Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 19

Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 19
Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga, þ.e. Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Þar og í Þing- eyjarsveit búa rúmlega 3.700 manns, en samanlögð stærð sveitarfélaganna er yfir 9.700 ferkílómetrar. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is 14.990 19.900 15.000 fólks. „Réttin er umgjörð um þessa uppskeruhátíð sem réttardagurinn er. Fólk sér hvernig lömbin koma af fjalli og hvernig afkoma ársins er. Það leggur á sig mikil ferðalög til þess að koma og fjölskyldur samein- ast í þessu ferli.“ Fjölskylduhefðirnar leika einnig stórt hlutverk í réttum. „Hver fjöl- skylda á sér sínar hefðir á réttardag- inn. Snýr það m.a. að því hvaða nesti er valið og hvaða rútínu farið er eftir. Það er hluti af því sem ég kalla, sem þjóðfræðingur, hátíðarhald. Að fólk myndar sínar eigin hefðir í kringum tilefnið. Þær geta verið mjög hvers- dagslegar en skipta engu að síður máli. Okkar fjölskylda sest t.d. niður þegar við komum heim og fáum við okkur kaffi og vöfflur. Ég held að flestir hafi einhverja hefð og að því leyti svipar réttunum til jólahalds.“ Ljósmynd/Margrét Sverrisdóttir Urð og grjót Gríðarleg vinna fór í að endurhlaða réttina og gera hana stöðugri. Hér sést Oddur Bjarni að störfum. Ljósmynd/Margrét Sverrisdóttir Tilbúin Réttin hefur sjaldan eða aldrei verið í jafn góðu ástandi. Að Laugum tók Matarskemman til starfa fyrir ári. Þar er aðstaða fyrir áhugasama til þess að vinna matvæli bæði til sölu og til einka- nota og stunda þar tilraunastarf- semi í matvinnslu. Má þar finna þurrkofn, suðupott, tæki til kjöt- vinnslu og bjúgnagerð, en einnig er þar leitast við að koma til móts við þá sem koma með nýjar hugmyndir. Á bænum Vallakoti í næsta ná- grenni Lauga búa Jóhanna Magnea Stefánsdóttir og Þór- steinn Rúnar Þórsteinsson. Þau hafa stundað búskap í tuttugu ár en með opnun Matarskemm- unnar hafa þau getað selt afurðir sínar beint frá býli. Ær og kýr eru ær þeirra og kýr, en hjá þeim fæst ferskt lamba- og nautakjöt auk krydds og sultna og á haust- in má þar fá frosna súpu sem þau eru að hefja framleiðslu á. „Við fórum út í þetta til að fá meira fyrir afurðir okkar. Þann- ig gerum við milliliði óþarfa og vitum að það er engu verið að blanda út í kjötið okkar. Við er- um því að senda frá okkur mjög hreina vöru,“ segir Jóhanna, sem vinnur í hlutastarfi í skemmunni meðfram búskap. bso@mbl.is Tækifæri til nýsköpunar í matvælaframleiðslu Ljósmynd/Hanna Þórsteinsdóttir Heima í stofu Hjónin á bænum hafa stundað búskap í tuttugu ár. Matarskemma og beint frá býli Ljósmynd/Vallakot Vinnsla Aðstaða er í Skemmunni til ýmissar matvinnslu. bæjarbúa við upphaf skammdegis. „Þetta verður heilmikil dagskrá og eitthvað á hverjum degi. Það verður sagnanámskeið og sam- koma sem við köllum „Skrínukost“, en þá kemur fólk með mat og gleðj- umst við saman yfir öskunum. Þá verður einnig sýning í tilefni af 70 ára afmæli Raufarhafnar, en dag- skráin er enn í mótun og verður kunngjörð bráðlega. Þetta hefur verið vel sótt og ég tel að flestir í bænum nýti einhvern viðburð,“ seg- ir Silja. Bæjarfélag í sókn Silja leiðir jafnframt atvinnu- þróunarverkefni í bænum, en hún segir ýmislegt hafa áunnist í þeim efnum. „Fólki hefur fjölgað í bæn- um síðustu ár og ýmsir aðilar eru að hugsa sér til hreyfings í ferða- þjónustu. Þeir horfa mikið til af- þreyingarferða og hér eru þegar tvö ferðaþjónustufyrirtæki – annað í veiðiferðum og hitt í heilsugeir- anum. Hér eru tvö gistihús og eitt hótel sem gengu ágætlega í sumar þrátt fyrir veðrið fyrir norðan. Fiskvinnslan er einnig mjög stöðug og með fjölbreytta vinnslu. Það er því mikið að gerast.“ Ljósmynd/Silja Jóhannesdóttir Heimskautagerði Miðsúlan er ris- in með fjögur hlið til höfuðátta. Spurður hvaða minningar standi einna helst upp úr þegar kemur að réttum segist Böðvar muna eftir mörgum góðum atvikum. Ein minning sker sig hins vegar úr. „Maður gleymir aldrei réttunum 2012. Það drapst um þúsund fjár í afréttinni og það tók sex vikur að ná því niður. Það var skelfilegt.“ Sigurlaug upplifði það haust einnig sterkt. „Fólk- ið fann fyrir samstöðunni og sorginni vegna þessara atburða. Það birtist þarna hnotskurn af samfélag- inu sem kristallaði stemninguna á þessum tíma.“ Gleymir aldrei réttunum 2012 UPPLIFÐI MIKLA SAMSTÖÐU Frost Mikill fjöldi fjár varð úti árið 2012.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.