Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
lendum tónlistarmönnum og samið
tónlist við kvikmyndirnar Fíaskó
(2000), Strákarnir okkar (2005),
Reykjavík Rotterdam (2009), Wo-
uld You Rather (2012) og De toutes
nos forces, en hún var mjög vinsæl
í Frakklandi í fyrra og sáu 700.000
hana í kvikmyndahúsum þar í landi.
Hann hefur samið tónlist við fjöl-
marga sjónvarpsþætti, útvarps-
leikrit og stuttmyndir fyrir RÚV og
Stöð 2, svo sem Réttur 1, 2 og
Pressa 1, 2, 3 og Heimsendir.
Barði hefur einnig samið tónlist í
fjölmargar auglýsingar bæði fyrir
innlend og erlend fyrirtæki. Má þar
nefna Armani, Yves Rocher, TGV,
Lancia, Citroen C5, Símann, Hag-
kaup og fleiri.
Barði var á samningi við for-
leggjarana EMI publishing France
2002-2008 og Universal Publishing
France 2008-2011, en þetta eru um-
svifamestu forleggjarar í heimi.
Hann hefur verið lagahöfundur eða
átt í samstarfi með listamönnum
eins og Sia, M83, JB Dunckel sem
er annar meðlima dúettsins Air, og
Lisu Ekdahl.
Verðlaun og félagsmál
Barði hlaut útrásar- og útflutn-
ingsverðlaun Loftbrúar á Íslensku
tónlistarverðlaununum árið 2004.
Hann hlaut íslensku Edduverð-
launin fyrir tónlistina í myndinni
Reykjavík Rotterdam 2009 og var
tilnefndur til Skandinavísku kvik-
myndatónlistarverðlaunanna sama
ár. Árin 2012 og 2015 var hann
einnig tilnefndur til íslensku Eddu-
verðlaunanna fyrir tónlist.
Barði sat í Innkauparáði Reykja-
víkurborgar 2010-2012 og sömu ár
sat hann í stjórn Sjóminjasafnsins
Víkur. Frá 2013 hefur hann setið í
stjórn Svanna - lánatryggingarsjóðs
kvenna.
Einnig hefur hann hefur haft um-
sjón með útgáfu- og höfundarrétt-
indum hjá Bang ehf. sem hefur gef-
ið út 15 titla og haldið erindi um
tónlist og viðskipti, m.a. á nýsköp-
unarþingi Rannís og Útflutnings-
ráðs.
Fjölskylda
Dóttir Barða er Ísold Barðadótt-
ir, f. 26.2. 2009.
Foreldrar Barða eru Jóhann Ó.
Þorvaldsson, f. 7.8. 1953, útgerðar-
tæknir, og Margrét Barðadóttir, f.
9.5. 1952, sérkennari í Reykjavík.
Fósturfaðir hans var Ámundi
Ámundason, f. 14.5. 1945, markaðs-
stjóri og útgefandi.
Úr frændgarði Barða Jóhannssonar
Barði
Jóhannsson
Guðbjörg Sigfúsdóttir
húsfrú, frá Snjóholti í Eiðaþinghá, N-Múl.
Einar Þórðarson
bóndi á Ormsstaðastekk í Norðfirði
Þorvaldur Einarsson
útgerðarm. í Neskaupstað
Rósa Sigríður
Ólafsdóttir
fiskvinnslukona
í Neskaupstað
Jóhann Ó. Þorvaldsson
útgerðartæknir, bús. í Rvík
Sigríður Björnsdóttir
húsfrú í Hestgerði
Ólafur Gíslason
bóndi í Hestgerði í
Suðursveit, A-Skaft.
Tryggvi Þorsteinsson
skurðlæknir í Rvík
Gunnþórunn Rannveig
Þórhallsdóttir húsfr. á
Seltjarnarnesi
Finnur Reyr
Stefánsson
hagfræðingur
og fjárfestir í
Garðabæ
Margrét Friðriksdóttir
húsfr. á Kópaskeri
Oddný Eir
Ævarsdóttir
rithöfundur
Guðrún Kristjánsdóttir
myndlistarmaður í Rvík
Kristján Friðriksson
iðnrekandi í Reykjavík
Eggert Ólafur Jóhannsson
feldskeri í Reykjavík
Jóhann Friðriksson
forstjóri í Reykjavík
Þorsteinn Jóhannesson
prófastur í Vatnsfirði við
ÍsafjarðardjúpÞuríður
Þorsteinsdóttir
safnvörður á
Kjarvalsstöðum
Barði Friðriksson
fv. skrifstofustj. og lögm.
