Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
»Bókmenntahátíð í Reykjavík hófst í gær og lýk-
ur á laugardag. Rithöfundarnir Teju Cole frá
Bandaríkjunum og Steinunn Sigurðardóttir fluttu
erindi og var glatt á hjalla, eins og sjá má af með-
fylgjandi myndum. Hátíðin er haldin annað hvert
ár og gefst á henni tækifæri til að kynnast straum-
um og stefnum í erlendum bókmenntum og íslensk-
um. Fimmtán erlendir rithöfundar verða í sviðs-
ljósinu að þessu sinni og sautján innlendir.
Bókmenntahátíð í Reykjavík var sett í Norræna húsinu í gær
Erindi Bandaríski rithöfundurinn Teju Cole flutti erindi á setningu hátíðarinnar í Norræna húsinu í gær.
Gestir Stella Soffía Jóhannesdóttir, Sigurður Guðni Valgeirsson og Pétur
Már Ólafsson gáfu sér tíma til þess að brosa fyrir ljósmyndarann.
Þýðendur Magnea Matthíasdóttir og Ólöf Pétursdóttir voru í miklu stuði. Rithöfundur Steinunn Sigurðardóttir flutti erindi á setningunni í gær.
Bækur Að sjálfsögðu geta gestir blaðað í bókum á hátíðinni. Viðstaddir not-
færðu sér það óspart á fyrsta degi og slógu á létta strengi.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heimildarmyndin Sjóndeildar-
hringur eftir leikstjórana Berg
Bernburg og Friðrik Þór Frið-
riksson verður frumsýnd í dag í Bíó
Paradís. Myndin fjallar um myndlist
og störf listamannsins Georgs
Guðna Haukssonar, sem varð bráð-
kvaddur árið 2011, aðeins fimm-
tugur að aldri.
Auk þess sem myndin verður til
sýningar hér á Íslandi hefur hún
verið valin til þátttöku í Toronto Int-
ernational Film Festival, TIFF, sem
fer fram dagana 10.-20. september.
Myndlist Georgs er fyrir löngu orðin
þekkt hér á landi og ættu allir sem
notið hafa listar hans að sjá mynd-
ina, en hún dragur upp skemmtilega
og fróðlega svipmynd af Georgi
Guðna. Sjálfur segir Bergur, annar
leikstjóra myndarinnar, að hún sé
ekki í Hollywood-stíl og megi segja
að áhorfandinn geti í raun og veru
byrjað að horfa á myndina hvenær
sem er. Á þann hátt endurspegli hún
verk Guðna.
Íslensk heimildarmynd frumsýnd
Morgunblaðið/Einar Falur
Kvikmynd Í myndinni um Georg Guðna fá áhorfendur að kynnast honum á
skemmtilegan og áhugaverðan hátt í gegnum hans frásögn og verkin hans.
Heimildarmynd um
Georg Guðna í bíó
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Við sendum
hádegismat í bökkum
og kantínum til fyrirtækja
og stofnana alla daga ársins!
Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum:
Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka.
Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags.
Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is
Fjölbreyttur matseðill
og valréttir alla daga
SKÚTAN
HÁDEGISMATUR
Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
VINSÆLT - HEILSUBAKKAR
Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði
NO ESCAPE 5:45,8,10:15
TRANSPORTER REFUELED 8, 10:20
STRAIGHTOUTTACOMPTON 5, 10:10
ABSOLUTELY ANYTHING 6
THE GIFT 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar