna að við veltum honum. Við lentum í ýmsu og það
mynduðust sérstök tengsl á milli okkar þriggja. Ég hefði ekki viljað
missa af þessu.“
„Ég hafði reyndar aldrei
keyrt jeppa áður“
Endurfundir Ólafur Baldursson læknir
og Raymond hittust í s.l viku, 30 árum
eftir að hafa farið saman í ævintýraferð
á Bronco upp á Vatnajökul.
Morgunblaðið/Árni Sæberg