Vinnuveitendasambands Íslands
Margrét Barðadóttir
sérkennari í Rvík
Guðrún Halldórsdóttir
ljósmóðir á Efri-Hólum
Friðrik Sæmundsson
bóndi á Efri-Hólum í
Núpasveit, N-Þing.
Nína Tryggvadóttir listmálari
Laufey Tryggvadóttir
húsfrú í Vatnsfirði
Magnús Jóhannesson
framkv.stj. hjá Norður-
skautsráðinu
Þorsteinn Jóhannesson
yfirlæknir á Ísafirði og
fv. bæjarstj.
Jóhannes
Þorsteinsson
vélstj. á Ísafirði
Leður „Þarna er ég í góðum fíling.“
Guðjón Hólm Sigvaldasonfæddist 10. september 1920að Litla-Ási á Kjalarnesi.
Foreldrar hans voru Sigvaldi Þor-
kelsson, f. 5.9. 1897, d. 17.7. 1978,
bóndi á Kjalarnesi, síðar iðn-
aðarmaður í Reykjavík, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 12.9. 1895, d. 30.7. 1979,
húsmóðir. Foreldrar Sigvalda voru
Þorkell Helgason, síðast verkamað-
ur í Reykjavík, og Þórunn Sigur-
björg Þorláksdóttir, og foreldrar
Guðrúnar voru Jón Jónsson, bóndi í
Bakkakoti á Kjalarnesi, og Hólm-
fríður Oddsdóttir.
Guðjón útskrifaðist frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1942 og
lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands árið 1947. Héraðs-
dómslögmaður varð Guðjón árið
1948. Hann var fulltrúi hjá Sigur-
geiri Sigurjónssyni hrl. frá 1947 til
1952 en rak síðan lögfræðiskrifstofu
í Reykjavík til ársins 1965 er hann
varð forstjóri John Lindsay ehf., en
því starfi gegndi hann til ársins 2000.
Samhliða rekstri lögmannsstofu
sinnti Guðjón kaupsýslu og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum. Hann var
framkvæmdastjóri skemmtigarðsins
Tívolí 1951 til 1952 og ýmist sat í
stjórn eða tók þátt í rekstri fjölda
fyrirtækja í Reykjavík, þ. á m. Kjöt-
vers hf., Reykhússins hf. og verslan-
anna Angoru, Vogabúðarinnar og
Lífstykkjabúðarinnar auk fyrirtækj-
anna Efnagerð Reykjavíkur og Agn-
ar Lúðvíksson hf.
Guðjón varð fyrsti formaður
Gigtarfélags Íslands árið 1976,
gegndi þeirri stöðu til 1980 og var
gerður að heiðursfélaga þess 1990.
Guðjón var sæmdur gullmerki Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna 1988.
Eiginkona Guðjóns var Guðrún
Stefánsdóttir, f. 28.3. 1920, d. 21.3.
2014, húsmóðir. Foreldrar hennar
voru Stefán Halldórsson, útgerðar-
maður og verslunarstjóri í Neskaup-
stað, og k.h. Sigríður Guðmunds-
dóttir. Börn Guðjóns og Guðrúnar:
Jóhann Geir, f. 1948, Gunnar, f. 1949,
Stefán Sigurður, f. 1952, d. 1955, lést
í umferðarslysi, Stefán Sigurður, f.
1957, og Guðjón Hólm, f. 1959.
Guðjón lést 3.7. 2001.
Merkir Íslendingar
Guðjón Hólm Sigvaldason
95 ára
Petrína Jónsson
90 ára
Margrét Sigtryggsdóttir
85 ára
Elínborg Kristjánsdóttir
Lárus J. Helgason
80 ára
Gíslína
Friðbjörnsdóttir
Margrét Ásta
Gunnarsdóttir
Þórir Marinósson
75 ára
Aðalheiður Rósa
Gunnarsdóttir
Elín Jónsdóttir
Laufey Ósk Guðmundsd.
