Morgunblaðið - 28.09.2015, Síða 1

Morgunblaðið - 28.09.2015, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  227. tölublað  103. árgangur  ÁSTRALÍA HEILLAÐI LANDNEMANN SEINT Á 19. ÖLD GLORÍUR Á KÓLUMBÍSKU KAFFIHÚSI MUNKLÍFIÐ HEILLAÐI KLARIN- ETTULEIKARANN Á FERÐ UM ÍSLAND 12 VINIR GEFA ÚT PLÖTU 26VINUR LANDEYINGS 10 Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Þingmannafrumvarp sem liggur fyr- ir Alþingi, sem skyldar fjölmiðlaveit- ur til að texta íslenskt myndefni, gæti kippt grundvellinum undan rekstri lítilla sjónvarpsstöðva. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, en meðflutnings- menn eru úr Sjálfstæðisflokki, Framsókn, Samfylkingu og VG. „Ég myndi gjarnan vilja gera þetta en þetta myndi bara slökkva á ÍNN. Og ég fullyrði á öllum litlu stöðvunum. Ekki nema þá að það myndi fylgja frumvarpinu að stofn- aður yrði sérstakur sjóður sem kost- aði þetta. Kostnaðurinn við text- unina er nefnilega alveg gríðar- legur,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, eigandi sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN. Einnig er óvissa um hvort Hring- braut og N4 geti staðið undir kostn- aði við textun. Markmið frumvarps- ins er að gera sjónvarpsáhorfendum, sem eru heyrnarlausir eða heyrnar- skertir að því marki að þeim gagnast ekki talmál í sjónvarpi, kleift að njóta sjónvarpsefnis á íslensku. „Myndi slökkva á ÍNN“  Frumvarp sem skyldar fjölmiðlaveitur til að texta íslenskt myndefni gæti kippt rekstrargrundvelli undan litlum sjónvarpsstöðvum  „Gríðarlegur kostnaður“ MYrði litlum … »4 Um frumvarpið » Samkvæmt útreikningum 365 miðla ehf. mun kostnaður fyrirtækisins vegna textunar aukast um 20-25 milljónir króna á ársgrundvelli verði frumvarpið að lögum. Aðskilnaðarsinnar í Katalóníuhéraði á Spáni fóru með sigur af hólmi í þingkosningum sem haldnar voru í sjálfstjórnarhéraðinu í gær. Artur Mas, forseti héraðsstjórnarinnar, lýsti í gærkvöldi yfir sigri frammi fyrir fjölda stuðningsmanna sem veifuðu fánum Katalóníu undir ber- um himni í Barcelona. „Við höfum lýðræðislegt umboð sem gefur okkur mikið lögmæti til að halda áfram með áætlanir okkar,“ sagði Mas við þá sem þar voru staddir. Lýðflokkur forsætisráðherrans Mariano Rajoy vísaði niðurstöðunni á bug og segir í yfirlýsingu að flokk- urinn muni halda áfram að berjast gegn sjálfstæði héraðsins. „Ríkis- stjórnin mun vinna að því að tryggja áframhaldandi einingu Spánar,“ sagði talsmaðurinn Pablo Casado við fréttamenn í Madríd. Þegar 98% atkvæða höfðu verið talin var ljóst að bandalag aðskiln- aðarsinna, Junts pel Sí, myndi ná al- gjörum meirihluta á þinginu ef það tæki höndum saman við róttæka vinstriflokkinn CUP. Saman eru flokkarnir með 72 sæti á þingi en þar sitja 135 þingmenn. »15 Katalónar á útleið úr Spáni AFP Sigur Artur Mas fagnar úrslitunum.  Aðskilnaðarsinnar geta myndað meirihluta Ólík eru haustverkin. Sumir fara í líkamsrækt til að ná af sér grillspikinu, aðrir taka slátur en einnig eru þeir til sem slá grasið á þekjunni eins og þessi maður í Laugarnesinu í gær. Ekki veitir af þar sem grasspretta hefur verið góð í hlýind- um síðustu vikna á suðvesturhorninu. Morgunblaðið/Golli Snyrtir úfið þakið fyrir veturinn  Ari Edwald, forstjóri Mjólk- ursamsölunnar, útnefndi umboðs- menn skyrsins í Finnlandi heims- meistara í skyr- sölu á skyrhátíð sem efnt var til í Helsinki um helgina. Sala á skyri hefur stór- aukist þar í landi og á síðasta ári seldust um 3.000 tonn. Búast má við því að salan verði hátt í 5.500 tonn á þessu ári en hún var 150 tonn fyrsta árið. Nú eru liðin fimm ár frá því sala á skyri hófst í Finnlandi. »6 Útnefndir heims- meistarar í skyrsölu Skyr Íslenska skyr- ið er vinsælt ytra. Um 2.600 Íslendingar, þar af rúm- lega 100 börn og ungmenni, fengu ávísað þunglyndislyfið Seroxat í fyrra, en rannsóknir sýna að notkun lyfsins getur aukið líkurnar á sjálfs- vígi hjá ungu fólki. Varað hefur verið við notkun ungmenna á lyfinu í mörg ár, eða frá því að rannsókn sem gerð var árið 2001 leiddi þessar auka- verkanir í ljós. Ný rannsókn, sem greint er frá í nýjasta tölublaði breska læknatímaritsins British Medical Journal, staðfestir niður- stöður þessarar fyrri rannsóknar. Magnús Jóhannsson læknir, sem hefur eftirlit með lyfjaávísunum hjá Embætti landlæknis, segir að öll lyfjameðferð við þunglyndi geti falið í sér aukna áhættu á sjálfsvígi. Sterkar vísbendingar séu um að Ser- oxat gagnist þunglyndum börnum. Samkvæmt umfjöllun danskra fjölmiðla hefur notkun lyfsins leitt til sjálfsvígs dansks ungmennis. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir stofnunina ekki hafa fengið upplýsingar um að notkun lyfsins hafi haft slíkar afleið- ingar hér á landi. »16 Yfir 100 börn fengu þunglyndislyf sem sagt er geta aukið líkurnar á sjálfsvígi Morgunblaðið/Kristinn Geðlyf Talið er að notkun Seroxats geti aukið líkur á sjálfsvígum.  Varað við notk- uninni í mörg ár  Foreldrar barna sem stunda knattspyrnu vilja að skipt verði um undirlag á gervigrasvöllum þar sem notast er við dekkjakurl. Þetta er meðal þess sem kom fram á fjöl- mennum íbúafundi þar sem fulltrúar borgarinnar sátu fyrir svörum. Greint hefur verið frá því að krabbameinsvaldandi efni séu í kurl- inu en ekki hefur tekist að sýna með óyggjandi hætti að það hafi áhrif á heilsu iðkenda. Viðmælendur á fundinum eru þó sammála um það að börnin eigi að njóta vafans. Will- um Þór Þórsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, vinnur nú að þings- ályktunartillögu þess efnis að tekið verði á vandanum á landsvísu. »6 Þingsályktun um dekkjakurlið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.