Pálína Margrét Bjarnadóttir
Samúel Ellert Óskarsson
70 ára
Anna Carla Örlygsdóttir
Arnfríður Valdemarsdóttir
Bragi Ingvason
Heimir Svansson
Ludwig H. Gunnarsson
Rannveig Jónsdóttir
Sigrún Emma Ottósdóttir
Sigurður Marinósson
60 ára
Anna Eiríksdóttir
Anton Jan Wasilewski
Ágústa Sigríður Sigurðard.
Eiríkur Hreinn Helgason
Guðríður Inga Andrésdóttir
Guðrún Helga Kristjánsd.
Halina Aleksandrowicz
Hermann Þórðarson
Hildur Garðarsdóttir
Jón Sævar Sigurðsson
Lilja Sigurdís Sigurðardóttir
Nína Dóra Pétursdóttir
Ólöf Flygenring
Pálína Jóna Guðmundsd.
Sigurður Hauksson
Sigurður Sveinn Alfreðsson
Sigvaldi Ólafsson
Svanfríður Eygló Ívarsdóttir
Þorgeir Hjartarson
Þór Ostensen
50 ára
Erla Sigfúsdóttir
Hólmfríður S Sigurðardóttir
Hrefna Gunnarsdóttir
Jenný Dagbjört Gunnarsd.
Jóhanna Stefanía Birgisd.
Jón Ingi Þorsteinsson
Lovísa V. Bryngeirsdóttir
Magnea Jónasdóttir
My Thi Ngo
Sigurbjörg Ósk Antonsd.
Sveinn Þórarinn Jónsson
Valdimar Reynisson
40 ára
Aðalbjörn Hrannar Helgas.
Coleen Arizala Lastimosa
Elís Vilberg Árnason
Hary Liberman
Jón Sindri Stefánsson
Páll Jónbjarnarson
30 ára
Airidas Liaugminas
Ayesha D. G. Wedagedara
Hafsteinn Viðar Hafsteinss.
Helga Sif Eiðsdóttir
Linda Hrönn Geirsdóttir
María Jónasdóttir
Michala Krestýnová
Michal A. Wieczorek
Samúel Rósinkr. Kristjánss.
Sigurður Valdimar Olgeirss.
Sylvía Clothier Rudolfsd.
Þorkatla Inga Karlsdóttir
Þórarinn Máni Borgþórsson
Þórunn Ríkey Ás Friðriksd.
Til hamingju með daginn
40 ára Njörður er fæddur
og uppalinn í Garði en býr
í Keflavík. Hann er deild-
arstjóri yfir fraktaf-
greiðslu hjá IGS.
Maki: Berglind Elva Lúð-
víksdóttir, f. 1975, þroska-
þjálfi hjá Hjallastefnunni.
Börn: Íris Björk, f. 1999,
og Róbert Ingi, f. 2004.
Foreldrar: Jóhann Þor-
steinsson, f. 1942, d.
2010, og f. Helga Sigur-
björg Bjarnadóttir, f.
1943.
Njörður
Jóhannsson
30 ára Alexander er Sel-
fyssingur en býr í Garða-
bæ. Hann er verslunar-
stjóri í Bónus í Holta-
görðum.
Maki: Brynja Rún Brynj-
ólfsdóttir, f. 1988, nemi í
lögfræði við Háskóla
Íslands.
Börn: Óskírður, f. 2015.
Foreldrar: Þór Stefáns-
son, f. 1961, raftækni-
fræðingur, og Sigríður
Waage, f. 1965, húsmóðir.
Þau eru bús. á Selfossi.
Alexander
Þórsson
30 ára Brynja býr í Mos-
fellsbænum, er fædd þar
og uppalin. Hún er líf-
fræðingur hjá Actavis.
Maki: Matthías Hálfdán-
arson, f. 1984, kvik-
myndatökumaður.
Börn: Guðmundur, f.
2009, og Máni, f. 2012.
Foreldrar: Guðmundur
Björnsson, f. 1950, d.
2014, sölustjóri, og Ósk
Hilmarsdóttir, f. 1952, d.
2006, skrifstofum. Þau
voru bús. í Mosfellsbæ.
Brynja
Guðmundsdóttir
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone